Morgunblaðið - 30.04.2015, Qupperneq 35
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Indriði fæddist á Húsabakka íSkagafirði 29.4. 1851. Hann varsonur Einars Magnússonar,
smiðs og bónda á Húsabakka, og
k.h., Eufemíu Gísladóttur húsfreyju.
Einar var sonur Magnúsar Magn-
ússonar, prests í Glaumbæ, og Sig-
ríðar Halldórsdóttur, systur Reyni-
staðarbræðra, en Eufemía var systir
Konráðs Fjölnismanns, dóttir Gísla
Konráðssonar, sagnaritara, skálds
og hreppstjóra, og Eufemíu Bene-
diktsdóttur húsfreyju.
Eiginkona Indriða var Marta,
dóttir Péturs Guðjohnsen, söng-
kennara og dómorganista, sem var
mikill frumkvöðull í tónlistarlífi
Reykjavíkur, og Guðrúnar Sigríðar,
dóttur Lauritz Knudsen, ættföður
Knudsenættar á Íslandi.
Meðal systkina Indriða var Hall-
dór Einarsson, bóndi á Ípishóli,
langafi Vilhjálms Egilssonar og
Álftagerðisbræðra.
Meðal barna Indriða og Mörtu
voru leikkonurnar Eufemía Waage
og Guðrún Sigríður, Ingbjörg Thors
forsætisráðherrafrú og Einar Viðar
söngvari, faðir Jórunnar tónskálds.
Indriði lauk stúdentsprófum frá
Reykjavíkurskóla 1872, var fyrsti Ís-
lendingurinn til að ljúka hagfræði-
prófi, frá Hafnarháskóla 1877 og
stundaði framhaldsnám í Edinborg.
Hann var fulltrúi í stjórnarráðinu
frá upphafi heimastjórnar, 1904, og
skrifstofustjóri þar frá 1909-1918, en
hann hafði yfirumsjón með hag-
sýslugerð stjórnarinnar þar til Hag-
stofan var stofnuð 1914. Þá var hann
alþm. Vestmannaeyja skamma hríð.
Indriði var frumherji í íslenskri
leikritagerð en frægustu leikverk
hans eru Nýjársnóttin, Dansinn í
Hruna og Hellismenn. Hann þýddi
einnig Vetrarævintýri eftir William
Shakespeare og Víkingana á Há-
logalandi, eftir Henrik Ibsen, ásamt
Eggert Ó. Briem, 1892.
Indriði kom að stofnun Leikfélags
Reykjavíkur 1897 og var alla tíð
virkur félagi þess.
Endurminningar hans, Sjeð og lif-
að, komu út 1936.
Indriði lést 31.3. 1939.
Merkir Íslendingar
Indriði
Einarsson
95 ára
Guðrún Júlíusdóttir
85 ára
Konráð Gottliebsson
Ólöf Pálsdóttir
75 ára
Guðbjartur Þormóðsson
Guðrún Björnsdóttir
Helgi Scheving Karlsson
Leifur Kordtsen-Bryde
Sigurbjörn Haraldsson
70 ára
Ágúst H. Bjarnason
Ásgeir Jónsson
Elín Nóadóttir
Guðný Jónasdóttir
Guðný Karlsdóttir
Hallkell Þorkelsson
Jóhann H. Jónsson
María Friðsteinsdóttir
Óskar Smith Grímsson
Sólveig Sigurjóna
Gísladóttir
60 ára
Agnar Jónas Jónsson
Guðmunda Sigfúsdóttir
Hulda Karlsdóttir
Jóhanna B. Kristjánsdóttir
Sigríður Stefánsdóttir
Sævar Friðgeirsson
50 ára
Alda Þorsteinsdóttir
Ágúst Birgisson
Charlotte Sigurðardóttir
Gísli Ólason Kærnested
Grétar Þór Hilmarsson
Guido Baeumer
Harpa Karlsdóttir
Judit Jónsdóttir
Kolbrún Kristjánsdóttir
Kristrún Leifsdóttir
Ólafur Kristinsson
Ragna Margrét Gunn-
arsdóttir
Sawai Sarakham
Sigrún Rut Ragnarsdóttir
Snorri Mir
Soffía Dröfn Halldórsdóttir
Svetlana Dzelzkaleja
40 ára
Eiríkur Valgeir
Gunnþórsson
Finnur Kristjánsson
Halldór Þorvaldur
Halldórsson
Páll Ólason
Pétur Óli Gíslason
Sunna Þórðardóttir
Sævar Berg Hannesson
30 ára
Antonin Bergerat
Dariusz Marian Jachim
Evelyn Adolfsdóttir
Gunnar Örn Jónsson
Jurate Vadakojyte
Mihai Mota
Olga Dís Sævarsdóttir
Sandra Friðriksdóttir
Sigríður Elín Þórðardóttir
Sigurður Ingólfsson
Sunna Ósk Friðbertsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Hulda ólst upp í
Reykjavík, býr í Borg-
arnesi, stundar heilbrigð-
isritaranám í fjarnámi og
er í fæðingarorlofi.
Maki: Sævar Birgir Ólafs-
son, f. 1983, starfsmaður
hjá RARIK.
Synir: Haukur Óli, f.
2008, og Þorsteinn Ingi,
f. 2011.
Foreldrar: Lilja Vikar
Finnbogadóttir, f. 1952,
og Þorsteinn Hauksson, f.
1951. Þau búa í Reykjavík.
Hulda
Þorsteinsdóttir
40 ára Sesselja ólst upp í
Mosfellsbæ, býr þar, er fé-
lagsliði, stundar nám í líf-
eðlisfræði, starfar við
Twill-vefnaðarvöruverslun
og stundar sauma.
Maki: Arnór Guðni Krist-
insson, f. 1976, gull-
smiður og rafvirki.
Börn: Kristján, f. 1997;
Natalía Erla, f. 2001, og
Hákon Örn, f. 2004.
Foreldrar: Kristján Ö.
Jónsson, f. 1954, og Erla
F. Óskarsdóttir, f. 1955.
Sesselja Ósk
Kristjánsdóttir
30 ára Friðjón ólst upp í
Reykjavík og hefur búið
þar alla tíð, er versl-
unarmaður og starfar í
Nítró Sport, mót-
orhjólaverslun.
Systir: Sigríður Ást-
mundsdóttir, f. 1982,
starfsmaður hjá Póst-
inum.
Foreldrar: María Frið-
jónsdóttir, f. 1956, banka-
maður, og Ástmundur
Guðnason, f. 1951, raf-
virki. Þau búa í Reykjavík.
Friðjón
Ástmundsson
Í kjölfarið á háskólanáminu sem
hófst 1999 fór ég að starfa við upplýs-
ingagjöf ferðamanna á Upplýsinga-
miðstöð Árborgar á sumrin. Ég hef
unnið á Upplýsingamiðstöð Suður-
lands frá 2004, tók við rekstri og
stjórnun þar sumarið 2006 og hef
starfað við það síðan. Auk þess sé ég
um rekstur Hveragarðsins í Hvera-
gerði fyrir hönd Hveragerðisbæjar en
garðurinn er í eigu bæjarins.“
Sigurdís situr í stjórn Ferðamála-
samtaka Hveragerðis og hefur frá
stofnun Markaðsstofu Suðurlands
setið í stjórn og varastjórn hennar
með smá hléum. Hún situr í stjórn
rekstrarfélags Verslunarmiðstöðv-
arinnar Sunnumarkar þar sem Upp-
lýsingamiðstöð Suðurlands er til húsa.
Sigurdís er fjölskyldumanneskja:
„Mér finnst afar mikilvægt að fram-
kalla gæðastundir með allri fjölskyld-
unni sem verða efniviður í kærkomn-
ar endurminningar hjá börnunum
mínum. Við þekkjum það sjálf þegar
við verðum fullorðin hvað slíkar
minningar verða gott veganesti þegar
fram líða stundir.
Við höfum því ferðast mikið, bæði
innanlands og utanlands. Utanlands-
ferðir hafa samt legið mikið niðri eftir
að börnin komu til skjalanna og við
höfum meira reynt að ferðast um
landið. Erlendir staðir sem heimsótt-
ir hafa verið og mér finnst standa upp
úr eru Mexíkó, Jamaíka og New
York.
Þegar þessu sleppir hef ég í raun
áhuga á öllu sem viðkemur ferðaþjón-
ustu enda hef ég starfað lengi í brans-
anum. Þar reyni ég að fylgjast vel
með öllu, smáu sem stóru.
Ég hef svo lengi haft áhuga á mat-
reiðslu og gæðavínum sem gaman er
að grípa til í góðum vinahóp. Við
hjónin erum miklir sælkerar þegar
því verður komið við. Auk þess hef ég
haft vaxandi áhuga á tísku og hönnun
nú í seinni tíð, hvað sem úr því verð-
ur. Kannski á maður einhvern tíma
eftir að reyna fyrir sér í þeim
bransa.“
Fjölskylda
Eiginmaður Sigurdísar er Sveinn
Ólason, f. 28.4. 1971, dýralæknir.
Foreldrar hans: Óli Andri Haralds-
son, f. 19.1. 1933, d. 27.8. 2009, bóndi í
Nýjabæ í Árborg en þar hét áður
Sandvíkurhreppur, og Helga Her-
mannsdóttir, f. 15.7. 1940, húsfreyja í
Nýjabæ.
Börn Sigurdísar og Sveins eru
Viktor Ingi Sveinsson, f. 5.11. 2004;
Óli Freyr Sveinsson. f . 24.3. 2009, og
Eydís Helga Sveinsdóttir, f. 9.4. 2013.
Systkini Sigurdísar eru Eiríkur
Ágúst Guðjónsson, f. 23.4. 1965, forn-
bókasali, búsettur á Álftanesi; Sig-
urður Rúnar Guðjónsson, f. 5.7. 1967,
ráðgjafi unglingameðferðarheimilis
og bóndi í Flóahreppi; Rannveig
Skúla Guðjónsdottir, f. 17.3. 1971,
húsfreyja og eigandi Bross auglýs-
ingavara, búsett í Kópavogi; Helgi
Þór Guðjónsson, f. 20.11. 1981, tamn-
ingamaður og reiðkennari í Flóa-
hreppi
Foreldrar Sigurdísar eru Guðjón
Sigurðsson, f. 25.5. 1941, smiður og
bóndi og lengi byggingarfulltrúi
sveitarfélagsins Flóahrepps, búsettur
í Flóahreppi, og Eydís Lilja Eiríks-
dóttir, f. 10.1. 1943, húsfreyja og mat-
ráður í Flóahreppi.
Úr frændgarði Sigurdísar Lilju Guðjónsdóttur
Sigurdís Lilja
Guðjónsdóttir
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. á Útverkum
Bjarni Jónsson
b. á Útverkum á Skeiðum
Lilja Bjarnadóttir
húsfr. í Langholti
Eiríkur Ágúst Þorgilsson
b. í Langholti í Hraungerðishr.
Eydís Lilja Eiríksdóttir
húsfr. og matráður í Kolsholti
Sigurlaug Erlendsdóttir
húsfr. á Litlu-Háeyri
Þorgils Sigurðsson
vinnum. á Sandlæk og víðar
Magnús Sigurðsson
húsasmiður á Selfossi
Sigrún Sigurðardóttir
matráður á Selfossi
Sigríður Eiríksdóttir
húsfr. í Rvík
Margrét Ásmundsd.
kennari í Rvík
Guðjón Skúli Jónsson
húsasmiður á Akranesi
Íris Björk Magnúsdóttir
starfsmaður við unglinga-
heimili á Selfossi
Skúla Þórarinsdóttir
húsfr. í Kolsholti
Guðjón Gíslason
b. í Kolsholti
Helga Þórlaug Guðjónsdóttir
húsfr. og b. í Kolsholti Villingaholtshreppi
Sigurður Gíslason
b. í Kolsholti
Guðjón Sigurðsson
fyrrv. b. og smiður í Kolsholti, Flóahreppi
Kristín Jónsdóttir
húsfr. í Haugi, systurdóttir
Guðnýjar, ömmu Sigur-
jóns Ólafssonar mynd-
höggvara og langömmu
Erlings Gíslasonar leikara
Gísli Brynjólfsson
þjóðhagasmiður í Haugi, bróðursonur Matthíasar, langafa Haralds
Matthíassonar menntaskólakennara, föður Ólafs fyrrv. alþm.,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir svæðisstjóri UN Women
í Evrópu og Mið-Asíu í Istanbul
Kjartan Gíslason
hjá Orkusýn - Hellisheiðarvirkjun
Gísli Gíslason
verslunarm. í Rvík
Afmælisbarnið Sigurdís Lilja.
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón