Morgunblaðið - 30.04.2015, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Veit á vandaða lausn
Fastus ehf., - Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
SJÓÐHEITT
Á SVALIRNAR
Kolagrill í garðinn, á pallinn eða í ferðalagið.
KOLAGRILL
TILBÚIÐ Á
3
MÍNÚTUM
• Tilbúið til matreiðslu eftir 3-4 mínútur
• Afkastamikið og öflugt
• Innbyggð vifta sem tryggir kolum súrefni
• Tvöfaldur veggur - kemur í veg fyrir að ytra byrði hitni
• Mjög góð hitastýring á kolum
• Má fara í uppþvottavél
Verð frá kr. 34.000,-
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Dagurinn hentar vel til að gera ferða-
áætlanir með einhverjum nánum þér. Sýndu
fjölskyldu þinni hlýju og ástúð því þú vilt að
hamingja ríki á heimilinu.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekkert verða þér hindrun í vegi.
Hvort sem tilfinningin er svimandi alsæla
eða eins og sólarhringsflensa er hún að
reyna að segja þér eitthvað.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér er úthlutað verkefni sem allir
hafa gefist upp á. Hvort sem þú ert einn,
með vinum eða fyrir framan áhorfendur ertu
aldrei leiðinlegur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það skiptir þig miklu máli að sann-
færa einhvern um eitthvað í dag. Sýndu því
skoðunum annarra þá virðingu sem þú vilt
að menn sýni þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hafðu augun hjá þér þegar þú kynnir
samstarfsmönnum þínum verk þitt því svip-
brigði segja oft meira en mörg orð. Tillögur
þínar eru hagnýtar og metnaðarfullar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Dagurinn í dag er upplagður fyrir al-
varlegar samræður innan fjölskyldunnar.
Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hæfileikar þínir eru ótvíræðir og vekja
aðdáun annarra og stundum öfund. En þetta
ert bara þú sjálfur svo þú skalt hrista af þér
slenið, bretta upp ermarnar og hefjast
handa.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þið eigið mjög auðvelt með að
leysa af hendi þau verkefni sem ykkur eru
falin. Gjafmildi þín fer fram úr því sem þú
hefur efni á, en þú færð þetta allt til baka.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Strengdu þess heit með sjálfum
þér að spara meira og hugsa um framtíðina.
Góður vinur er gulli betri. Láttu það eftir þér
að gera það sem þér hentar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er alltaf gott að gleðjast við
töðugjöldin en mundu að árangur verður
ekki metinn í krónum og aurum. Að eltast
við hjörtu getur þreytt hörðustu rokk-
stjörnur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Venjulega ertu ekki sérlega gefin
fyrir að spara peninga. Hamingjusamt fólk
veit að lykillinn að hamingjunni er aldrei
„meira“ og alltaf „frábrugðinn“.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Lífið er líkt og leiksvið og þú kemst
ekki af öðruvísi en að þekkja leikritið og
kunna þitt hlutverk. Umskiptin byrja ekki fyrr
en búið er að skrifa undir.
Á þriðjudaginn birtist hér gátasem Örnólfur Thorlacius lærði
af föður sínum. Þar kemur fyrir
orð, með og án lengingar, sem að
þessu sinni bætist framan við upp-
haflega orðið og kollvarpar merk-
ingu þess (og raunar málfræðilegu
kyni í leiðinni):
Dragðu B frá byrjun minni,
þá bý ég tíðum húsum inni.
Fótum troðin einatt er,
öldungum þó nokkuð þver.
Ella skjól ég ekkert þekki,
enga læt mig fjötra hlekki,
með vá og dauða víða fer.
Lausnin er [B]rim.
Það þykir alltaf tíðindum sæta
þegar kerlingin á Skólavörðuholt-
inu lætur í sér heyra eins og á
Boðnarmiði fyrir nokkru:
Oft fer ég illa að slaga,
öl þegar kneyfa til baga.
Vottast það hér
að víst hefur hver
sinn eigin djöful að draga.
Karlinn á Laugaveginum lét sér
fátt um finnast, hallaði höfðinu ei-
lítið aftur til vinstri og sagði:
Á kvöldin mín kerling fer
á krárnar og staup fær sér –
þó að stundum hún slagi
er í stakasta lagi –
edrú kjagar hún hvort sem er!
Kerlingin á Skólavörðuholtinu
skellti í góm og sagðist geta um-
orðað þetta:
Ein er ég úti á sprangi,
með ilmandi rós í fangi
og dúandi lokka
svo dillandi af þokka
á eggjandi gæsagangi.
Nú var karlinn á Laugaveginum
kominn í rómantíska þanka og
hugsaði til gamalla daga:
Hún var gáskafull, glöð okkar kæti
er gengum við Austurstræti.
Við ung vorum þá.
og hvergi nein krá
og mín kerling var létt á fæti.
Kristján Karlsson orti:
Dimmt er vestur hjá Djúpi
og draugar á hvítum hjúpi
fara leið sína um allt.
Það er andskoti kalt.
Og ekkert gaman á Núpi.
Kristján lét þess um leið getið að
þarna væri Vestfjörðum rétt lýst –
„þó að ég hafi ekki hugmynd um
það!“
Og Jóhann Hannesson orti:
Ég er hreinlega farinn að hata
það hvernig hver einasta gata
er á sínum stað.
Því mér ofbýður það
ef alþýðan lærir að rata.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af karli og kerlingu og
veðrið fyrir vestan
Í klípu
ÞAÐ ER SÉRSTAKUR STAÐUR Í HELVÍTI
FYRIR FÓLK SEM SKILUR EFTIR BÖRN
EÐA GÆLUDÝR LÆST Í BÍLNUM MEÐ
RÚÐURNAR RÚLLAÐAR UPP.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG HELD AÐ ÞETTA SÉ
SJÓNVARPSVIÐGERÐAMAÐURINN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... einhver sem er
ávallt skemmtilegt að
umgangast.
ROTTAN Í
KJALLARANUM
ER AÐ FLYTJA
JÁ! ÉG VISSI AÐ ÉG GÆTI
LOSNAÐ VIÐ HANN!
ÞÚ VINNUR
MEÐ ÞAÐ SEM
ÞÚ HEFUR
HÚN SEGIR
AÐ HÚN ÞOLI
EKKI NÖLDRANDI
KETTI
EF FRIÐUR OG NÆÐI
SKIPTIR YKKUR MÁLI,
ÞÁ GÆTI ÞETTA VERIÐ
HÚSIÐ FYRIR YKKUR!
Víkverji hugsar stundum með sérað nú hljóti röðin bráðum að
fara að koma að honum að vinna í
lottóinu. Tölfræðilega eru svipaðar
líkur á því að fá fimm rétta í lottóinu
og því að eldingu slái í höfuðið á
manni en engu að síður halda vinn-
ingarnir alltaf áfram að ganga út.
Víkverji horfir á allt þetta heppna
fólk og hugsar með sér „Hví ekki
ég?“ Um leið hugsar hann til allra
hinna sem fá eldinguna í hausinn og
hugsar „Sem betur fer ekki ég!“
x x x
Fyrir það fyrsta gæti óheppni Vík-verja í lottóspilun stafað af því
að hann hefur ekki verið mjög dug-
legur að kaupa lottómiða, þó hann
kannski freistist til þess endrum og
sinnum þegar potturinn er orðinn
sex- eða sjöfaldur. Raunar grunar
Víkverja að þá hljóti líkurnar á vinn-
ingi að vera orðnar enn minni, þegar
fleiri eru um hituna, auk þess sem
hann fyllist alltaf smá þórðargleði
þegar hann sér stóran vinning
skiptast meðal margra einstaklinga.
Um leið vonar Víkverji að komi röð-
in einhvern tímann að honum að þá
verði hann einn um hituna.
x x x
Að sama skapi veltir Víkverji fyrirsér uppruna orðanna um heppni
í spilum og óheppni í ástum. Sjálfur
tekur Víkverji eftir því að hann er
farinn að vinna mun sjaldnar í bingói
eftir að hann kvæntist. Væntanlega
er einhverja staðfestingu á hinum
fleygu orðum að finna þar. Hann veit
þó ekki hvaða merkingu hann á að
lesa í það, að á sama tíma hefur Frú
Víkverji „rakað inn“ bingóvinning-
um hér og þar.
x x x
Spilaheppni spúsunnar hefur þóenn ekki náð til lottósins. Er
Víkverji farinn að velta fyrir sér,
hvort hann eigi að hætta að sinna
hinum ýmsu hússtörfum, svona til
þess að auka sigurlíkur heimilisins.
Hann gæti líka byrjað að reykja inn-
andyra og gerst dagdrykkjumaður,
svona til að gulltryggja óheppnina/
heppnina. Bara að eldingunni slái
ekki niður í staðinn.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég komst að raun um að allt sem Guð
gerir stendur að eilífu, við það er engu
að bæta og af því verður ekkert tekið.
Guð hefur hagað því svo til þess að
menn virtu hann. (Prédikarinn 3:14)