Morgunblaðið - 30.04.2015, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Nýr Sproti með viðarfótum - ýmsir litir í boði
STOFNAÐ 1956
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
s: 510 7300
www.ag.is
Sproti 405
Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Danshöfundurinn og Grímuverð-
launahafinn Saga Sigurðardóttir
dansar í nýju verki eftir Katrínu
Gunnarsdóttur, Macho Man, sem
frumsýnt verður á sunnudaginn, 3.
maí, í Tjarnarbíói. Katrín mun á
sömu sýningu dansa í eigin verki,
Saving History sem frumsýnt var á
Reykjavík Dance Festival við góð-
ar viðtökur.
Saga fær, að eigin sögn, ýmsar
karllegar fyrirmyndir lánaðar í
verkinu Macho Man. ,,Í raun fæ ég
karllíkama til að máta mig í. Við
Katrín höfum verið að skoða vissar
hugmyndir um ofurkarlmanninn,
hinn sterka, aðlaðandi yfir-
burðakarlmann og hvernig þær
hugmyndir birtast í hreyfingum
líkamans. Við tökum fyrir alls kyns
ímyndir, allt frá bardagaheiminum
þar sem við sjáum glímukappa og
hetjur hringsins og
yfir í karlastripp.
Við skoðum líka
páfuglamenn-
ingu á borð við
flamenco-
dans og
diskódans.“
Aðspurð
hvort
undir-
búning-
urinn
hafi ver-
ið erfiður,
svarar hún:
,,Þetta var frábær
áskorun því það var
erfiðara en að segja það að
setja sig í þessi spor. Ég komst
að því að kvenlíkaminn hefur
allt önnur hreyfingarlögmál en
karllíkaminn.“ Saga nefnir sem
dæmi að mjaðmir kvenna hreyfist í
margar víddir en mjaðmahreyf-
ingar karla einkennist af meiri ein-
stefnu. Þá hreyfist axlir karla ekki
í takt við handleggina á sama hátt
og hjá konum.
verið gegnumgangandi mynstur
sem þær sáu við undirbúning
verksins. ,,Það eru margar áhuga-
verðar tengingar á milli atferlis
karla og fugla. Við sjáum þetta á
tískupöllunum, í glímunni og í
dansinum.“
Glíman heldur
þumbaraleg
Saga fer víða í verkinu. Hún tek-
ur fyrir það sem hún kallar ,,upp-
blásna, hormónafyllta karl-
mennsku“ en líka taílenska
strippklúbba. Þrátt fyrir mikla
fjölbreytni á milli menningar-
heima, segir hún ákveðin sígild og
sameiginleg lögmál áberandi í
hreyfingum allra karlmanna.
,,Íslendingar eiga í raun enga
karllega danshefð eins og Spán-
verjarnir. Við getum helst nefnt ís-
lensku glímuna, sem er heldur
þumbaraleg,“ segir Saga þegar
hún er spurð um séríslenskar
karlahreyfingar.
,,Karlmenn
virðast ekki
þurfa að gera
mikið til að
vera aðlað-
andi.
Stund-
um
þurfa
þeir að
gera
sem
minnst.
Hreyfingar
þeirra eru oft
hnitmiðaðri og
meira afgerandi en
hreyfingar kvenna.“
Katrín Gunnarsdóttir,
höfundur Macho Man, dansar
í verkinu Saving History sem
sýnir persónulega danssögu
hennar síðustu 15 ár. Katrín
fær þannig lánaðar fyrirmyndir
í gegnum feril sinn sem dans-
listamaður, allt frá nemenda-
árum sínum og að atvinnu-
mennsku.
Af glímuköppum og fatafellum
Dansarinn Saga Sigurðardóttir fær karlmannslíkama
að láni í Macho Man Páfuglahegðun karla áberandi
Morgunblaðið/Golli
Karllegar hreyfingar Saga Sigurðardóttir bregður sér í líki karlmanns í
Tjarnarbíói og hreyfir sig eins og „ofurkarlmannlegur“ karlmaður.
Form Regained nefnist sýning sem
opnuð verður í dag kl. 17 í gall-
eríinu i8 við Tryggvagötu. Á henni
má sjá valin verk þriggja myndlist-
armanna: Alexöndru Navratil, Erin
Shirreff og Lara Viana. Öll byggja
þau á því að brjóta upp og endur-
móta söfn ýmiss konar og minn-
ingar, skv. tilkynningu frá gall-
eríinu.
Alexandra Navratil er svissnesk
og býr og starfar í Amsterdam og
Zürich. Hún nam myndlist við há-
skólana Central St. Martins og
Goldsmiths í Lundúnum, hefur
haldið fjölda einkasýninga og hlotið
svissnesku myndlistarverðlaunin,
Swiss Art Award, í tvígang. Erin
Shirreff er bandarísk og býr og
starfar í New York. Hún nam
myndlist við University of Victoria
og Yale og hefur m.a. haldið einka-
sýningar í Sikkema Jenkins & Co. í
New York og Artpace í San Anton-
io.
Lara Viana er brasilísk og stund-
aði myndlistarnám við Foulmouth
School of Art í Foulmouth og Royal
College of Art í Lundúnum. Hún
var meðal þeirra sem valdir voru á
samsýninguna Bloomberg New
Contemporaries árið 2008 í Whi-
techapel-galleríinu í Lundúnum,
hefur haldið fjölda einkasýninga og
hlaut verðlaun á São Paulo-
myndlistartvíæringnum árið 2001.
Birt með leyfi listamannsins og Sikkema Jenkins & Co., New York
Stöðuvatn Stilla úr myndbandsverki Erin Shirreff, Lake, frá árinu 2012.
Verk Navratil, Shirreff
og Viana sýnd í i8
Glímukappi
Randy Savage.
,,Þegar ég byrjaði að hreyfa mig
og líkja eftir karlmönnum kom
Katrín mjög fljótt auga á ýmis
mynstur sem eru mér töm sem
kvenmanni en spilltu fyrir verkinu.
Ég þurfti mikið að temja mig og
tileinka mér þessa karllegu still-
ingu.“
Skoðuðu karla í ham
Saga segir að hún og Katrín hafi
við undirbúninginn lagst yfir
myndefni af karlmönnum í ham á
ólíkum sviðum og í ólíkum menn-
ingarheimum. ,,Við tókum inn efnið
með augunum og fórum svo út á
gólf þar sem við reyndum að verða
þessar týpur sem við sáum.“
Nefnir hún glímukappann Randy
Savage sem dæmi. ,,Hann er mikil
fyrirmynd og nær yfir allt sem við
skoðuðum. Hann er glímumaður,
ofurmenni og páfugl. Framkoma
hans er mikið sjónarspil.“ Hún
bendir á að páfuglahegðun hafi