Morgunblaðið - 30.04.2015, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Önnur kvikmyndin um ofur-hetjuhóp Marvel-útgáf-unnar, The Avengers,eða Hefnendurna, rakar
inn seðlunum í kvikmyndahúsum
vestan hafs og austan og ljóst að
ofurhetjumyndir njóta vinsælda
sem aldrei fyrr. Fyrsta myndin var
gríðarvinsæl, sú þriðja tekjuhæsta
í miðasölu í kvikmyndasögunni ef
rétt er munað og stefnir allt í að
þessi geri enn betur. Hvað veldur
þessum vinsældum er erfitt að
segja en ofurhetjur hafa löngum
heillað og þá einkum unga menn,
furðulegar fantasíur og misjafnlega
jarðtengdar. Allt frá geimverunni
Súpermann til mennska millj-
ónamæringsins og forritunarsnill-
ingsins Tony Stark sem flýgur um
loftin blá í búningi Járnmannsins.
Hvern dreymir ekki um að vera
Tony Stark? Eða Súpermann? Sem
barn og unglingur var ég heltekinn
af þessum hetjum, einkum þó
Köngulóarmanninum sem ég teikn-
aði nær daglega eftir teiknimynda-
blöðum lengi vel, algjörlega ómeð-
vitaður um gegndarlaust ofbeldið í
sögunum. Það virðist ekki hafa
valdið mér skaða.
Og nú eru synir mínir teknir við,
dellan berst milli kynslóða og mað-
ur upplifir spennuna fyrir nýrri of-
urhetjumynd í gegnum þá. Hristir
svo höfuðið í laumi yfir allri vitleys-
unni sem þetta auðvitað er. En
skemmtileg er sú vitleysa og fín-
asta skemmtun. Fjárhæðirnar sem
lagðar eru í myndir á borð við
Avengers: Age of Ultron eru him-
inháar og gróðinn eftir því. Og
launagreiðslur til leikaranna, sem
þurfa nú ekki að reyna mikið á sig,
a.m.k. ekki andlega, eru svakaleg-
ar. Stjörnur þessarar nýjustu stór-
myndar úr ofurhetjubrunninum
eru þó ekki leikararnir heldur
meistararnir sem sjá um brellurnar
og að tölvuteikna öll herlegheitin;
átökin, sprengingarnar, skrímslin
og hetjurnar. Það mikla sjónarspil
eitt og sér gerir myndina þess virði
að sjá.
Sagan er í stuttu máli sú að
Hefnendur komast yfir sprota
Loka Laufeyjarsonar sem býr yfir
skínandi steini sem er eitthvert
máttugasta fyrirbæri alheimsins, ef
rétt er skilið. Snillingurinn Tony
Stark freistast til að nota þennan
aflgjafa í friðargæsluforrit eitt mik-
ið sem hann hefur skrifað og nefnir
Ultron. Með því öðlast forritið
gervigreind og Stark telur að nú
muni ríkja friður á jörðu um alla ei-
lífð (eins og þeir sem sáu síðustu
Avengers-mynd muna þá reyndu
geimverur að útrýma mannkyni en
Hefnendum tókst að koma í veg
fyrir það) og vélmenni hans eiga að
sjá um friðargæsluna. Ultron tekur
sér bólfestu í einum af vélmennum
Stark og reynist því miður ekki
friðelskandi. Nei, Ultron vill út-
rýma Hefnendum sem hann telur
ógn við mannkynið og mannkyninu
eins og það leggur sig. Reynist
hann skæðasta illmenni sem hóp-
urinn hefur þurft að glíma við þar
sem hann getur flakkað um netið
og tekið á sig ýmis form. Til að
bæta gráu ofan á svart er Ultron
svo með tvö ofurmenni sér til að-
stoðar sem leika Hefnendur grátt.
Senuþjófur myndarinnar er Ul-
tron sem James Spader talar fyrir
óaðfinnanlega. Ultron er mikill
húmoristi, kaldhæðinn með endem-
um og maður fer ósjálfrátt að halda
með honum þó hann vilji útrýma
mannkyninu. Aðrir leikarar end-
urtaka fyrri leik, Downey Jr. enn
eina ferðina í hlutverki Járnmanns-
ins, Hemsworth durtslegur sem
Þór o.s.frv. og Johansson og Ruf-
falo eru á rómantískum nótum sem
Bruce Banner/Hulk og Svarta
ekkjan. Sú rómantík er algjörlega
óþarfur hluti af sögunni og heldur
leiðinleg. Þá fá leikararnir ekki úr
miklu að moða þegar kemur að
samtölum og senum öðrum en
átakasenum. Á köflum veit maður
ekki alveg hvað er að gerast og
margt virkar heldur órökrétt í sög-
unni en á móti kemur að fátt er
rökrétt í ofurhetjusögum. Myndin
er í lengra lagi, 141 mínúta og með
frekari fórnum í klippiherberginu
hefði hún orðið betri en hún er, þó
skemmtileg sé. Stundum hægist
um of á frásögninni en sem betur
fer er stutt milli hasaratriða sem
halda áhorfendum við efnið. Átaka-
senurnar eru sumar það langar að
maður fer að finna fyrir því og
þreytast á hamaganginum en á
heildina litið er þetta fínasta sum-
armynd, þó sumarið sé ekki komið
nema að nafninu til.
Senuþjófur Ultron er skemmtilegasta persóna myndarinnar þó hann sé forrit með gervigreind í búki vélmennis.
Hressandi della
Laugarásbíó, Smárabíó
og Sambíóin
Avengers: Age of Ultron bbbmn
Leikstjóri: Joss Whedon. Aðalleikarar:
Chris Evans, Chris Hemsworth, James
Spader, Jeremy Renner, Mark Ruffalo,
Robert Downey Jr., Scarlett Johansson,
Aaron Taylor-Johnson og Elizabeth Ol-
sen. Bandaríkin, 2015. 141 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Á laugardag verður opnuð í Vallon
Pont D’Arc í Frakklandi eftirmynd
í fullri stærð af Chauvet-hellinum
þar hjá, sem fannst fyrir tuttugu
árum og hefur að geyma elstu
hellamyndir manna sem fundist
hafa. Chauvet-hellirinn er á heims-
minjaskrá Sameinuðu þjóðanna en
myndirnar í honum, sem eru um
eitt þúsund talsins, eru svo við-
kvæmar að ekki er hægt að hleypa
fólki þar inn. Því réðust frönsk
stjórnvöld í það metnaðarfulla
verkefni að endurgera um 3.000
fermetra af hellinum, sem alls er
um 8.000 fermetrar, með eins ná-
kvæmum eftirmyndum frummynd-
anna og unnt var að skapa. Franski
listamaðurinn Gilles Tosello ber
einkum ábyrð á endurgerð þeirra,
með sömu efnum og listamennirnir
notuðu í fyrndinni, kolum og litar-
efnum úr málmum, en gerð hellis-
ins mun hafa kostað um 59 millj-
ónir dala, hátt í átta milljarða
króna.
Samkvæmt The New York Times
gefur að líta afar fjölbreytilegt úr-
val dýra á veggjum hellanna
beggja, þar á meðal vísunda, nas-
hyrninga, ljón og hesta. Aðeins ein
mynd sýnir mannveru, konu með
nautshöfuð, en nokkrar sýna kven-
sköp og telja fræðimenn þær mynd-
ir kunna að hylla kraftbirtingu
fæðinga. Myndverkin voru gerð
fyrir 32 til 36.000 árum og þykja
einstaklega vel gerð, mörg hver.
„Hæfileikar þessara listamanna
hafa verið ótrúlega miklir,“ segir
fornleifafræðingurinn sem fyrstur
greindi aldur verkanna.
Um þrjátíu manna hópar fá að
fara inn í hellinn á hálftíma fresti,
með leiðsögumanni sem fræðir fólk
um verkin.
Endurgerðu helli með um þúsund ævafornum myndum
AFP
Dýralíf Í nýja hellislíkinu, sem er í Ardeche-héraði Frakklands, gefur að líta
fjölda dýra, þar á meðal nashyrninga sem ekki finnast lengur þar um slóðir.
AFP
Forvitnilegt Francois Hollande Frakklandsforseti fékk leiðsögn um endur-
gerðan hellinn í vikunni og horfir hér á myndir í einu skoti hans.
Opnað í Frakk-
landi á laugardag
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fim 30/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00
Sun 3/5 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00
Þri 5/5 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00
Mið 6/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00
Fim 7/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Fös 5/6 kl. 19:00
Fös 8/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00 Lau 6/6 kl. 19:00
Lau 9/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 13:00 Ath kl
13
Sun 7/6 kl. 19:00
Sun 10/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00 Mið 10/6 kl. 19:00
Mið 13/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 3/5 kl. 13:00 Sun 10/5 kl. 13:00 Sun 17/5 kl. 13:00
Síðustu sýningar leikársins
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k Fim 21/5 kl. 20:00
Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Þri 12/5 kl. 20:00 aukas. Fös 22/5 kl. 20:00
Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Mið 13/5 kl. 20:00 22.k. Fim 28/5 kl. 20:00
Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Sýningum fer fækkandi
Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið)
Fim 30/4 kl. 20:00 4.k. Lau 9/5 kl. 20:00 Fim 21/5 kl. 20:00
Sun 3/5 kl. 20:00 5.k. Sun 10/5 kl. 20:00
Fim 7/5 kl. 20:00 6.k. Sun 17/5 kl. 20:00
Urrandi fersk háðsádeila frá einu umtalaðasta leikskáldi Evrópu
Hystory (Litla sviðið)
Fös 8/5 kl. 20:00 auka. Fös 15/5 kl. 20:00
Fim 14/5 kl. 20:00 Mið 20/5 kl. 20:00 auka.
Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur
Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl.
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Macho Man Saving History (Salurinn)
Sun 3/5 kl. 20:00
Síðbúin rannsókn (Aðalsalur)
Þri 12/5 kl. 20:00 Fös 15/5 kl. 20:00
Both Sitting Duet og Body Not Fit For Purpose (Salurinn)
Lau 30/5 kl. 20:00
The Border (Salurinn)
Mán 18/5 kl. 20:00 Þri 19/5 kl. 20:00
Endatafl (Salurinn)
Fös 1/5 kl. 20:00 Fim 14/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00
Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Fim 7/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00
Fös 8/5 kl. 20:00 Sun 24/5 kl. 20:00
Hávamál (Salurinn)
Mið 27/5 kl. 20:00 Sun 31/5 kl. 16:00 Sun 31/5 kl. 20:00