Morgunblaðið - 30.04.2015, Síða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Íslenski Eurovision-hópurinn æfir
nú nær daglega og mun gera það
fram til 13. maí næstkomandi, þeg-
ar hann heldur til Vínarborgar þar
sem keppnin er haldin. Þetta segir
Jónatan Garðarsson, fararstjóri ís-
lenska hópsins, í samtali við Morg-
unblaðið. „Allt er á réttu róli. María
og Ásgeir Orri voru um helgina í
Moskvu og komu þar fram á eins
konar aðdáendahátíð þar sem um
helmingur keppenda mætti og
flutti lagið sitt. Þau fóru í viðtöl í
sjónvarpi og útvarpi, árituðu og
margt fleira. Núna erum við að
setja allt á fulla keyrslu og munum
æfa nánast daglega þar til við för-
um út.“
Aðdáendahátíðin sem Jónatan
vísar til var haldin á Korston-
hótelinu í Moskvu en hún er haldin
árlega, skömmu fyrir Eurovision-
keppnina. Ísland var að taka þátt í
aðdáendahátíðinni í fyrsta skipti í
ár. Auk Maríu stigu á svið kepp-
endur frá Bretlandi, Möltu, Make-
dóníu, Svartfjallalandi, Hvíta-
Rússlandi, Ísrael, Makedóníu,
Aserbaídsjan og Slóveníu.
Jónatan segir atriði Íslands hafa
verið tilbúið fyrir miðjan mars og
því liggi allt ljóst fyrir. „Núna er
mikilvægt að æfa atriðið þannig að
það verði 100%. Íþróttalið verða jú
að æfa daglega þó svo að allir viti
fyrirfram hvað þeir eigi að gera.“
Átján manns fara á vegum ís-
lenska teymisins en sex manns
verða á sviðinu, þ.e. söngkonan
María, bakraddir og dansarar.
Auk þess fara höfundar lagsins,
upptökustjórateymið StopWaitGo,
þeir Ásgeir Orri Ásgeirsson, Pálmi
Ragnar Ásgeirsson og Sæþór Krist-
jánsson, sem og hárgreiðslukona og
förðunarfræðingur, kjólahönnuður,
danshöfundur og nokkurra manna
teymi frá Ríkisútvarpinu. Jónatan
segir hópinn ekki sérlega stóran
miðað við önnur lönd, yfirleitt fari
um 25-40 manna teymi á keppnina.
Lagið sem mun keppa fyrir Ís-
lands hönd heitir, sem kunnugt er,
„Unbroken“. Kjóllinn sem María
klæðist á sviðinu í Vínarborg og at-
riðið verður sýnt með pompi og
prakt 9. maí nk. í Kringlunni.
Morgunblaðið/Eggert
Eurovision María Ólafsdóttir flytur
„Unbroken“ fyrir Íslands hönd.
Æfa daglega eins
og íþróttamenn
18 manns í íslenska teyminu í Vín
The Age of Adaline 12
Adaline Bowman hefur lifað í
einveru stóran hluta af lífi
sínu í ótta við að tengjast
einhverjum of sterkum
böndum og með áhyggjur af
því að leyndarmál hennar
spyrjist út.
Metacritic 51/100
IMDB 7,5/10
Laugarásbíó 17.40, 20.00,
22.20
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.10
Paul Blart:
Mall Cop 2 IMDB 4,0/10
Laugarásbíó 20.00
Smárabíó 17.45, 20.00,
22.50
Borgarbíó Akureyri 20.00
Run All Night 16
Gamall leigumorðingi þarf
að takast á við grimman yfir-
mann sinn til þess að vernda
son sinn og fjölskyldu hans.
Metacritic 59/100
IMDB 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00
Child 44 16
Brottrekinn sovéskur herlög-
reglumaður rannsakar rað-
morð á börnum.
Morgunblaðið bmnnn
IMDB 5,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.00,
20.00, 23.00
Sambíóin Egilshöll 22.30
Sambíóin Kringlunni 22.25
A Second Chance 14
Lögreglumennirnir Andreas
og Simon sinna útkalli heim
til pars sem er djúpt sokkið í
neyslu og finna nokkurra
mánaða gamlan son þeirra
hjóna grátandi inni í skáp.
IMDB 7,1/10
Háskólabíó 17.30, 20.00,
22.20
Borgarbíó Akureyri 18.00
Austur 16
Ungur maður er tekinn í gísl-
ingu af ofbeldisfullum
glæpamanni sem er í mikilli
neyslu.
Háskólabíó 20.00, 22.40
The Second Best Ex-
otic Marigold Hotel Metacritic 51/100
IMDB 6,8/10
Háskólabíó 17.30
Fast & Furious 7 12
Metacritic 66/100
IMDB 9,1/10
Laugarásbíó 22.00
Smárabíó 20.00, 22.10
Borgarbíó Akureyri 22.10
Get Hard 12
Metacritic 33/100
IMDB 6,0/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.40
Loksins heim Geimveran seinheppna Ó
kemur til jarðar og hittir hina
ráðagóðu Tátilju.
Metacritic 48/100
IMDB 6,7/10
Smárabíó 15.30, 17.45
Fúsi 10
Fúsi er liðlega fertugur og
býr einn með móður sinni.
Líf hans er í afar föstum
skorðum og fátt kemur á
óvart.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 64/100
IMDB 7,7/10
Háskólabíó 17.30, 20.00,
22.10
The Divergent
Series: Insurgent 12
Eftir að hafa misst foreldra
sína en bjargað mörgum af
félögum sínum flýr Tris
ásamt Caleb, Fjarka og fleir-
um yfir á svæði hinna frið-
sömu þar sem þau þurfa að
ákveða næsta leik.
Metacritic 43/100
Sambíóin Álfabakka 17.30
Samba IMDB 6,7/10
Háskólabíó 20.00, 22.10
Citizenfour
Bíó Paradís 18.00
Wild Tales
Bíó Paradís 17.30
Gullsandur
Bíó Paradís 18.00
Blind
Bíó Paradís 18.00, 20.10
Black Coal, Thin Ice
Morgunblaðið bbbmn
IMDB 6,7/10
Bíó Paradís 22.20
The Grump Morgunblaðið bbmnn
Metacritic 72/100
IMDB 7,5/10
Bíó Paradís 20.00
Stations of the
Cross
Bíó Paradís 22.10
Whiplash
Morgunblaðið bbbbn
Bíó Paradís 22.00
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Það er undir Hefnendunum komið að stöðva
hræðilegar áætlanir hins illa Ultrons.
IMDB 9,3/10
Laugarásbíó 19.00, 22.00
Sambíóin Álfabakka 17.00, 17.00, 19.00,
20.00, 20.00, 22.00, 23.00, 23.00
Sambíóin Egilshöll 17.00, 18.00, 20.00,
21.00, 23.00
Sambíóin Kringlunni 17.00, 18.00, 20.00, 21.00,
23.00
Sambíóin Akureyri 17.00, 17.00, 20.00, 22.25,
23.00
Sambíóin Keflavík 21.00
Smárabíó 16.00, 16.00, 17.00, 19.00, 19.00, 20.00,
22.00, 22.00, 23.00
Avengers: Age of Ultron 12
Eftir að hafa svo oft mis-
tekist með beinum árásum
ákveður Júlíus Sesar að
reisa glænýja borg til að
umkringja Gaulverjabæ.
IMDB 7,0/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 15.30
Háskólabíó 17.30
Borgarbíó Akureyri 18.00
Ástríkur á Goðabakka Eftir orrustuna við Gallipoli árið 1915 fer ástralskur bóndi til
Tyrklands til að leita að þremur sonum sínum sem er saknað.
Metacritic 51/100
IMDB 7,3/10
Sambíóin Álfabakka
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni
17.30, 20.00
Sambíóin Akureyri
20.00
The Water Diviner 16
A L V Ö R U
RISTAÐ
BRAUÐ BE IKON
Spælt
E G G
MORGUNVERÐARPYLSUR
kartöfluteningar
síróp
S K I N K A OSTUR
0g0
S P R E N G I S A N D I O G T R Y G G V A G Ö T U
S Í M I 5 2 7 5 0 0 0 — W W W . G R I L L H U S I D . I S
PÖNNUKAKA
1840kr á mann
Allt á sínum stað og svo fylgir
ávaxtasafi og kaffi eða te með.
Allt þetta fyrir einungis
HELGAR
BRUNCH