Morgunblaðið - 30.04.2015, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2015
Árin segja sitt1979-2015
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans
Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás.
Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
Lauga-ás hefur frá 1979
boðið viðskiptavinum
sýnum uppá úrval af
réttum þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið hafðar
að leiðarljósi.
)553 1620
Verið velkominn
ÍSLENSKT TAL
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
Ný bók eftir Ólaf Jóhann Ólafsson,
Almanakið, kemur út í dag og er það
fyrsta ljóðabók hans. Sonur Ólafs og
alnafni málaði vatnslitamyndir við
ljóðin en hann útskrifast frá Yale-
háskóla nú í vor.
Á kápu Almanaksins er vitnað í
skáldið Þorstein frá Hamri þar sem
hann segir: „Almanakið er yfirtak
fallegur og vel saminn ljóðaflokkur,
áhrifamikill í látleysi sínu og inni-
leik.“ Ragnar Helgi Ólafsson hann-
aði alla umgjörð bókarinnar og út-
gefandi hennar er Veröld.
Ólafur hefur skrifað fjölda skáld-
sagna og smásagna og einnig leikrit,
Fjögur hjörtu sem frumsýnt var í
Loftkastalanum 1997 og Rakstur
sem Þjóðleikhúsið sýndi 2003. Leik-
gerð skáldsögu hans Sniglaveislan
var frumsýnd hjá Leikfélagi Akur-
eyrar 2001 og hefur verið sett á svið
í Bretlandi.
Morgunblaðið/Ómar
Ljóðabók Almanakið er fyrsta ljóðabók Ólafs Jóhanns Ólafssonar.
Fyrsta ljóðabók Ólafs Jóhanns
Æfingar standa nú yfir hjá Kór
Langholtskirkju á Jóhannesar-
passíunni eftir J.S. Bach, einu dáð-
asta kórverki tónlistarsögunnar.
Kórinn mun flytja passíuna í Lang-
holtskirkju 17. maí nk. kl. 16 með
hljóðfæraleikurum og Benedikt
Kristjánsson tenór mun syngja
hlutverk guðspjallamannsins og
Oddur Arnþór Jónsson barítón
hlutverk Jesú. Önnur sönghlutverk
verða í höndum kórmanna. Kór-
inner að mestu skipaður ungum
söngnemum, að því er fram kemur
á miðasöluvefnum Tix.is.
„Verkið er byggt á frásögn
Jóhannesarguðspjalls af síðustu
stundunum í lífi Jesú, píslum hans
og krossfestingu.
Bach málar
sögusvið atburð-
anna á ein-
staklega áhrifa-
ríkan hátt með
mögnuðu tón-
máli sínu. Kór-
inn gegnir lyk-
ilhlutverki í
dramatískri
framvindu frá-
sagnarinnar og í þessu verki er að
finna marga af glæsilegustu og
áhrifamestu kórköflum tónlistar-
sögunnar,“ segir þar um verkið.
Stjórnandi Kórs Langholtskirkju
er Jón Stefánsson.
Jóhannesarpassían í Langholtskirkju
Oddur Arnþór
Jónsson
Tónlistarhjónin Guðmundur Pét-
ursson og Ragnheiður Gröndal
halda tónleika í kvöld kl. 21 í menn-
ingarhúsinu Mengi, Óðinsgötu 2.
Þau munu flytja lög sem fjalla öll
með einhverjum hætti um einsemd
manneskjunnar og þörfina fyrir að
upplifa sig sem hluta af heild en á
sama tíma skera sig úr. Einnig hafa
sum laganna tengingu við konuna
og móðurina, eins og segir í til-
kynningu. „Lögin verða tengd sam-
an með spuna og markmið tón-
leikanna er að skapa fallegt
orkuflæði í rýminu milli flytjenda
og hlustenda,“ segir þar einnig.
Á laugardaginn, 2. maí, kl. 21
mun tónlistarkonan Soffía Björg
svo bjóða vorið velkomið með lág-
stemmdum tónleikum, frumflytja
tónlist sem hún hefur unnið að og
lög af væntanlegri plötu. Henni til
aðstoðar verða Tómas Jónsson á
skringi-rhodes og myndlistarkonan
Sigríður Þóra Óðinsdóttir sem
varpar myndbandsverki á vegg og
lánar hún rödd sína, eins og það er
orðað í tilkynningu.
Samstillt Tónlistarmennirnir og hjónin Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson.
Ragnheiður, Guðmundur og Soffía
Mary Jane Jacob, sýningastjóri og
prófessor við School of the Art
Institute í Chicago, flytur fyrir-
lestur í kvöld kl. 20 í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, sem er
hluti af fyrirlestraröðinni TALK
Series. Fyrirlestur Jacob nefnist
„Experiencing Social Practice“ og
mun hún í honum velta fyrir sér
upplifun áhorfenda og listamanna
sjálfra af listaverkum sem hafa
beina samfélagslega nálgun og fela
í sér þátttöku almennings. Jacob
mun styðjast við kenningar banda-
ríska heimspekingsins Johns De-
weys til þess að skoða félagslega
sinnuð verk myndlistarmanna.
Jacob hefur stýrt hundruðum
sýninga sem miða að því að færa
myndlistina og orðræðu hennar út í
samfélagið og nær almenningi, eins
og segir í tilkynningu, og hún hefur
einnig rannsakað hvað upplifun á
myndlist felur í sér og gefið út bæk-
ur um viðfangsefnið.
TALK Series er samstarfsverk-
efni Listasafns Reykjavíkur, Kynn-
ingarmiðstöðvar íslenskrar mynd-
listar og Listaháskóla Íslands.
Fyrirlesari Mary Jane Jacob.
Mary Jane Jacob
í TALK Series
Kvennakórinn Katla heldur tón-
leika í kvöld kl. 19.30 og 21, í Að-
ventkirkjunni, Ingólfsstræti 19 og
bera þeir yfirskriftina Brjóstbirta. Í
kórnum eru um 50 ungar konur og
stjórnendur tveir, Lilja Dögg Gunn-
arsdóttir og Hildigunnur Einars-
dóttir. „Kvenleg orka, fegurð og
styrkur verður allsráðandi á þessu
fagra fimmtudagskvöldi,“ segir í
tilkynningu. Á fésbókarsíðu Kötlu
segir um kórinn að hann fái fólk til
að gráta, hlæja, klappa og sannfær-
ast um að lífið sé gott og dreymi um
að komast á kóramót til Texas og
taki því að sér alls konar gigg.
Kötlur Kvennakórinn Katla í miklu stuði á Laugarvatni fyrr í þessum mánuði.
Kvenleg orka, fegurð og styrkur