Morgunblaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 44
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 120. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Heimilisbrauð tröllríður netinu
2. Hviða feykti uppblásnu íþróttahúsi
3. Á stærð við hálfa Smáralind
4. Var ekki í búðunum og lifði því af
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Orð og tónlist verða í fyrirrúmi á
Loft hosteli við Bankastræti í kvöld
kl. 20 því þá munu þýski rithöfund-
urinn, myndskreytirinn og leikkonan
Karen Köhler og dj. flugvél og geim-
skip leiða saman tónlist og orðlist á
ævintýralegan hátt. Þær munu rann-
saka list hvor annarrar með upp-
lestri, tónlist og spjalli. Köhler dvelur
um þessar mundir í Reykjavík sem
gestarithöfundur á vegum Goethe-
stofnunar í Kaupmannahöfn og
Reykjavíkur Bókmenntaborgar
UNESCO. Köhler er frá Hamborg og
átti sér þann draum að verða geim-
fari og hefur lært fallhlífarstökk en
menntaði sig í leiklist, eins og segir í
tilkynningu. Hún starfaði í ýmsum
leikhúsum í hinum þýskumælandi
heimi áður en hún sneri aftur til
Hamborgar og fæst við leikrita- og
prósaskrif. Steinunn Eldflaug Harð-
ardóttir er einnar konu hljómsveitin
dj. flugvél og geimskip og segir tón-
list sína vera með geimívafi. Stein-
unn býður upp á „hressa takta, sval-
an bassa og alls kyns söng“, eins og
því er lýst og er framkoma hennar
leikræn og litrík.
Tónlist og orðlist
mætast á Loft hosteli
Arnaldur Indriðason rithöfundur var
sæmdur frönsku riddaraorðunni fyrir
listir og bókmenntir, Chevalier des
Arts et des Lettres, á sumardaginn
fyrsta. Athöfnin fór fram í franska
sendiherrabústaðnum og afhenti
sendiherra Frakka á Íslandi, Philippe
O‘Quin, Arnaldi orðuna fyrir hönd
franska ríkisins. Í ræðu sinni
nefndi O‘Quin m.a. að Arn-
aldur væri hátt skrifaður í
Frakklandi en þar hafa
bækur hans, í þýðingu
Erics Boury, selst í
milljónavís.
Sæmdur frönsku
riddaraorðunni
Á föstudag Austan og norðaustan 5-13 við norður- og austur-
ströndina, annars hægari vindur. Víða dálítil él, en yfirleitt þurrt
vestantil. Hiti 1-6 stig syðra og vestra, en kaldara nyrðra og eystra.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 3-10 m/s, norðlægari vestantil.
Slydda eða rigning með köflum suðaustantil, annars stöku él en
snjókoma eystra í kvöld. Hiti víða 0-7 stig.
VEÐUR
Lyfjaprófum í íslensku
íþróttalífi hefur fækkað frá
árinu 2008, aðallega vegna
aukins kostnaðar. Sýnin eru
send til útlanda, á rann-
sóknarstofu viðurkennda af
Alþjóða lyfjaeftirlitinu,
Wada, og gengislækkun
eykur því kostnaðinn við
lyfjaprófun. Framlögin til
málaflokksins hafa minnk-
að undanfarin ár og starf-
semin þar af leiðandi orðið
umfangsminni. »4
Færri lyfjapróf
vegna kostnaðar
Karen Espelund, stjórnarmaður í
Knattspyrnusambandi Evrópu, segir
að góð reynsla af mótahaldi Íslend-
inga hafi verið ein af ástæðum þess
að Ísland var valið sem keppn-
isstaður fyrir úrslitakeppnina á Evr-
ópumóti stúlknalandsliða í knatt-
spyrnu í sumar. Auk þess sem
Íslendingar séu svo afslappaðir í
skipulagningu. » 2
Íslendingar afslappaðir
í skipulagningu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kór Öldutúnsskóla í Hafnarfirði,
elsti starfandi barnakór landsins,
verður 50 ára í ár og af því tilefni
verða sérstakir tónleikar í Víðistaða-
kirkju á morgun, 1. maí, og hefjast
þeir klukkan 17.
Brynhildur Auðbjargardóttir hef-
ur verið stjórnandi kórsins frá því
haustið 2005, en Egill Friðleifsson,
stofnandi kórsins, stjórnaði honum
fyrstu 40 árin. Þau koma bæði til
með að stjórna kórnum á tónleik-
unum. Kórinn er tvískiptur, litli kór
fyrir nemendur í 3. og 4. bekk, og
stóri kór fyrir nemendur í 5.-10.
bekk. Brynhildur segir að um 30 til
50 börn hafi verið í kórunum á ári og
undanfarin þrjú ár hafi 90 krakkar
tekið þátt í verkefninu.
„Fyrstu árin var ekkert annað í
boði og þá vildu allir komast í kór-
inn,“ rifjar Brynhildur upp. Hún
segir að þá hafi verið valið í kórinn
eftir raddprófum, en nú stangist
kórstarfið á við svo margt annað.
„Það þarf talsvert að hafa fyrir því
að halda börnum í kór,“ segir hún,
en leggur áherslu á að krakkarnir
séu engu að síður mjög áhugasamir
og framundan sé barnakóramót
Norðurlanda í Finnlandi 13.-19. maí.
Brynhildur segir að tilviljun hafi
ráðið því að kórinn hafi verið stofn-
aður á degi heilagrar Sesselju,
verndardýrlings tónlistarinnar, 22.
nóvember 1965. „Hún hefur vakað
yfir kórnum í 50 ár,“ áréttar Bryn-
hildur.
Frumflutningur
Á efnisskrá tónleikanna eru lög úr
ýmsum áttum, sem eiga það flest
sameiginlegt að hafa verið á efnis-
skrá kórsins í áranna rás, en auk
þess verður frumflutt verkið Sancta
Caecilia sem er óður til heilagrar
Sesselju. Höfundur verksins er Bára
Gísladóttir, dóttir Brynhildar.
„Börnin okkar, sem vorum í kórn-
um, verða líka tónlistarmenn,“ bend-
ir Brynhildur á. Hún nefnir að Mar-
grét Pálmadóttir söngkona hafi
sungið í kórnum þegar hún var í
Öldutúnsskóla, og hún og konurnar
sem voru í fyrsta kórnum, 1965,
verði heiðraðar á tónleikunum. „Hún
er mjög öflug og þrjú af fimm börn-
um hennar eru í tónlist,“ segir Bryn-
hildur.
„Kórinn varð mjög frægur undir
stjórn Egils, sem fór með hann út
um allan heim,“ segir Brynhildur og
bætir við að kórinn hafi sungið í öll-
um heimsálfum nema einni, Suð-
urskautslandinu. „Hann gerði okkur
að heimsborgurum,“ bætir hún við,
en kórinn hefur komið fram á tón-
leikum og tekið þátt í fjölda kóra-
móta heima og erlendis og sungið í
útvarpi og sjónvarpi. Kórinn hefur
gefið út einn geisladisk og eina plötu
og auk þess sungið inn á marga
diska með öðrum tónlistarmönnum,
m.a. Sinfóníuhljómsveitinni.
Ungir syngjandi heimsborgarar
Kór Öldutúnsskóla í Hafnarfirði með
tónleika í tilefni 50 ára afmælis kórsins
Ljósmynd/Halla Eyberg Þorgeirsdóttir
Söngvarar Kór Öldutúnsskóla Í Hafnarfirði á æfingu í Víðistaðakirkju fyrir tónleikana á morgun og fyrir ferð til Finnlands um miðjan maí.
Kór Öldutúnsskóla hefur lagt
metnað í að flytja íslenska tón-
list og mörg íslensk tónskáld
hafa samið og útsett fyrir kór-
inn. Auk hans koma hópar með
fyrrverandi kórnemendum fram
á tónleikunum á morgun undir
stjórn Guðrúnar Árnýjar Karls-
dóttur. Ennfremur söngvarar og
fyrrverandi kórbörn, Margrét
Eir, Hanna Björk Guðjónsdóttir
og Örn Arnarson. Fjóla K. Niku-
lásdóttir syngur einsöng í nýja
verkinu en hún er fyrrverandi
Kársnesskórsbarn. Agnar Már
Magnússon leikur á píanó. Að-
gangur er ókeypis en kórinn
tekur á móti frjálsum fram-
lögum eftir tónleikana.
Kórfélagar á
öllum aldri
ELSTI BARNAKÓRINN
Ísland gjörsigraði Serbíu, 38:22, í
undankeppni Evrópumóts karla í
handknattleik í Laugardalshöll í gær-
kvöld og styrkti þar með verulega
stöðu sína í baráttunni um sæti í
lokakeppninni í
Póllandi á næsta
ári. Ísland er í
efsta sæti rið-
ilsins eftir
þennan stóra
sigur. Leik-
gleðin skein
úr hverju
andliti og
má segja að
það hafi glitt í
gamalkunnugt
íslenskt landslið að
þessu sinni. »1,3
Stórsigur og glitti í
gamalkunnugt lið