Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Page 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Page 18
Ferðalög og flakk Póstkortin lifa góðu lífi Morgunblaðið/Kristinn *Póstkort er að finna á hverju einasta torgisem ferðamenn fara um í heiminum. Póst-kort eru kannski ekki hraðvirkasta leiðintil að koma skilaboðum á framfæri en fyrirmörgum er það að senda póstkort ómiss-andi hluti af ferðalaginu. Börn hafa gamanaf að fá póstkort og jafnvel sendibréf frá fjarlægum slóðum. AFP Í höfuðstöðvum póstþjónustunnar í Gvatemala eru gömul hjól sem áður voru notuð af póstburðarfólki til sýnis. PÓSTÞJÓNUSTA UM VÍÐA VERÖLD Pósturinn kemst til skila Í München í Suður-Þýskalandi ferðast bréfberar um á reiðhjólum til að létta byrðar og komast hraðar yfir. Í Taipei í Taívan ferðast starfsfólk póstþjónustunnar gjarnan um á litlum mótor- hjólum eða vespum, enda vegalengdir talsverðar. Spænskir póststarfsmenn á Tenerife tóku sér stutt hlé frá störfum þegar ljósmyndari náði af þeim mynd. Póstkassar í sterkum, hreinum litum setja svip sinn á borgir og bæi víða um heim. Starfsmaður Magyar Posta, eða ung- versku póstþjónustunnar, afhendir bréf í Búdapest. Í Ungverjalandi eru sérstök verðlaun veitt árlega til bréfbera sem standa sig framúrskarandi vel í starfi. Í fátækrahverfinu Rocinha í Rio de Janeiro í Bras- ilíu eru bréfin afhent viðtakanda beint. Á FERÐALÖGUM ER GAMAN AÐ VEITA MANNLÍFINU ATHYGLI. ÞRÁTT FYRIR ALLA NÚTÍMATÆKNI Í SAMSKIPTUM ÞÁ ER ENN BORINN PÓST- UR Í HÚS UM HEIM ALLAN. BRÉFBERAR GEGNA VEIGAMIKLU HLUTVERKI Í SAMFÉLÖGUM HEIMSINS OG KOMA MEÐAL ANNARS PÓSTKORTUNUM SEM VIÐ SENDUM Á FERÐALÖGUM TIL SKILA. GLEYMUM EKKI AÐ SKOÐA PÓSTKASSA OG FYLGJAST MEÐ ÞVÍ HVERNIG BRÉFBERAR FERÐAST Í BORGUNUM SEM VIÐ HEIMSÆKJUM. Í þorpinu Spreewald suður af Berlín þarf sums staðar að notast við báta til að koma póstinum í póstkassa íbúanna. Í þorpinu eru meira en 200 síki og lífríkið þar er friðlýst af UNESCO.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.