Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2015
Ferðalög og flakk
Írsku mannvinirnir í U2 hafa um langt árabil verið eitt allra stærsta tónleikaband í heimi.
Í
slendingar eru tónlistarþjóð og hafa
löngum verið tilbúnir að leggja mikið á sig
til að sjá uppáhaldstónlistarmennina sína á
sviði. Enda birtast þeir ekki hér í fásinn-
inu á hverjum degi. Svo virðist sem fólk sé að
bæta í fremur en hitt. „Það hefur verið gríð-
arleg aukning í tónleikaferðum síðustu tvö ár-
in,“ segir Þór Bæring Ólafsson hjá ferðaskrif-
stofunni Gaman ferðum sem er mjög
afkastamikil á þessu sviði ferðalaga.
Spurður hvað valdi þessu nefnir Þór upp-
safnaða þörf landsmanna til að ferðast til út-
landa og vaxandi áhuga á því að slá tvær flug-
ur í einu höggi, það er að ferðast og gera
eitthvað ógleymanlegt í leiðinni, eins og að
fara á tónleika með uppáhaldstónlistarmann-
inum sínum.
Fjölmargar tónleikaferðir eru á döfinni hjá
ferðaskrifstofunni Gaman ferðum á komandi
mánuðum. Má þar nefna tónleika með Paul
McCartney, Take That, Foo Fighters,
Fleetwood Mac, One Direction, Ed Sheeran,
AC/DC, Madonnu og U2. Allir koma þessir
listamenn fram í O2-höllinni í Lundúnum.
Allir aldurshópar
Þór segir alla aldurshópa sækja í tónleikaferð-
ir. Allt frá börnum upp í ellilífeyrisþega. „Það
var einn að spyrjast fyrir um miða á Fleetwo-
od Mac hjá okkur um daginn. Hann kvaðst
hafa sett sér ákveðin markmið þegar hann
varð sjötugur, eitt af þeim var að sjá Fleetwo-
od Mac á sviði,“ segir Þór.
Sjálfur fór hann með hóp ungmenna, eink-
um stúlkna, á strákabandið One Direction í
Lundúnum í fyrra. „Margar mæður fylgdu
dætrum sínum í þá ferð. Ég var eini pabbinn
og hef eflaust litið út fyrir að vera besti pabbi
í heimi. Dóttir mín var alla vega mjög ánægð
með mig,“ segir hann hlæjandi.
Hóparnir eru misjafnlega stórir.
Allt frá tíu manns upp í tvö
hundruð en allt útlit er fyrir að
svo margir Íslendingar stefni
skónum á tónleika U2 í
Lundúnum í október á
vegum Gaman ferða.
Algengur fjöldi er þrjá-
tíu til fimmtíu manns.
Flestir tónleikar sem
Gaman ferðir skipuleggja
fara fram í O2-höllinni í
Lundúnum en Þór segir
ferðaskrifstofuna hæglega
geta skipulagt ferðir annað.
Þá sé æskilegt að frum-
kvæðið komi frá við-
skiptavinunum sjálfum, ein-
hver hópur taki sig saman og
Gaman ferðir útbúi svo pakk-
ann. „Þannig skipulögðum við
ferð á Katy Perry í Berlín í
mars og höfum líka farið með
hópa til Parísar og víðar,“
segir hann.
Þór segir yfirleitt hægt að
koma ferðum af þessu tagi í
kring. Stöku tónleika sé þó
erfitt eða ómögulegt að fá
miða á. „Við verslum bara
við aðila sem við treystum
100 prósent. Annað er ekki
í boði.“
Imagine Dragons í
Manchester
ÍT ferðir hafa líka skipu-
lagt margar tónleikaferðir gegn-
um tíðina. Hörður
Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri ÍT ferða,
segir slíkar ferðir alltaf vin-
sælar. ÍT ferðir hafa meðal ann-
ars gert Íslendingum kleift að sjá
goðsagnir eins og U2, Paul
McCartney og Tinu Turner. Ein
tónleikaferð er á döfinni hjá ÍT
ferðum á þessu ári. Ferð á tón-
leika með hljómsveitinni Imagine
Dragons í Manchester Arena í
Manchester 13. nóvember.
„Þetta stórgóða tónleikaband
verður að túra um Evrópu á
þessum tíma til að fylgja eftir
plötunni sinni Smoke + Mir-
rors. Meðal frægustu laga
Imagine Dragons eru: Ra-
dioactive, sem hlaut
Grammy-verðlaunin, De-
mons, I Bet My Life og
It’s Time,“ segir Hörður.
Hann segir auðvelt að
bregðast við og skipu-
leggja ferðir á tónleika
setji fólk sig í samband
við ferðaskrifstofuna.
„Okkur þykir alltaf betra
að vera komin með kjölfestuhóp, fimm til tíu
manns, áður en lengra er haldið. Sá hópur
stingur þá upp á ferð og við könnum mögu-
leikana og hlöðum utan á hópinn,“ segir Hörð-
ur.
Tónleikahátíðir alltaf vinsælar
Að sögn Harðar hafa ÍT ferðir góðan aðgang
að tónleikahöldurum í Evrópu og víðar og til-
tölulega einfalt sé að setja saman pakkaferðir,
það er flug, gistingu og miða á tónleika.
Meðal fararstjóra í tónleikaferðum ÍT ferða
hafa verið tónlistarfrömuðirnir Ólafur Páll
Gunnarsson, Óttar Felix Hauksson og Sig-
urður Sverrisson.
Icelandair býður líka upp á sérstakar tón-
leikaferðir. Fyrr í þessum mánuði var farið til
Glasgow að sjá gömlu brýnin Paul Simon og
Sting saman á sviði. Uppselt var í þá ferð. Í
lok maí verður síðan farið að sjá Paul
McCartney í Birmingham. Uppselt er í þá
ferð líka.
Það eru ekki bara stakir tónleikar sem
draga til sín íslenska tónlistaráhugamenn.
Tónleikahátíðir eins og Hróarskelda, Gla-
stonbury og Wacken hafa gert það í áraraðir
líka.
Síðan er bara að gefa hugmyndafluginu
lausan tauminn. Láta drauminn rætast.
SÍFELLT FLEIRI LÁTA DRAUMINN RÆTAST
Tónleikaferðum vex
fiskur um hrygg
Poppdrottningin
Madonna hrein-
lega neitar að eld-
ast og slær aldrei
af á tónleikum.
TÓNLEIKAFERÐUM TIL ÚTLANDA HEFUR VAXIÐ FISKUR UM HRYGG UNDANFARIN MISSERI
OG FRAMBOÐIÐ MIKIÐ Á KOMANDI MÁNUÐUM. BREIDDIN ER LÍKA MERKILEGA MIKIL.
TÓNLEIKAÞYRSTIR GETA SÉÐ ALLT FRÁ NÝSTIRNUM Á BORÐ VIÐ ONE DIRECTION OG ED
SHEERAN YFIR Í GOÐSAGNIR EINS OG AC/DC, MADONNU OG U2.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is