Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Blaðsíða 24
ÍSLANDSMÓTIÐ
PEPSÍ-DEILD KARLA Í KNATTSPYRNU 2015
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánud. 27. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is | Sími: 569-1105
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
1.maí gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um Íslandsmótið í
Pepsí-deild karla í knattspyrnu sumarið 2015.
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2015
Heilsa og hreyfing
V
eturinn er liðinn og eins og
alltaf eru ákveðnar
straumar og stefnur á
nýju heilsusumri að verða
áberandi. Víða um heim er skrifað
um hvaða ávextir verða heilsuávext-
irnir, hvernig hreyfingu skal stunda
og hvernig á að ná beislum á
streitu. Ef við skoðum það sem er
mest áberandi í heilsutengdum
skrifum eru hér nokkur atriði sem
er greinilega „nýjasta tískan“.
Granatepli. Fræ granatepla eru
ljúffeng í hvers kyns sumarsalöt.
Þau eiga að vinna gegn streitu, liða-
gigt og jafnvel getuleysi samkvæmt
breskum rannsóknum. Allra nýjustu
rannsóknir, ísraelskar, sýna að þær
lækka kólesteról og koma í veg fyr-
ir hjartasjúkdóma. Það dugar líka
vel að drekka granateplasafa og ½
glas á dag. Safinn er ríkur af A, C
og E vítamínum sem og járni.
Jákvæðni. Það er margsannað að
jákvætt hugarfar getur gert
kraftaverk og með hækkandi sól
finna margir til meiri bjartsýni
en talsvert er skrifað um það
þessa dagana að jákvæðni geti
gagnast fólki í að ná markmiðum
sínum. Þannig er algengt að fólk
verði jafnvel stressað við það að
hugsa um að það sé stressað. Í stað
þess að nefna líkamlegt ástand sitt
„stress“ gæti gagnast að nefna það
einfaldlega nýjum nöfnum. Líta á
stressið sem einfaldlega tilhlökkun.
Á sama hátt má reyna að finna nei-
kvæðum tilfinningum jákvæðari
heiti. Ef fólk fer út að skokka getur
líka munað miklu að brosa og hugsa
um eitthvað fyndið eða hlusta á eitt-
hvað fyndið, þetta á að vera
skemmtiskokk ekki píslarhlaup.
Hreyfing með
fjölskyldunni
en ekki skokk-
hópnum.
Sófa-
kartöflurnar eru hvattar til að fara
út að skokka, hjóla og synda og fé-
lagsskapur er þar lykilatriðið. Hins
vegar er fjölskyldufólk hvatt til að
flækja þetta ekki og dauðleita að
skokkhóp heldur fara út með krökk-
unum að skokka og hreyfa sig.
Vissulega er hraðinn kannski minni
og vegalengdirnar styttri en mörg-
um hentar það jafnvel betur og eng-
inn þarf að hafa samviskubit yfir
fáum samverustundum með fjöl-
skyldunni.
Að rækta í litlum pottum. Það er
ekki lengur afsökun að eiga engan
garðskika til að segjast ekki getað
ræktað smá grænmeti eða myntu í
garðinum. Enda er allra smartast í
sumar að vera með lítil ker, potta
eða aðeins stærri kassa undir rækt-
unina, á svölum eða á því svæði sem
hægt er að setja út á eitthvað
grænt og vænt. Garðrækt er tísku-
hugleiðsla sumarsins.
Vinsælustu teygjurnar á inter-
netinu.
Mikið er skrifað um FitnessBlender
þessa dagana en á Youtube er hægt
að nálgast æfinga- og teygjupróg-
römm, ótal mörg talsins og mismun-
andi eftir því hvernig líkamlegt
ástand manns er. Það eru banda-
rísku þjálfararnir Trainers Daniel
og Kelli Segars sem eiga heiðurinn
að þessum myndskeiðum en þar er
hægt að fara í jafnvel 40 mínútna
þolfimitíma. Teygjumyndskeiðin
þykja þá alveg frábær.
ALLS KONAR HÆGT AÐ GERA Í SUMAR
Heilsustraumar
sumarsins
Fjölskyldufólk ætti að drífa fjölskylduna út að hlaupa í sumar og hvíla skokkhópinn í sumarfríinu. Þannig verða fleiri
samverustundir til og það læra börnin og temja sér sem fyrir þeim er haft – þar með er talin holl hreyfing.
Getty Images/iStockphoto
Í SUMAR ÞYKIR FÍNASTA FÍNT AÐ BORÐA GRANATEPLI,
RÆKTA KRYDDJURTIR SÉR TIL LÍKAMLEGRAR OG AND-
LEGAR HEILSUBÓTAR OG SKOKKA MEÐ FJÖLSKYLDUNNI
EN EKKI SKOKKHÓPNUM.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Því miður er oft erfitt að ná vondri lykt úr fötunum sem við svitnum í í ræktinni. Benda má á
að það á alls ekki að nota mýkingarefni í íþróttaföt, það hindrar að svitalyktin fari úr. Gott ráð
er aftur á móti að leggja fötin í kalt vatn, blandað saman við smávegis af hvítvínsediki í um hálf-
tíma áður en þau eru sett í þvottavélina. Hlutföllin 5 lítrar vatn á móti ½ bolla af ediki.
Íþróttafötin þvegin
Badminton þykir mörgum
skemmtilegur sumarleikur og snið-
ugt að strengja net þvert yfir
garðana í sumar til að nýta í bad-
mintonspil en þau fást orðið víða í
nokkrum gerðum og er hægt að
nýta þau í fleiri boltaleiki um leið,
svo sem til að spreyta sig á blaki.
Badmintoníþróttin hérlendis er
þó vissulega óháð veðri og hægt að
æfa hana áfram eftir að hausta fer
þar sem mörg íþróttafélög bjóða
upp á badmintonæfingar innandyra.
Fyrir þá sem ætla ekki að spila
badminton endilega undir hand-
leiðslu þjálfara má benda að á
dönsku badmintonsíðunni badmin-
tonsiden.dk, er hægt að finna ýmsa
skemmtilega badmintonleiki og æf-
ingar sem má spreyta sig á. Síðan
er að sjálfsögðu á dönsku en flestir
ættu að geta bjargað sér á henni.
Eitt það fyrsta sem gæti þó
gagnast þeim sem eru að spila bad-
minton vel er þetta: Haltu spað-
anum alltaf uppi úti á vellinum en
ekki láta hann hanga niður. Annars
þarftu alltaf að eyða tíma í að byrja
á að lyfta honum upp til að bregð-
ast við skotum mótherja þíns.
SKEMMTILEGT FJÖLSKYLDUSPORT
Það er sérlega hressandi að spila badminton utandyra.
Brátt hægt að spila
badminton úti