Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Page 64
SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2015
Fiðluleikarinn Sif Margrét Tulinius frum-
flytur verkið Praesentia eftir Huga Guð-
mundsson í Salnum í Kópavogi á þriðjudags-
kvöldið. Á tónleikunum, sem hefjast kl.
19.30, munu Sif og píanóleikarinn Anna
Guðný Guðmundsdóttir einnig flytja Sónötu í
Es-dúr opus 12 no. 3 og Sónötu í A-dúr opus
30 no. 1 eftir Ludwig Van Beethoven.
Hugi segir verkið, Praesentia, upphaflega
hafa átt að vera með töluverðri elektróník
sem undirleik og var sá partur unninn úr
Beethoven-fiðlusónötunum. Þegar leið á ferl-
ið hafi elektróníkin vikið að fullu til að búa
til meira pláss fyrir fiðluna. Þá hafi hann
neyðst til að horfast í augu við ævilanga
hræðslu sína fyrir því að skrifa fyrir ein-
leikshljóðfæri. Verkið er samið sérstaklega
fyrir Sif Margréti.
Í upphafi tónleikanna fjallar Árni Heimir
Ingólfsson um verk Beethovens sem og nýja
verkið sem frumflutt er á tónleikunum.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð Sifjar
og Önnu Guðnýjar sem ber yfirskriftina
Tveir+einn. Á fimm tónleikum munu þær
stöllur taka fyrir fiðlusónötur Beethovens
auk þess sem Sif frumflytur verk fyrir ein-
leiksfiðlu eftir íslenskt tónskáld.
Hugi Guðmundsson tónskáld samdi verkið sérstaklega fyrir Sif.
NÝTT VERK FRUMFLUTT
Í SALNUM
Horfst í
augu við
hræðsluna
Sif Margrét Tulinius fiðluleikari hefur umsjón með tónleikaröðinni.
Fulltrúi ungu kynslóðarinnar
1970 var valin Guðbjörg Aðal-
heiður Haraldsdóttir, sextán ára
gömul til heimilis á Hraunteigi
24 í Reykjavík. Kjörið fór fram á
skemmtun í Austurbæjarbíói um
miðjan apríl.
Í frétt Morgunblaðsins um
kjörið kom fram að fimm manna
dómnefnd hafi valið Guðbjörgu
eftir að hafa rætt við stúlkurnar
ýmis mál og kynnst þeim per-
sónulega. Bryndís Schram hafði
orð fyrir dómnefndinni og sagði
hún meðal annars, að Guðbjörg
hefði orðið fyrir valinu sér-
staklega fyrir þá sök, að hún
notaði ekki andlitsfarða, og væri
alveg einstaklega eðlileg í fram-
komu. Þess má geta að Guðbjörg
las upp frumort ljóð á
skemmtuninni en stöllur hennar
höfðu ýmist valið sér söng, dans
eða píanóleik til að sýna hæfi-
leika sína.
GAMLA FRÉTTIN
Fulltrúi
ungu kyn-
slóðarinnar
Stúlkurnar sem tóku þátt í keppninni: Fyrir framan, f.v.: Margrét Hall-
grímsson og Elín Gestsdóttir. Fyrir aftan, f.v.: Kristjana Ólafsdóttir, Guð-
björg Aðalheiður Haraldsdóttir, Þóra Berg og Ásgerður Flosadóttir.
Morgunblaðið/Kr. Ben.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Eiríkur Arnar Magnússon
myndlistarmaður
Þorvaldur Örlygsson
knattspyrnuþjálfari
Tim Brithén
landsliðsþjálfari í íshokkí
GO CRAZY
25%
af öllu*
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
LAUGARDAG 18/4
& SUNNUDAG 19/4
*Gildir ekki um vörur á áður lækkuðu verði og merktum
Everyday low price. Afsláttur reiknast á kassa.
NÚ
97.425
Lissabon-sófi. Tveggja sæta. Áður 129.900kr.
NÚ
5.246
Black tree-rúmföt. Áður 6.995kr.
NÚ
12.675
Stuff-poki fyrir þvott.
Áður 2.995kr.
Razor-barstóll. Áður 16.900kr.
NÚ
2.246
Sumarið
ERUM Á FULLU AÐ TAKA UPP
NÚ
18.675
Copenhagen-stóll.
Áður 24.900kr.