Reykjalundur - 01.06.1971, Blaðsíða 10
fríður Jónsdóttir, sem hingað var ráðin
nokkrum mánuðum eftir að starfsemin hér
hófst, lét af störfum 1965 sakir heilsubrests.
Þessum mætu konum stendur Reykjalund-
ur í mikilli þakkarskuld við, fyrir frábæra
stjórn og ráðdeildarsemi í hvívetna.
Þá var Árni Einarsson ráðinn hingað
árið 1948, fyrst sem meðframkvæmdarstjóri
með Oddi og nokkru síðar tók hann við
öllu framkvæmdastjórastarfinu og er það
enn, svo hann hefur verið starfsmaður yfir
tvo áratugi, og rækt starf sitt af frábœrum
dugnaði, stjórnsemi og hyggindum, svo að
jafnvel einstæða má teljast.
Eg hafði mikinn hug á að nefna fleiri
nöfn í sambandi við stjórn og starfrækslu
Reykjalundar, en því miður leyfir tími
minn það ekki, en ég veit, að þegar skráð
verður saga Reykjalundar, verða þar skráð
með gullnu letri nöfn mannanna Ólafs
Björnssonar, Sigurleifs Vagnssonar, Ásbergs
Jóhannessonar, Sigurðar Jónssonar, Þórðar
Benediktssonar, Þorleifs Eggertssonar,
Björns Guðmundssonar, Eiríks Alberts-
sonar, Höskuldar Ágústssonar, Ástmundar
Guðmundssonar o. fl. o. fl.
Ég hefi aðeins stiklað á því stærstta í
stofnun og uppbyggingu þessa merka stað-
ar, en af svo mörgu og miklu hefur verið
að taka, að hræddur er ég um, að mér hafi
yfirsézt margt, sem ég hefði átt að segja.
Áheyrendur góðir! Ég hefi kannski þreytt
ykkur um of, en sagan um stofnun Reykja-
lundar er svo löng, að þetta hefur aðeins
verið brot af þeirri sögu, og erliðast hjá
mér hefur verið, hvað skyldi valið og
hverju sleppt.
Að lokum leyfi ég mér svo að ljúka ræðu
minni með sömu orðum og ég viðhafði
fyrir tveimur áratugum, Jrá er aðalbygg-
ing staðarins var tekin í notkun:
Megi andi friðar og réttlætis — velgengni
og ánægju — gleði og góðrar heilsu hér
ávallt ríkja.
Megi Guðsblessun ávallt vera með stað
Jressum og öllum störfum, sem hér eru
unnin.
Þökk fyrir áheyrnina.
REYKJALUNDUR
Séð yfir byggöina undir Reykjafjalli
10
REYKJALUNDUR