Reykjalundur - 01.06.1971, Side 12

Reykjalundur - 01.06.1971, Side 12
hefur verið útrýmt í þessum hluta lieims með ónæmisaðgerðum. Þannig mætti lengi rekja ýmsa sjúkdóma og kvilla, sem áður herjuðu á fólk til ör- kumlunar, en eru nú úr sögunni. Hinsvegar virðast aðrir sjúkdómar komnir þeirra í stað, hafandi annað svipmót og skapandi annars konar vandamál en áður fyrr voru til. Þessi vandamál eru nútímafólki kunn og verða ekki rakin hér nema að því leyti, sem þau eru samstæð atriðum, sem líkleg eru til að verða ofarlega á baugi i famtíð- inni. Hægt er að flokka þá, sem þarfnast end- urhæfingarþjónustu í þrjá meginhópa: 1) Þeir, sem hafa til að bera meðfædda örorku. 2) Þeir, sem veikzt hafa og bera varan- legar örorkumenjar eftir sjúkdóminn. 3) Þeir, sem bera slíkar menjar eftir slys. Að vissu leyti er óþarft að greina á milli annars og þriðja hópsins, þar eð endanlega standa báðir hóparnir svipað að vígi með hliðsjón af hinni varanlega skertu orku. Eg tel þó ástæðu til að greina þarna á milli af ýmsum ástæðum. Hins vegar hefur fyrsti hópurinn algera sérstöðu gagnvart hinum tveimur. í stuttu máli er spá mín sú, að hlutfallslega aukist verulega fjöldi þeirra, sem til fyrsta hópsins teljast. Að tala þeirra, sem heyra til öðrum hópnum, lækki nokk- uð, en fjöldi í þeim þriðja standi að mestu í stað. Meðfædd örorka. Tvímælalaust eru margar og ólíkar ástæð- ur til þess, að nú ber meir en nokkru sinni fyrr á einstaklingum, sem vaxa úr grasi með meðfædda líkamlega og/eða and- lega örorku. Sumar ástæðanna eru kunnar, aðrar ekki. Nefna má sem dæmi um óþekkt- ar ástæður, að eigi er vitað, hví fleiri börn hafa fæðst á síðasta áratug með klofinn (opinn) hrygg en áður. Þekktar eru hins vegar ýmsar ástæður fyrir margvíslegum útlimaaflögunum eða útlimavöntun af völd- um efna, sem mæður hafa neytt á vissum tíma meðgöngu. Einnig er þekkt skaðleg verkan rauðra hunda á fóstur. Ýmsar ástæður fyrir sköddun miðtaugakerfis í nýfæddum eru einnig þekktar, en hvað sem líður beinum ástæðum til fjölgunar þeirra, sem meðfædda örorku liafa, er vel kunnugt um ýmsar meðvirkandi orsakir. Þar má sérlega nefna, að nú tekst betur og betur að halda lífi í líflitlum og veik- burða fæddum börnum. Dánartala ný- fæddra lækkar. Ennfremur eru ýmis ráð tiltæk nú til að forða börnurn með með- fædda örorku frá fylgikvillum og lífshættu- legu líffæratjóni. Þessar og aðrar óbeinar ástæður leggja sitt af mörkurn til fjölgunar einstaklingum, sem fæðast og vaxa upp með ýmislega meðfædda örorku. Stærsta heildin innan hópsins eru hin svokölluðu „heilasködduðu börn“. Sködd- un miðtaugakerfis gerist ýmist í móður- kviði, í fæðingu eða strax eftir fæðingu. Staðsetning og útbreyðsla sköddunar í mið- taugakerfi er að sjálfsögðu mismunandi, og því eru sjáanleg merki sköddunarinnar einnig mjög misjöfn frá einu barni til annars. Það getur verið urn að ræða smá- vægilega truflun á hreyfingu eins útlims eða fleiri og allt upp í algera lömun bols og litlima samfara skerðingu á einum eða fleirum sviðum andlegra eiginleika. Það hefur löngum verið vitað, að börn með meðfædda sköddun á miðtaugakerf- inu skapa sérlega margbrotið, örðugt og langvinnt meðferðar- og umönnunarvanda- mál. Einkanlega gildir þetta um börn, sem hafa skertar líkamshreyfingar og jafnframt truflun á starfsemi eins eða fleiri skynfæra. Þannig er talað um „fjölfötluð börn“: börn, sem hafa skertar líkamshreyfingar, en einn- ig t. d. sjóntruflanir, heyrnartruflanir, tal- 12 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.