Reykjalundur - 01.06.1971, Page 42

Reykjalundur - 01.06.1971, Page 42
um forystumönnum innan félagsins, en í fremstu röð þeirra var ávallt Ólafur Sveins- son. Hann var einn af stofnendum Berkla- varnar í Vestmannaeyjum og í stjórn fé- lagsins alla tíð, lengst af sem féhirðir. Hinn víðkunni og snjalli formaður félagsins, um fjölmargra ára skeið, frú Alda Björnsdótt- ir, lét Jress þráfaldlega getið, að ágætari sam- starfsmann að Jrjóðnytjamálum hafi hún aldrei kynnzt. Síðasta berklavarnardag, sem hann lifði, lá hann fársjúkur á sjúkrahúsi í Reykja- vík. Þrátt fyrir það var hugur hans við söfnunina lieirna. Fréttir af árangrinum varð að flytja honum jafnóðum og á dag- inn leið og ekki mátti hann hvíldar njóta fyrr en lokatölur um góðan feng lágu fyirir á síðkvöldi. Þannia var hugur hans í garð félagsins okkar. Sá, er Jressar línur párar, átti því láni að fagna að þekkja og umgangast ])enna dáðadreng allt frá árinu 1923. Staddur um borð á g.s. íslandi í Vest- mannaeyjahöfn á Jrví ári, hitti hann fyrir nokkra unga Eyjamenn og gaf sig á tal við einn Jreirra, vegna Jress hve gjörfilegur hann var og broshýr og með augu, sent hlógu af lífsgleði. Þarna var Ólafur Sveinsson lif- andi kominn, og þannig var um allt sitt fagra lífsskeið. Logandi af áhuga var hann að segja mér frá nýju íþróttafélagi, sem hann og nokkrir jafnaldrar hans hefð'n stofnað til Jress að veita hinn gamla íþrótta- félagi, Þór, keppni. — Það þarf að skapa keppni og metnað í hverju sem er, sagði hann, ef góður árangur á að nást. Og svo sannarlega hefir Týr, félagið hans, veitt bróðurfélaginu harða og langa keppni, allt til þessa dags. Ekki grunaði mig Jrá, að hann ætti eftir að stofna til nýs menningar- félags í Eyjum og veita því eigi minni áhuga og lramtakssemi og að við ættum eltir að vera samstarfsmenn að Jrví starfi um ára- tuga skeið. Eftir áralanga samleið með honum, komst ég að raun um, að hið drengilega og bjarta bros og hlátur augna hans, var meira en eitt „augnabliks glampandi glit“, heldur var það hans bjarta sál, sem lýsti af ásjónu hans. Þar innifyrir var hlýja nóg og birta, sent nægði stóru umhverfi, enda bar Jrar aldrei fölskva á. Gott var að eiga Ólaf að vini og mikið lán var Jrað S.Í.B.S. að hafa átt og notið áhuga hans, framtaks og vinsælda við upp- byggingu okkar mikla félags, allt frá stofn- un Jress. Ekki á ég orð á tungu minni til að tjá honum, svo verðugt sé, heilan ]:>akk- arhug félagsins, Jdví að sannarlega er hlutur hans að gengi S.Í.B.S. eigi lítill. Frá unga aldri var Ólafur í þjónustu bæjarfélags Vestmannaeyja. Fyrst sem verk- stjóri við grjótnám bæjarins í Herjólfsdal. Síðan gerðist hann sjóveitustjóri og ann- aðist það starf til ársins 19(50. Það ár var hann skipaður heilbrigðisfulltrúi bæjarins. Því starli gegndi hann til dauðadags við mikið lof og fágætar vinsældir. Mannskaði mikill varð við fráfall Ólafs. Bæjarfélagið missti starfsmann ágætan og fyrirmyndar borgara. S.Í.B.S. missti einn af sínum beztu og elztu félögum og braut- ryðjanda, og heimili hans ástríkan og styrk- an föður og verndara. Aldrei vildi Ólafur hlýða á harmatölur, enda munu þær eigi Jruldar hér, og svo er Jrað lögmálið algilda, að þeir einir hljóta að missa, sem eiga. Alúðarfyllstu samúðarkveðjur flytur S.Í.B.S. elskaðri eiginkonu hans og dug- miklu stoð að öllum dáðum, einnig fjöl- skyldu hans og ástvinum öllum. Arfinn, sem S.I.B.S. hlaut eftir göfugan vin og samherja, mun Jrað leitast við að varðveita og ávaxta að verðleikum. F. h. S.Í.B.S. Þórður Benediktsson. 42 REYK JALUNDUR

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.