Húnavaka - 01.05.1963, Qupperneq 28
26
HÚNAVAKA
að í brunaharðindum og hafísárum fyrri alda voru þessi héruð
stundum undir sömu sök seld sem aðrar byggðir norðanlands og
austan.
Að sunnan eru landamæri á heiðum, og var áður talið, að milli
Húnavatnssýslu og Árnessýslu væru merki við Hvítá og Hvítárvatn.
Nú mun hins vegar talið, að merki séu um Blönduupptök við Hofs-
jökul og Há-Kjalhraun.
Milli Húnavatnssýslu og Borgarfjarðarbyggða hefur nú verið lögð
girðing nálægt merkjum af Holtavörðuheiði austur í Langjökul.
Öll hin víðlendu heiðalönd eru á þessu svæði mjög grösug, eftir
því sem gerist um okkar hálendi.
Urmull af vötnum og tjörnum og kvíslum er á þessu svæði, og
víða góð silungsveiði.
Af öðrum gæðum okkar góða héraðs má nefna æðarvarp og fleiri
eggver, selveiði og all mikinn trjáreka. Eru þau hlunnindi einkum
á Skaga norðanverðum, í Eyjareyju, Þingeyrasandi og Vatnsnesi
beggja vegna.
Alls er byggt land Húnavatnssýslu talið 2698 ferkílómetrar. Af-
réttir eru taldar 3194 ferkílómetrar og óbyggðir, þ. e. gróðurlaust
land á fjöllum og heiðum, 1872 ferkílómetrar. Þetta er samtals 7764
ferkílómetrar.
Sagan og fólkið.
Húnavatnssýsla er eitt af sögufrægustu héruðum landsins. Þar
voru líka fyrr á öldum tvö af helztu fræðasetrum þjóðarinnar: Þing-
eyrar og Breiðibólstaður í Vesturhópi. Munu þar margar okkar
fornsögur ritaðar og fleiri hinna eldri rita. En höfundarnir voru
svo frásneyddir öllu yfirlæti, að þeir létu ekki nafna sinna við getið.
Meðal landnámsmanna og afkomenda þeirra á næstu tímum var
fjöldi merkra nranna og nrikilla skörunga í Húnavatnssýslu, og
hefur eðlisarfur þeirra áreiðanlega lifað góðu lífi í því lréraði fram
á þenna dag. Héraðið naut líka þeirrar gæfu á mestu óróatímum
sögunnar, svo sem Sturlungaöld, að fólkið Jrar var ekki brytjað
niður af herflokkum eins og átti sér stað í sumum öðrum héruðum.
Sú hefur og líka orðið raunin á síðari tínrum, að flestar stéttir hafa
fengið sína skörunga úr Húnavatnssýslu. Engin stétt þó kannski
eins og læknastéttin. Þaðan koma þeir Guðmundarnir Jrrír: Björns-