Húnavaka - 01.05.1963, Blaðsíða 36
34
HÚNAVAKA
Eru þó 3 yztu bæir að austan skildir eftir þar og 2 fremstu bæir í
dalnum vestanverðum.
Það er fyrir löngu kunnugt, að allir keppa eftir því að fá aðgang
að raforku. Svo mikilsverð eru þau þægindi. Þeim sem verða út-
undan eða verða lengi að bíða sárnar eðlilega. Þeirra vanda verður
að leysa svo fljótt sem unnt er. Hitt er ljóst, að nú þegar hafa orðið
miklar framfarir í Húnavatnssýslu einnig á þessu sviði, og er það
mikilsvert.
Lokaorð.
Það var tekið fram og færð rök að í upphafi þessa máls, að Húna-
vatnssýsla er fyrir margra hluta sakir eitt af beztu og fegurstu hér-
uðum þessa lands. Frá landnámstíð og fram yfir síðustu aldamót
var þetta góða hérað háð sömu lögum og flest önnur, að því leyti,
að þar voru framkvæmdir litlar og ódýrar. Fólkið var nægjusamt
um húsakost og alla aðbúð. Gæði landsins notuð til hins ítrasta og
hvergi lagt út á hálar brautir með notkun lánsfjár til hinna dýrari
framkvæmda, enda vart um lánsfé að ræða. En þrátt fyrir þetta
voru flestar sveitir Húnavatnssýslu, eða jafnvel allar, oftast miklu
mannfleiri en nú er orðið.
Þær skýrslur og hugleiðingar, sem hér að framan eru birtar sýna
það og sanna, að nú er okkar góða sýsla gagn ólík því sem var fyrir
50 árum. Það tímabil, og einkum síðari hluti þess, er meira fram-
faratímabil í þessari sýslu en allar aldir áður frá því land byggðist.
Þetta byggist á húsabyggingum úr varanlegu efni, stórstígum
jarðræktarframkvæmdum, og samgöngubótum á landi, á sjó og í
lofti, og ekki má því gleyma, að hvert einasta heinrili í sýslunni
hefur nú símasamband við umheiminn. Þau ein heimili eru undan-
skilin, sem hafa ekki kært sig um þessi þægindi. — Rafmagnið er
líka mikil framför.
Allt þetta hefur gerbreytt ástandinu. Lifnaðarhættir héraðsbúa
eru gagn ólíkir því, sem áður var; auðveldari á ýmsan máta og ör-
uggari en fyrr á öldum.
En framkvæmdirnar eru dýrar. Þægindin kosta mikið. Útgjöld á
öllum sviðum hafa hækkað ískyggilega, skuldir eru miklar o. s. frv.
Allt eru það afleiðingar þess, að sú kynslóð, sem nú lifir hefur verið
bjartsýn á framtíðina. Hún hefur lagt hart að sér og fórnað miklu