Húnavaka - 01.05.1963, Side 77
HÚNAVAKA
75
sem meðal annars fór fram íþróttakeppni. En síðan 1946 hefur
USAH ætíð haldið Héraðsmót á Blönduósi þ. 17. júní ár hvert og
þar nreð annast um franrkvæmd hátíðahalda í héraðinu á þjóðhá-
tíðardaginn. Hefur íþróttakeppnin staðið yfir í tvo til þrjá daga.
Fjöldi keppenda verið mikill og engin aðstaða til að keppa nema
í mest tveimur íþróttagreinum samtímis.
Eftir að Héraðsmótin voru endurvakin hafa frjálsar íþróttir svo
að segja verið einráðar í íþróttaiðkunum Sambandsíélaganna, auk
lítilsháttar knattspyrnuæfinga í sumum félögunum. Síðastliðin sjö
ár hefur USAH verið meðlimur í ÍSÍ. Nú í seinni tíð hefur Sam-
bandið leitazt við að liafa íþróttakennara á sínum vegum einhvern
tíma á vori hverju, sem ferðazt hefur um milli Sambandsfélaganna
til þjálfunar og leiðbeiningar fyrir íþróttafólkið. Hefur það starf
oft komið að góðum notum, Jió að tímaskortur og vorannir hamli
alltaf að íjrróttakennslan sé í nógu góðu lagi í hinum dreifðu
byggðum.
USAH hefur tekið þátt í nokkrum Landsmótum UMFÍ og kom-
ið mjög við sögu einkum á tveimur hinum síðustu og verið þar í
fremstu röð í frjálsíþróttakeppni Héraðssambandanna. í íjrrótta-
flokki UMFÍ, sem keppti við aðra ungmennafélaga Norðurlanda í
Vejle í Danmörku sumarið 1961, átti USAH fimm þátttakendur.
Var sú för hinum íslenzku ungmennafélögum ógleymanleg. Þeir
náðu ágætum árangri og ferðin til sæmdar á allan hátt.
Hin síðari ár hefur USAH oft keppt við nálæg Héraðssambönd,
ýmist þegið boð eða endurgoldið. Keppt hefur verið við Dalamenn,
Strandamenn, Borgfirðinga og Akurnesinga. A ýmsu hefur oltið
með sigur eða ósigur, styrkleiki keppenda verið svipaður og keppni
jöfn og hörð, en jafnan drengileg af allra hálfu. Þessi kappmót hafa
mikið gildi fyrir íþróttastarfsemina, enda njóta þau mikilla vin-
sælda meðal íþróttaunnenda. Er nauðsyn að efla þá starfsemi.
Á síðustu árum hefur íþróttafólk USAH oft tekið þátt í ýmsum
íþróttamótum á landi hér t. d. Meistaramóti íslands, Meistaramóti
Norðurlands, Kvennameistaramóti íslands, Unglinga- og drengja-
meistaramótum o. fl. Hafa keppendur USAH vakið þar verðskuld-
aða athygli og nú á Sambandið íslandsmeistara innan sinna vé-
banda.
Hér er hvorki staður né stund til að telja einstök afrek, þó að
freistandi væri að nefna ýmis nöfn og árangur. Þó skal þess getið að
L