Húnavaka - 01.05.1963, Qupperneq 79
HÚNAVAKA
77
vegis. Ýmis félög mætti nefna, sem lagt hafa þar hönd að verki svo
sem Leikfélag Blönduóss, UMF Fram, Karlakór Bólstaðarhlíðar-
hrepps, Karlakórinn Vökumenn, auk margra annarra félaga. Að-
sókn að Húnavökunni hefur frá upphafi verið góð, en þó farið
stöðugt vaxandi. Hinir fjölmörgu gestir Húnavökunnar hafa kunn-
að vel að meta viðleitni áhugamanna til listsköpunar, þó að margt sé
þar af vanefnum gert við ófullkomnar aðstæður. En að baki dag-
skrár Húnavökunnar hverju sinni liggur saga, er aldrei verður
skráð. Það er sagan af þrá fólksins til að hefja hug sinn undan oki
og amstri hversdagslífsins og eignast sínar „heiðra drauma vöku-
nætur“. En þær vökunætur hafa verið og eru þessu fólki enn sann-
ir geislagjafar í skammdegiséljum og gera því fært „ að þreyja þorr-
ann og góuna".
USAH hefur leitazt við að fylkja menningarfélögum héraðsins
um Húnavökuna, hefur oft haft sjálfstæðar skemmtiskrár og ætíð
haft framkvæmdastjórn vökunnar með höndum. Hefur það verið
erfitt verk við slæmar aðstæður, en unnizt hefur það fyrir samhent
starf fórnfúsra félagsmanna. Ýmis nöfn væri þar ástæða til að nefna,
þó verður það ekki gert hér. Aðeins skal minnt á það að frá upp-
hafi Húnavökunnar hafa þrír menn gegnt formannsstörfum í Sam-
bandinu. Allir hafa þeir starfað að framkvæmd vökunnar frá byrj-
un og verið í alla staði mjög samhentir. Hygg ég að á engan sé
hallað þó að sagt sé að mótun Húnavökunnar sé fyrst og fremst ár-
angur af þeirra starfi.
Á síðustu tveimur Húnavökum hefur verið upp tekinn nýr þátt-
ur, sem er útgáfa samnefnds rits, er flytur ýmislegt efni héðan úr
héraði. Þessi nýbreytni nýtur mikilla vinsælda að verðleikum og
eiga þeir þakkir skildar, er þar brutu ísinn.
Stærsta verkefnið sem USAH beitti sér fyrir á sviði verklegra
framkvæmda á sínum fyrri árum var bygging Reykjalaugarinnar.
En frumherja ungmennahreyfingarinnar í þessu héraði dreymdi
stærri drauma um Reyki á Reykjabraut. Þar skildi rísa upp menn-
ingarleg miðstöð fyrir héraðið, með héraðsskóla og Iieimavistar-
barnaskóla sem fyrstu áfanga. Á héraðsþingum USAH um áratuga
skeið var þessi fyrirhugaða menningarmiðstöð efst á baugi. En oft
verður bið á að sumar vonir rætist og þannig fór með þennan óska-
draum húnvetnsku ungmennafélaganna. Sundlaugin er ennþá eina
mannvirkið þeirrar tegundar, sem risið hefur að Reykjum og svar-