Húnavaka - 01.05.1963, Qupperneq 80
78
HÚNAVAKA
ar nu ekki lengur kröfum tímans. En framtíðin virðist gefa fyrir-
heit um að þarna rísi upp slík héraðsmiðstöð, sem ungmennafélag-
arnir gerðu ráð fyrir, þó að þar muni aðrir aðilar leggja fram
stærsta skerfinn.
Næsta verkefni USAH á sviði verklegra framkvæmda var þátt-
taka í byggingu Héraðshælisins. Það var mikið nauðsynjamál, sem
bæði félög og einstaklingar báru gæfu til að sameinast um. Það er
einn af draumunum, sem rætzt hefur og ber í senn stórhug og sam-
hug Húnvetninga fagurt vitni.
Þá gerðist USAH aðili að Héraðskvikmyndinni Austur-Húna-
þing, ásamt sýslusjóði og fleiri félögum. Kvikmyndin er fullgerð
fyrir nokkrum árum og flestum héraðsbúum kunn.
Á síðustu árum hefur svo Sambandið tekið á sig miklar skuld-
bindingar varðandi félagsheimilabyggingar héraðsins. Er ])að eign-
araðili að því félagsheimili, sem við erum nú stödd í, auk þess
sem að það styrkir aðrar félagsheimilabyggingar. Ljóst er að þarna
hefur verið teflt á tæpasta vað, en ýmsar ástæður lágu til þess að
þessi stefna var mörkuð. Lélegur húsakostur til samkomuhalds
gerði Sambandinu mjög erfitt fyrir um að halda uppi sínum um-
fangsmiklu skemmtunum. Einnig er það óumdeilanlegt að fátt er
félagslífi dreifbýlisins meiri lyftistöng en félagsheimilabyggingarnar.
Hér hefur verið horft um öxl, til þeirra helztu viðfangsefna, sem
þessi samtök hafa haft með höndum. Margt hefur þó að sjálfsögðu
fallið niður, sem vert væri að minnast. Saga USAH síðustu hálfa
öld er hliðstæð og hjá öðrum félagssamtökum. Það er saga vona og
vonbrigða, sigra og ósigra. En á þessum tímamótum fögnum við
yfir því, sem áunnizt hefur um leið og hin óleystu verkefni eru
okkur hvöt til áframhaidandi starfs í framtíðinni.
Það höfuðmarkmið ungmennahreyfingarinnar að hafa þroska-
vænleg áhrif á æskulýðinn er í senn háleitt og sígilt. kikkert er okk-
ur íslendingum öruggari landvörn jafnt gegn erlendri ásælni sem
innlendri upplausn en gifturík og gjörfileg æska, sem sameinar heil-
brigða sál í hraustum líkama. Og þá er fátt nauðsynlegra en frjáls
samtök æskunnar hafin yfir dægurþras og flokkadrætti. Því þó að
rnargt beri á milli í hita dagsins, skal því í lengstu lög trúað að
það er sameinar smáþjóð eins og íslendinga megi sín meira en það
er sundrar.
íslenzk skáldkona kveður svo að orði. ,,Og eitt er víst, að lend-