Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Blaðsíða 29
Hreint og mínímalískt É g myndi lýsa stílnum sem mjög hreinum og mínímal- ískum með skandinav- ískum áhrifum. Hef þörf fyrir að hafa mjög hreint í kring- um með en á sama tíma að finna fyrir hlýleika og að það sé heim- ilislegt. Mig langar að íbúðin mín sé svolítið eins og sumarbústaður einhvers staðar í Svíþjóð og valdi parket í þeim stíl,“ útskýrir Þór- unn sem heldur úti tísku- og lífs- stílsblogginu thorunnivars.is en samhliða rekstri bloggsins starfar hún hjá versluninni Vila og stund- ar nám í viðskiptafræði við Há- skóla Íslands. Þórunn telur mikilvægt að það sé nóg pláss á heimilinu og ekki þrengi að neinu við innréttingu þess. „Það er pínu erfitt í svona lítilli íbúð en ég held að okkur hafi tekist nokkuð vel að innrétta íbúðina.“ Þórunn segist versla mikið við íslensku heimilisnetverslanirnar eins og Snúran.is, Minimaldecor.is og Reykjavíkbutik.is. og segir það bæði skemmtilegt og öðruvísi. „Þó versla ég líklegast mest í IKEA. Annars fær maður rosalega marg- ar fallegar gjafir frá vinum og vandamönnum þegar maður er svona nýbyrjaður að búa.“ Aðspurð hvert hún sæki helst innblástur til heimilisins svarar Þórunn: „Ég les rosalega mörg erlend blogg um innanhússhönnun og safna myndum saman í albúm á Pinterest. Þau get ég skoðað endalaust og fæ endalausar hug- myndir enda er ég alltaf að reyna að breyta og bæta heimilið.“ Þórunn segir baðkarið og horn- ið sitt í sófanum eftirlætisstaði sína á heimilinu. „Ég enda alla daga á langri baðferð með góðum olíum eða freyðibaði. Allar blogg- færslur verða til á sama stað í íbúðinni minni, en það er í horn- inu á sófanum. Þar er alltaf gott að sitja og drekka heitt te undir teppi á köldum vetrarkvöldum.“ Koparvasar frá Skjalm P. koma vel út á gólfinu. Hornið í sófanum er í miklu eftirlæti hjá Þórunni. Þar segir hún bloggfærslurnar verða til yfir góðum tebolla. Þórunn Ívarsdóttir er mikill fagurkeri og nýtur þess að nostra við heimili sitt. ÞÓRUNN ÍVARSDÓTTIR, TÍSKU- OG LÍFSSTÍLSBLOGGARI, BÝR ÁSAMT KÆRASTA SÍNUM, HARRY, Í NOTALEGRI OG VEL INNRÉTTAÐRI ÍBÚÐ Í BRYGGJUHVERFINU. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is ER ALLTAF AÐ REYNA AÐ BREYTA OG BÆTA Á HEIMILINU Falleg uppröðun Iittala-muna á stofuborðinu. Eldhúsborðið er úr IKEA en verkið á veggnum er eftir Þórunni sjálfa. Fjölbreytt veggverk koma vel út á myndahillu í stofunni. 7.6. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 ÚTSALA Sumar3 60% ALLT AÐ AFSLÁTTUR 7 OG D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0 KENYA hægindastóll ÚTSALA Sumar3 39.990 FULLTVERÐ: 49.990 KRÓNUR Slitsterkt áklæði, margir litir. BROSTE valin ljós ÚTSALA Sumar3 FRÁ4.495 FULLTVERÐ FRÁ: 8.990 KR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.