Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Qupperneq 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Qupperneq 34
BOTN 1 bolli heslihnetur (lagðar í bleyti yfir nótt) ½ bolli mórber ½ bolli kókosmjöl 4 msk kókospálmasykur 2 msk kakónibbur 1 msk raw kakó 1 tsk lífræn vanilla (duft) smásjávarsalt ½ bolli kókosolía, við stofuhita Skolið hneturnar og kurlið, annaðhvort í matvinnsluvél eða með handkurlara (ég nota alltaf svoleiðis). Setjið hnetukurlið í skál. Kurlið mórberin með sömu aðferð. Setjið í sömu skál og hnetukurlið. Setjið kókosmjöl, kókospálmasykur, kakónibbur, kakó, vanillu og sjáv- arsalt í sömu skál og blandið vel. Hellið kókosolíu sam- an við og blandið vel saman með sleikju. Notið mat- skeið og setjið sirka 1-2 kúfaðar skeiðar í sílikonform. Uppskriftin á að duga í tólf muffins. Þjappið með skeið- inni (eða gaffli) þannig að botninn verði þéttur í sér. Setjið í frysti á meðan þið búið til fyllinguna. FYLLINGIN 1 bolli kasjúhnetur (lagðar í bleyti yfir nótt) ½ bolli vatn 1⁄4 bolli kókosolía, við stofuhita 3 msk kókossíróp 1 msk lucuma 1 tsk lífræn vanilla (duft) smásjávarsalt Raspaður börkur af ½ lífrænni sítrónu (mik- ilvægt að hún sé lífræn – þið viljið ekki borða börkinn af ólífrænni) 1 bolli af frosnum bláberjum (sem hafa fengið að þiðna örlítið) Skolið kasjúhneturnar vel og setjið í blandara ásamt af- ganginum af hráefninu (fyrir utan bláberin). Blandið vel saman eða þar til blandan er orðin kekkjalaus og fín. Setjið bláberin saman við og blandið mjög vel. Takið muffinsmótin úr frysti og skiptið fyllingunni á milli form- anna. Skreytið með muldum og/eða heilum mórberjum (fallegur matur bragðast alltaf aðeins betur). Setjið aft- ur inn í frysti í a.m.k. klukkustund. Best er að geyma yfir nótt. Ef þið geymið yfir nótt þurfa muffinskökurnar að fá að standa í smástund við stofuhita til að hægt sé að bíta auðveldlega í þær. Njótið! 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.6. 2015 Matur og drykkir Hráfæðis-bláberja- bollakökur Jóhanna S. Hannesdóttir er garðyrkjubóndi, matarbloggari,þjóðfræðingur, blaðamaður og mikil áhugamanneskja umhollt mataræði. Faðir Jóhönnu er menntaður garðyrkju- fræðingur og hefur ræktað frærófur og rófur frá árinu 1969, hinar landsþekktu Sandvíkurrófur. „Við systkinin höf- um alltaf tekið þátt í þessu með pabba, aðallega þó í rófu- upptökunni á haustin. Núna í seinni tíð höfum við meira ver- ið með í frærófuræktuninni, það er að rækta frærófur sem maður uppsker svo rófufræ af á haustin,“ segir Jóhanna en hún og maðurinn hennar, Guðmundur Karl Sigurdórsson, rækta rófur með hjálpa barnanna sinna, 5 og 9 ára, sem taka virkan þátt í garðyrkjustörfunum. Auk þess eiga þau og reka sunnlenska.is. „Þau hjálpa mér til dæmis að vökva fræróf- urnar og dóttir mín sem er 9 ára er orðin mjög flink að raga rófur. Þeim finnst heldur alls ekki leiðinlegt að taka upp róf- urnar á haustin en við tókum upp allar rófurnar með hönd- unum.“ Jóhanna segir að garðyrkjan gangi vel en það sem getur verið erfitt er hvað ræktunin er háð veðurfarinu sem er auð- vitað allt annað en stabílt hér á landi. „Öll ræktun er mikil nákvæmisvinna og það getur skipt öllu hvernig veðrið er daginn sem maður sáir rófunum og hvernig veðurfarið er dagana á eftir.“ Jóhanna leggur áherslu á að garðyrkjan kenni manni að bera sérstaklega mikla virðingu fyrir náttúrunni og móður jörð. „Það er alveg sama hversu marga milljarða þú átt, þú getur ekki stoppað ofsaveður, jarðskjálfta eða eldgos. Ég trúi því að ef við hugsum vel um móður jörð þá hugsi hún vel um okkur.“ Mikilvægt að nota gagnrýna hugsun Frá því hún var lítil stúlka hefur hún haft mikinn áhuga á heilsu og þá sérstaklega langlífi. „Ef maður ætlar að ná háum aldri þá þarf heilsan að vera í lagi. Ég las allt það sem ég komst í sem tengdist heilsu á einhvern hátt, en áður en ég byrjaði í háskólanum þá voru það aðallega greinar í tíma- ritum og á netinu sem sáu um að uppfræða mig,“ segir Jó- hanna. Hún segir að eftir að hún byrjaði í háskólanum og hóf að lesa réttu bækurnar hafi hún farið að temja sér frek- ar gagnrýna hugsun sem hafði ekki verið nógu mikið í fyr- irrúmi áður. „Sá sem skrifar eitthvað, hvort sem það er heil bók eða grein í tímariti, hefur oft einhverra hagsmuna að gæta. Stundum eru læknar eða fræðingar í samstarfi við lyfjafyrirtæki eða styrktir af einhverjum samtökum. Einmitt út af þessu er svo mikilvægt að lesa sem mest, skoða málið frá öllum sjónarhornum og smám saman fer maður að ná stóra „heilsusamhenginu“, tengja á milli allra punktanna.“ Veikindi í fjölskyldunni höfðu mikil áhrif Hún segir líf sitt hafa breyst til muna eftir tvö áföll á fjöl- skyldunni en maðurinn hennar greindist með krabbamein í nýra árið 2009 og faðir hennar með krabbamein í beinmerg árið 2011. „Maðurinn minn náði sér hratt eftir að nýrað var fjarlægt en veikindin urðu þó til þess að maður fór að taka heilsuna enn fastari tökum og sá að það var ekki nóg að borða bara hollt heldur þurfti maður líka að huga að andlega þættinum. Stress og streita er nefnilega algjört eitur og maður þarf að kunna að tækla hana ef maður ætlar ekki að verða líkamlega veikur. Að sama skapi er ekki gott að stressa sig of mikið á matnum - hvort hann sé „nógu hollur“ eða tikki í öll réttu boxin. Um leið og maður fer að stressa sig á holla matnum þá er hann búinn að snúast í andhverfu sína,“ segir Jóhanna. „Eftir veikindi pabba náði heilsuáhugi minn alveg nýjum hæðum. Mataræðið breyttist líka mikið og ég tók út allan sykur, mjólkurvörur og glúten. Ég borða heldur ekki kjöt og er það af heilsufars-, umhverfis- og dýra- velferðarástæðum.“ Jóhanna segir að fólk spyrji hana iðulega hvað hún borði eiginlega, því í raun sé ekkert eftir að borða. „Bloggið mitt er einmitt til þess að sýna fólki hvað það er auðvelt að búa til holla og góða rétti sem næra og kæta hverja frumu líkamans.“ Ljósmynd/Jóhann S. Hannesdóttir GARÐYRKJAN FÆRIR FJÖLSKYLDUNNI MIKLA GLEÐI Hugsum vel um móður jörð JÓHANNA TRÚIR ÞVÍ AÐ EF HUGSAÐ ER VEL UM MÓÐUR JÖRÐ ÞÁ HUGSI HÚN LÍKA VEL UM OKKUR. HÚN LEGGUR ÁHERSLU Á HOLLT MATARÆÐI OG ER HRIFIN AF HRÁFÆÐI. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Jóhanna skrifaði bókina 100 heilsuráð til langlífis og undirstrikar sú bók gríðarlegan heilsuáhuga hennar. Bloggið hennar Jó- hönnu heitir Vanilla & lavender og er slóðin vanillaoglavender.is Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.