Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Page 8
8 föstudagur 2. október 2009 fréttir
Eugene Luther Gore Vidal fæddist
3. október 1925. Hann er pólitískur
aðgerðasinni, rithöfundur, hand-
ritshöfundur, leikskáld, ritgerða-
smiður, smásagnahöfundur og
leikari. Snemma á ferli sínum skrif-
aði Gore skáldsöguna The City and
the Pillar, sem fór mjög fyrir brjóst-
ið á gagnrýnendum. Skáldsagan er
ein sú fyrsta sinnar tegundar sem
fjallar um samkynhneigð á ótví-
ræðan máta.
Gore Vidal var persónulegur
vinur Johns F. Kennedy Banda-
ríkjaforseta og daðraði við hug-
mynd um frama í stjórnmálum.
Hann hefur skrifað tuttugu og fjór-
ar skáldsögur og er talinn einn
fremsti ritgerðasmiður í heimi og
þekktur sem einn fremsti hugsuð-
ur tuttugustu aldarinnar.
Gore Vidal er áttatíu og þriggja
ára og í ljósi ummæla hans í við-
tali við Tim Teeman, sem birtist í
London Times á miðvikudaginn, er
ljóst að þar fer maður með ákveðn-
ar skoðanir, nú sem áður fyrr.
Dauðhræddur, að drepast
úr leiðindum
Á síðasta ári vakti athygli þeg-
ar Gore Vidal söðlaði um og sneri
baki við Hillary Clinton og lýsti
yfir stuðningi við Barack Obama
í slagnum um forsetaembætti
Bandaríkjanna. Nú viðurkennir
hann fúslega að hann iðrist sinna-
skiptanna þá. Aðspurður hvernig
hann telji Obama standa sig segir
Gore Vidal: „Ömurlega. Ég var von-
góður. Hann er gáfaðasta mann-
eskja sem við höfum haft í þessari
stöðu í langan tíma. En hann er
reynslulítill.“
Vidal er þeirrar skoðunar að
Bandaríkjamenn eigi að hverfa
frá Afganistan og sagði að Obama
hagaði sér eins og þar væri um ein-
hvern töfragrip að ræða, og teldi að
ef málefni Afganistan leystust leyst-
ist hryðjuverkaógnin einnig. „Okk-
ur [Bandaríkjamönnum] hefur
mistekist í allri okkar viðleitni til að
sigra Miðausturlönd eða hvað við
viljum kalla þetta,“ sagði Vidal og
bætti við að „stríðið gegn hryðju-
verkum“ hefði verið tilbúningur
og hefði að öllu leyti verið dæmi
um lýðskrum, og sömu sögu væri
að segja um „gereyðingarvopnin“.
Vidal sagði að það eina sem hefði
unnist væri að starfsemi flugfélaga
hefði verið lögð í rúst: „Nú þegur
þú flýgur ertu bæði dauðhræddur
og að drepast úr leiðindum, afar
óásættanleg blanda.“
Fíflið frá Arizona
Eitt af því sem Gore Vidal hefur hat-
að allt sitt líf eru lygarar „…og ég lifi
í landi sem er fullt af þeim,“ sagði
hann við Teeman. Hann heldur þó
í smá bjartsýni hvað varðar Barack
Obama „því hann lýgur ekki“.
Vidal vandar John McCain ekki
kveðjurnar. „Við vitum að fíflið frá
Arizona er lygari. Við höfum aldrei
heyrt réttu útgáfuna af því hvernig
McCain brotlenti flugvél sinni [1967
í Víetnamstríðinu] og fangavist hans
þar,“ sagði Vidal.
En Vidal telur Obama vaða í villu
og svíma því hann telji repúblikana-
flokkinn vera stjórnmálaflokk. Vidal
segir flokkinn vera „skoðanahreyf-
ingu, eins og Hitlersæskuna, byggða
á hatri – trúarlegu hatri, kynþátta-
hatri“.
Í maí 2008 sagði Vidal að Barack
Obama væri betri leiðtogi en John F.
Kennedy, en telur nú, eins og hann
gerði upphaflega, að Hillary Clinton
yrði betri forseti en Barack Obama.
„Sagan hefur fært okkur heim sann-
inn um að þegar stelpurnar bland-
ast í málin ferst þeim það vel úr
hendi,“ sagði Vidal.
Gætu lært af Skandinavíu
Að mati Gores Vidal þarf Barack
Obama að tileinka sér eitthvað af
starfsháttum Abrahams Lincoln.
Honum finnst gaman að vitna í Lin-
coln og það er til stórkostleg tilvitnun
í Lincoln í bréfi sem hann skrifaði til
eins hershöfðingja sinna í suðurríkj-
unum eftir borgarastyrjöldina. „Ég
er forseti Bandaríkjanna. Ég hef full-
komið og ótakmarkað vald, gleymdu
því aldrei því ég mun beita því.“ Þetta
er það sem Obama þarfnast – örlítill-
ar hörku í anda Lincolns,“ sagði Vid-
al, sem telur að repúblikanar muni
sigra í næstu kosningum.
„Í dag hefur blóðæð stjórn-
málanna sýkst af trúarfirru og
Bandaríkin hafa tærst og einangr-
ast,“ sagði Vidal og bætti við að ef
Bandaríkjamenn yrðu spurðir hvað
þeir vissu um Svíþjóð yrði svarið að
Svíar hefðu það gott, en væru áfeng-
issjúklingar. „Í raun hefðum við get-
að lært heilmikið af skandinavíska
kerfinu.“ En þess í stað eiga Banda-
ríkin „enga hugsandi stétt“ og „rotna
á jarðarfararhraða“.
Gore Vidal sagði í viðtalinu
að þess yrði ekki langt að bíða að
Bandaríkin yrðu undir stjórn ein-
ræðis með fulltingi hersins, ekkert
nema herinn „gæti haldið utan um
allt saman“. Hann sagði að Obama
hefði betur einbeitt sér að því að
mennta bandaríska alþýðu, því
vandamál hans væri að hann væri
of mikið menntaður.
„Hann gerir sér ekki grein fyrir því
hve vitgrannir og fáfróðir áheyrend-
ur hans eru,“ sagði Vidal om Obama
og bandarísku þjóðina.
Íhaldsmaður
í hjarta sér
Þó Gore Vidal virðist oft og tíðum
vera hlynntur málefnum og
sjónarmiðum demókrata, hangir
fleira á spýtunni. Í ritgerðasafninu
Matter of Fact and Fiction: Essays
1973–1976 skrifaði Vidal: „Það er
aðeins einn flokkur í Bandaríkj-
unum, eignaflokkurinn... og hann
hefur tvo hægri vængi: repúblik-
ana og demókrata. Repúblikanar
eru aðeins heimskari, stífari,
fastari í kennisetningum frjálsrar
markaðshyggju en demókratar,
sem eru sætari, fallegri, aðeins
spilltari – þar til nýlega... og viljugri
en repúblikanar til að gera smá
breytingar þegar fátækir, þeldökk-
ir, andstæðingar heimsvaldastefnu
verða óstýrilátir. En í reynd er eng-
inn munur á flokkunum tveimur.“
Í viðtali við Bill Maher í apríl sagði
Gore Vidal: „Ég tel sjálfan mig vera
íhaldsmann.“
Kolbeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
„Nú þegur þú flýg-
ur ertu bæði dauð-
hræddur og að drep-
ast úr leiðindum, afar
óásættanleg blanda.“
LAND LYGARANNA
Gore Vidal hefur
löngum verið talinn
til mestu hugsuða
tuttugustu aldarinnar.
Í skemmtilegu viðtali
við tim teeman,
sem birtist í London
Times, viðrar hann
meðal annars skoð-
anir sínar á mönn-
um og málefnum,
bandarísku þjóðinni
og framtíðarhorfum í
Bandaríkjunum.
Gore Vidal Iðrast að hafa snúið baki við Hillary Clinton á síðasta ári.
11. september og samsæri
Gore Vidal var óþreytandi við að gagnrýna ríkisstjórn George W. Bush og
skilgreindi hana sem ríkisstjórn sem annað tveggja stundaði beina eða
óbeina útþenslustefnu.
Í október 2006 dáraði Vidal NORAD, loftvarnakerfi Bandaríkjanna, fyrir
vanhæfni til að stöðva för þeirra flugvéla sem rænt var til árásanna 11.
september 2001. Hann dró þá ályktun að gefin hefði verið skipun um að
„aðhafast ekkert“.
Í maí 2007 útskýrði Gore Vidal sjónarmið sín og sagði: „Ég smíða ekki sam-
særiskenningar, ég greini samsæri. Allt sem Bush-istar snerta mistekst. Þeim
hefði aldrei tekist að búa til 11. september þótt þeir hefðu viljað. Jafnvel þótt
þeir hefðu þráð það. Þeir gátu hins vegar staðið hjá, eða farið í mat á meðan
þessir hörmulegu atburðir skullu á þjóðinni. Ég trúi þeim til þess.“
John McCain „Fíflið frá Arizona“ er
ekki háttskrifað hjá Gore Vidal.
George W. bush, fyrrverandi for-
seti bandaríkjanna Allt sem hann
og skósveinar hans snertu dæmt til
að mistakast að mati Vidals.
barack obama, forseti bandaríkjanna Er
of mikið menntaður fyrir bandaríska alþýðu.