Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Side 13
fréttir 2. október 2009 föstudagur 13
Icesave vIð það að slIga ríkIsstjórnIna
forysta flokksins ætluðu að sam-
þykkja aðildarumsókn að ESB sem
aðgöngumiða að áframhaldandi
ríkisstjórn VG og Samfylkingarinn-
ar. Bréfið lýsir viðhorfi sem áreiðan-
lega blundar í nokkrum þingmanna
VG, en þar segir meðal annars:
„Með því að segja já við frum-
varpi ríkisstjórnarinnar um aðild-
arumsókn að Evrópusambandinu
þá gerir þú þig að ómerkingi orða
þinna en það sem verra er, þá gerir
þú mig og alla þá sem börðust fyrir
flokkinn í aðdraganda síðustu kosn-
inga að ómerkingum orða sinna.
Sjálfur fékk ég 50 manns til þess að
skrá sig í flokkinn fyrir síðustu kosn-
ingar og það er klárt í mínum huga
og í orðræðum mínum við það fólk
að aldrei myndi flokkurinn taka þátt
í því að færa Ísland nær Evrópusam-
bandinu.“
Nú gerðist það í vikunni að bresk-
ur þingmaður sagði við Lilju Mós-
esdóttur, þingmann VG, á þingi
Evrópuráðsins í Strassborg að ef Ice-
save-deilan yrði ekki leyst yrði það
að vandamáli frammi fyrir fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins í
umsóknarferlinu. Með öðrum orðum
virðist sem þingmaðurinn hafi ætlað
að nota aðildarumsóknina sem vopn
í deilu við Íslendinga um Icesave.
Lilja segist hins vegar hafa gert
honum grein fyrir að hún tilheyrði
ekki flokki sem hefði inngöngu í ESB
á stefnuskrá sinni.
Hvað sem öðru líður er ljóst að
róttækir andstæðingar ESB og Ice-
save innan VG hafa tilefni til að
spyrða saman ESB, Alþjóðagjaldeyr-
issjóðinn og jafnvel Norðurlöndin,
og hagsmuni Hollendinga og Breta.
Andstaðan innan ríkisstjórnarinnar
er því bæði áþreifanleg og hugsan-
lega vaxandi.
Stjórnarandstæðingar sjá sér
leik á borði
Tilraunir Steingríms og stuðnings-
manna hans innan VG virðast því
ekki geta tryggt braut Icesave-máls-
ins í gegnum þingið enda augljóst
að komið verður til móts við Hol-
lendinga og Breta með því að gefa
eftir varðandi fyrirvara þingsins frá
því í sumar.
Með fortölum og flokksaga
þurfa stjórnarflokkarnir að tryggja
að minnsta kosti 33 atkvæði meðal
stjórnarliða. Sú trygging er ekki fyr-
ir hendi og því geta stjórnarslit hæg-
lega hangið áfram yfir ríkisstjórn-
inni.
Slíkt skipbrot jafnaðar- og vinstri-
manna yrði báðum flokkum þung-
bært sem bundið hafa vonir við að
fá ráðrúm til að móta á nýjan leik
íslenskt samfélag í anda norrænna
velferðarstjórnmála.
Kosningar virðast með öllu
ótímabærar. Morgunblaðið hefur
tekið sér stöðu með Ögmundi og
andófshópnum í röðum VG og jafn-
vel stungið upp á minnihlutastjórn
VG.
Verði viðvarandi ágreiningsmál
um Icesave ríkisstjórninni að falli
og nýir stjórnarherrar taki völdin er
eins víst að viðsnúningur verði í Ice-
save-málinu og að ESB-aðildarum-
sóknin falli dauð.
Samningar í Istanbul
Fjármálaráðherrann fer nú um
helgina til Istanbúl í Tyrklandi á að-
alfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Auk hans sækir Már Guðmundsson
seðlabankastjóri fundinn af hálfu
Seðlabankans ásamt nokkrum emb-
ættismönnum. Þar eru fyrirhugað-
ir fundir með fjármálaráðherrum
Hollands og Bretlands. Varla er við
því að búast að endanlegur búning-
ur nýs Icesave-frumvarps verði til-
búinn í lok næstu viku þegar Stein-
grímur og embættismennirnir snúa
heim.
Hvað segir stjórnarandstaðan?
Þór Saari, Hreyfingunni:
„Ríkisstjórnin hefur veikst mikið
finnst mér. Ögmundur var einn af
aðalmönnunum í ríkisstjórninni, og
einn af þungavigtarmönnunum, og
það er mikill skaði fyrir þau að missa
hann. Það er alveg á hreinu.“
Þór kveðst sannfærður um að
Icesave-málið eigi enn eftir að
vefjast fyrir ríkisstjórninni. „Ég hef
heyrt í fjölda manns ríkisstjórnar-
megin sem er ekki tilbúinn að sam-
þykkja ný lög um ríkisábyrgðir út af
Icesave. En ég veit ekki hvort þetta
fellir stjórnina. Þetta er náttúru-
lega eins og Ögmundur sagði. Þetta
er lýðræði og þingræði og ef ríkis-
stjórnin sjálf ákveður að hún muni
falla hafi hún ekki meirihluta í Icesa-
ve, þá ákveður ríkisstjórnin það. En
mér finnst þetta vera barnaskapur
og forneskjuleg hugsun að það þurfi
að vera hreinn meirihluti allra ríkis-
stjórnarflokka í öllum málum. Þetta
er bara gamaldags hugsun. Menn
eiga að geta leyft sér að vera ósam-
mála í svona veigamiklum málum
án þess að ríkisstjórnin þurfi að
hrökklast frá.“
Siv Friðleifsdóttir, Framsóknar-
flokki:
„Þessi ósamstaða og vandræða-
gangur veikir ríkisstjórnina mjög.
Hún fer löskuð inn í nýjan vetur.“
Siv segir að brotthvarf Ögmund-
ar úr ríkisstjórninni setji Icesave-
deilurnar í enn flóknara samhengi
en áður þótt vera kunni að niður-
skurður í heilbrigðismálum hafi ver-
ið honum þungur í skauti.
„Ögmundur mun ekki styðja út-
þynningu fyrirvaranna við Icesa-
ve á Alþingi úr því hann kaus að
fara út úr ríkisstjórninni. Spurning-
in er hvað aðrir þingmenn VG gera
sem hugnaðist Icesave-samningur-
inn alls ekki. Þeir samþykktu ríkis-
ábyrgðina með fyrirvörum og verði
nú veittur afsláttur gagnvart Bret-
um og Hollendingum eins og liggur
í loftinu er algerlega óvíst hvort þeir
geti samþykkt það. Mér finnst þetta
blasa við. Ögmundur er nú orðinn
óskoraður leiðtogi órólegu deildar-
innar í VG. Það verður spennandi
að sjá hverjir innan VG fylgja hon-
um að málum á þinginu því varla er
hann einangraður.“
Siv er ekki viss um hvort ríkis-
stjórnin lifi þetta af. „Það er erfitt að
sjá. Þegar ráðherra segir af sér vegna
ágreinings um grundvallarmál veik-
ir það ríkisstjórnina mjög. Hún kem-
ur því mjög löskuð til leiks.“
Pétur Blöndal, Sjálfstæðisflokki:
„Mér sýnist staðan í Icesave-mál-
inu vera sú sama og í sumar. Rík-
isstjórninni var samvæmt lögum
Alþingis um fyrirvara við Icesave-
ríkisábyrgðina falið að kynna þá
breskum og hollenskum stjórnvöld-
um. Með samþykki þeirra hefðu þau
tekið gildi. En það varð ekki og nú
eru menn greinilega að semja upp
á nýtt. Ég tel að það sé ekki heimilt.
Mér sýnist að þingflokkur VG hafi
gefið heimild til þess að hefja slíkar
þreifingar og ef niðurstaða fæst hefst
leikurinn upp á nýtt.“
Pétur bendir á að senn renni upp
23. október en þá renni út frestur til
þess að lýsa kröfum í Tryggingarsjóð
innstæðueigenda. „Hafi ekki sam-
ist fyrir þann tíma verða Bretar og
Hollendingar að lýsa kröfum í búið.
Þá fer málið fyrir héraðsdóm, síðan
hæstarétt og loks EFTA-dómstól ef
að líkum lætur. Bretar og Hollend-
ingar væru með þessu að taka þá
áhættu að niðurstaðan verði þeim
ekki í vil. Það á síður við að Íslend-
ingar taki áhættu með þessu. En
þetta kostar kannski átök því þetta
er spurning um áróður, að tryggja
vígstöðu, bakland og áhrif og við
stöndum okkur ekki vel á því sviði.“
Hótun um stjórnarslit ef ráðherr-
ar ríkisstjórnar gengju ekki í takt í
Icesave-málinu varð til þess að Ög-
mundur Jónasson sagði af sér emb-
ætti heilbrigðisráðherra. „Ef ekki
reynist meirihluti fyrir breytingum
á fyrirvörunum þegar málið fer fyr-
ir Alþingi fellur ríkisstjórnin ef eitt-
hvað er að marka hótunina. En það
er kannski ekki alveg mark takandi á
þessu.“
Þungbúnir foringjar Steingrímur J.
Sigfússon tjáði sínu fólki að ríkisstjórnarsam-
starfið væri í húfi og fékk heimild þingflokks
síns til að semja. Vafi leikur á hvort hann hafi
fengið tryggingar fyrir stuðningi við Icesave í
gegnum þingið. mynd róbert reynISSon
Siv Friðleifsdóttir „Ögmundur
er nú orðinn óskoraður leiðtogi
órólegu deildarinnar í VG. Það verður
spennandi að sjá hverjir innan VG
fylgja honum að málum.“
Pétur blöndal „Ef ekki reynist
meirihluti fyrir breytingum á fyrirvörun-
um þegar málið fer fyrir Alþingi fellur
ríkisstjórnin ef eitthvað er að marka
hótunina. En það er kannski ekki alveg
mark takandi á þessu.“
Prinsippmaður Ögmundur Jónas-
son segir ekki skilið við sannfæringu
sína. En vill hann að það kosti
tækifæri jafnaðar- og vinstrimanna til
að móta velferðarsamfélag á næstu
árum?
Jón bjarnason Ráðherrann sem
er ekki síst þekktur fyrir langar þing-
ræður kaus að þegja á næturfundi
Vinstri-grænna.
Yfir vötnunum sveif
hótun um að ríkis-
stjórnarsamstarfinu
yrði slitið fengi ríkis-
stjórnin ekki sínu fram-
gengt.