Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Blaðsíða 30
30 föstudagur 2. október 2009 helgarblað
Helgi Felixson er 53 ára gamall kvik-
myndagerðarmaður. Hann rekur fyrir-
tækið Felixfilm í Svíþjóð þar sem hann
hefur búið í þrjátíu og þrjú ár. Nýjasta
mynd hans, Guð blessi Ísland, hefur
vakið mikla athygli að undanförnu en
hann hóf tökur á henni aðeins fáein-
um dögum eftir hrunið. Í myndinni
koma fram þrír útrásarvíkingar, Bjarni
Ármannsson, Björgólfur Thor og Jón
Ásgeir Jóhannesson.
Sá síðastnefndi er vægast sagt reið-
ur út í Helga því í myndinni er hann
sýndur í afar dökku ljósi. Nokkrar
mínútur eru sýndar þar sem hann
vissi ekki að verið væri að taka upp
en hann var samt með míkrófón á
sér. Jón Ásgeir var þó löngu áður bú-
inn að heimta að allt efni með honum
yrði tekið út. Það gerði hann um leið
og stiklan kom út fyrir myndina en
í stiklunni kemur ekkert af því fram.
„Við hvað er hann svona hræddur?“
spyr Helgi.
Kvikmyndagerð aldrei
draumurinn
Helgi fæddist á Íslandi, er gamall
Kópavogsbúi með rætur til Ísafjarðar
og Víkur í Mýrdal. Hann fluttist til Sví-
þjóðar fyrir þrjátíu og þremur árum.
Hann hefur ferðast um allan heim-
inn, tekið upp myndir í Suðurhöfum
og myndað frumbyggja í Suður-Am-
eríku svo eitthvað sé nefnt. Hann á og
rekur kvikmyndafyrirtækið Felixfilm í
Svíþjóð. Hann segist njóta þess til hins
ítrasta að vinna við það sem hann ger-
ir þótt það hafi aldrei verið stefnan í
lífinu.
„Það var aldrei neitt takmark hjá
mér að verða kvikmyndagerðarmaður.
Það gerðist af mikilli slysni. Það varð
kona á vegi mínum úti í Stokkhólmi
sem ég hafði mikinn áhuga á að segja
sögu um. Sú mynd tókst með ágætum
og þetta var svo skemmtilegt að ég hef
ekki gert neitt annað síðan. Ég er al-
gjörlega sjálfmenntaður og hef eng-
ar af þessum gráðum sem aðrir hafa.
Einungis lífið hefur kennt mér og það
fólk sem ég hef mætt,“ segir Helgi.
„Ertu útlendingur?“
Eitt það fyrsta sem blaðamaður tók
eftir var með hversu litlum hreim
Helgi talar þrátt fyrir rúm þrjátíu ár í
Svíþjóð þótt hann hafi vissulega oft
varið tíma á Íslandi. „Ég veit ekki al-
veg af hverju það er,“ svarar Helgi.
„Það var ekki fyrr en í fyrsta skipti um
daginn að einhver minntist á þetta. Ég
mætti þá drukkinni fyllibyttu inni á
gistiheimili þar sem ég var að fá mér
kaffi og bað mig um afnot af símanum
mínum. Ekkert mál, sagði ég, og hann
hringdi í eiganda staðarins. Hann bað
mig síðan um bokku en hana gat ég
ekki veitt honum. Þá leit hann á mig
og spurði: „Ertu útlendingur?“ Það var
svolítið fyndið því þetta hefur aldrei
gerst áður,“ segir Helgi.
Á þrjú ættleidd börn
„Ég er giftur sænskri konu og á fimm
börn,“ svarar Helgi spurður um fjöl-
skylduhagina. Hann er giftur Titti
Johnson sem hann kynntist við störf
sín en þau hafa unnið saman hjá
Felixfilm síðan. Spurður frekar um
börnin kemur í ljós að þrjú þeirra eru
ættleidd frá mismunandi löndum.
Helgi er mjög opinn þegar kemur að
því að tala um ástæðu þess. „Það eru
bara ekkert allir sem geta bakað brauð
heima,“ segir hann kíminn en það hef-
ur ekki tekist hjá Helga að eignast börn
með tveimur síðustu konum sínum.
Hann á þó tvo „heimabakaða“ syni
eins og hann segir sjálfur, dreng sem
heitir Jakob og einn uppkominn sem
heitir Snorri. Eitt ættleidda barnið er
er 22 ára strákur frá Sri Lanka, annað
tvítugur drengur að nafni Aron sem er
frá Kólumbíu og það nýjasta er nítján
mánaða stelpa frá Eþíópíu sem heitir
Íris. „Það gefur manni svo margt líka
þegar maður ættleiðir. Maður fær svo
margt í kaupbæti. Að sitja við mat-
arborðið er bara eins og fundur hjá
Sameinuðu þjóðunum, nema það
vantar bara fánann fyrir aftan,“ segir
Helgi og hlær dátt.
Svefnlaus yfir hruninu
Væntanleg mynd Helga, Guð blessi
Ísland, hefur verið í vinnslu alveg frá
frægri ræðu Geirs H. Haarde þegar
allt var að hrynja hér á landi. „Ég var
hérna í heimsókn á Íslandi á þessum
tíma en þegar ég fór aftur til Svíþjóð-
ar var ég hálffriðlaus yfir þessu. Þetta
hafði jafndjúp áhrif á mig og alla aðra.
Eftir að hafa verið hálfsvefnlaus yfir
þessu ástandi fór ég til Íslands og hóf
tökur í algjörri óvissu. Ég ákvað bara
að rannsaka málið og nota mynda-
vélina til þess,“ segir hann en í mynd-
inni fylgist Helgi með lífi nokkurra al-
mennra borgara og hvernig þeir takast
á við hrunið.
Þó „ábyrgðarmenn hrunsins“ sem
sjást í myndinni, eins og Helgi kemst
að orði, séu allir smeykir segir hann
ætlunina aldrei að hafa verið að kné-
setja neinn. Það bara gerist ef það ger-
ist. „Ég hef ekki sett mér það takmark
að ég ætli mér að snúa einhvern niður
en ef það gerist á leiðinni fylgi ég því
eftir. Þegar maður skoðar hlutina frá
því sjónarhorni sem ég geri í mynd-
inni snúa menn á sig sjálfir eða ekki,“
segir hann.
Björgólfur Thor kom í stað pabba
Þó aðalpersónur myndarinnar séu
nokkrir meðaljónar, til dæmis lög-
regluþjónn og vörubílstjóri, fer enginn
í grafgötur með hvað það er sem fólkið
bíður hvað spenntast eftir. Í myndinni
eru viðtöl við þrjá útrásarvíkinga, þá
Bjarna Ármannsson, Björgólf Thor og
Jón Ásgeir Jóhannesson. Auðvelt var
að fá viðtal við Bjarna, segir Helgi, en
viðtalið við hann var tekið í kringum
„syndaaflausnina“ í Kastljósinu í vor.
Erfiðara var að fá viðtal við hina tvo.
Helgi lýsir umhverfi þeirra sem vernd-
uðu. Eins og þeir hafi sett upp vegg
sem verndar þá og þeirra. „Ég veit ekki
af hverju þessir menn telja sig svona
merkilega. Af hverju gefa þeir ekki kost
á sér í viðtöl eins og aðrir menn hér í
þjóðfélaginu? Maður kemur alltaf að
lokuðum dyrum hjá þeim einhvern
veginn. Þetta er voðalega undarlegt,
þetta er eins og þeir hafi eitthvað að
fela,“ segir Helgi og bætir við:
„Af hverju má ég ekki bara tala við
þá einn? Af hverju er verið að vaka yfir
mér á meðan ég tek viðtölin og passa
spurningalistann? Af hverju er ver-
ið að segja við mig að ég eigi að haga
mér á réttan hátt? Ég meina, ég er bara
venjulegur fulltrúi þjóðarinnar að
spyrja mjög barnalegra spurninga sem
þjóðin og ég viljum vita.“
Til þess að fá viðtalið við Jón Ásgeir
sendi Helgi ítrekað pósta og á endan-
um gaf hann sig. „Ég er mjög þrjóskur
og þegar ég bít eitthvað í mig vil ég klára
það,“ segir hann en Helgi þurfti að lúta
í gras fyrir Björgólfi Guðmundssyni
sem svaraði engum fyrirspurnum. „ Ég
gafst upp á að eltast við hann en eft-
ir ítrekaðar tilraunir fékk ég símtal frá
blaðafulltrúa Björgólfs Thors þar sem
mér var gefinn kostur á að taka viðtal
við hann. Ég var ekkert endilega að
eltast við hann,“ segir Helgi.
Helgi Felixson kom inn á sjónarsviðið með
miklum látum í vikunni þegar hann sýndi
myndbrot úr heimildarmynd sinni um ís-
lenska hrunið, myndinni Guð blessi Ísland.
Jón Ásgeir Jóhannesson krefst þess að allt
efni með honum verði tekið út. En hver er
tilgangur myndarinnar? Hafa aðrir auð-
menn sem sjást í myndinni brugðist jafnilla
við? Og ennfremur, hver er þessi Helgi Fel-
ixson? Tómas Þór Þórðarsson settist niður
með Helga og komst að þessu öllu.
sPreNgJa
að fara að falla
Helgi Felixson Frumsýnir brátt
myndina Guð blessi Ísland sem
útrásarvíkingar eru hræddir við.
mynd KRISTInn mAGnÚSSOn
„Guð blessi Ísland“ Fræg orð fyrrver-
andi forsætisráðherrans Geirs Haarde
eru titill myndarinnar. mynd GUnnAR THOR