Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2009, Blaðsíða 50
Hlýjar Hendur í vetur Prjónabókin Hlýjar hendur er full af viðráðan-
legum prjónauppskriftum að sniðugum og fallegum vettlingum sem allir ættu
að geta ráðist í. Það er því engin ástæða til að láta sér verða kalt á fingrunum
í vetur þrátt fyrir kreppu enda er prjónaáhuginn orðinn slíkt trend að heilu
klúbbarnir og samkomurnar spretta upp um allar trissur. Bókin er skrifuð af
hagfræðingnum Ágústu Þóru Jónsdóttur sem gerðist prjónakona og það er
um að gera fyrir alla áhugasama um prjónaskap að næla sér í eintak.
„Ég held að flestir sem spá í tísku gleðj-
ist alltaf þegar hausta fer. Árstíðirnar
eru nauðsynlegar, það er svo yndis-
legt þegar kólna fer í veðri og flíkurn-
ar verða hlýrri og efnismeiri. Þegar
náttúran breytir um lit förum við að
hafa þörf fyrir aðra liti til að klæðast,“
segir Hugrún Árnadóttir, verslunar-
kona í Kron.
„Allir þessir girnilegu haustlitir
sem flæða nú um í mismikilum styrk-
leika, brúnir tónar, vínrauðir, grænir
og bláir sem eru hlýlegir og tilvaldir
til að klæðast nú þegar kólna fer. Þó er
um að gera að vega upp á móti með
bjartari litum, til dæmis með glaðleg-
um trefli, sokkabuxum eða bara kjól.
Svo er um að gera að nýta léttu glað-
legu sumarkjólana sína með því að
klæðast hlýlegum flíkum með,“ segir
Hugrún og bætir við að tískan sé und-
ir áhrifum frá fyrri hluta síðustu aldar.
„Svona eins og eftirstríðsárin í bland
með smá pönki, sem getur verið
ansi skemmtilegt tvist. Mittin koma
meira fram í stað víðskornu snið-
anna sem hafa verið svo allsráðandi
og litlir axlapúðar skemma stundum
ekki. Efnin eru hlý og notaleg, silki-
flauel í bland með ullarefnum og allar
prjónasokkabuxurnar ættu að halda
manni hlýjum í vetur.
Herrarnir eru að færast frá því að
vera strákslegir í að vera herralegir
með þar til gerðum fylgihlutum og eru
óhræddir við að sýna glæsileika sinn.
Þeir verða karlalegri, í skyrtu, þykkri
góðri prjónapeysu, jafnt hnepptri
sem óhnepptri með vel greitt hárið og
skegg í stíl. Skó, sokka og góðan húm-
or er svo nauðsynlegt að hafa til að
krydda upp á tilveruna í kuldanum.“
indiana@dv.is
Hugrún Árnadóttir eigandi Kron og Kronkron segir hausttískuna
minna á eftirstríðsárin í bland við pönk:
Herralegir karlmenn
UmsJón: indíana Ása Hreinsdóttir, indiana@dv.is
l Leikkonan
Lisa Rinna
þykir flottur
kroppur þótt
hún hafi látið
krukka einum
of mikið í and-
litið á sér að
flestra mati.
Í viðtali við
US Magazine
sagðist leik-
konan æfa
sex daga vikunnar í tvo tíma í senn
til að viðhalda línunum. „Ég borða
bara gróft brauð og grænmeti,“
sagði Lisa einnig í viðtalinu og
bætti við að hún sé mjög meðvit-
uð um magann á sér eftir að hafa
gengið með tvö börn sín. „Ég er
alltaf að gera magaæfingar.“
l Samkvæmt Muscle & Fitn-
ess-tímaritinu hefur glamúrgell-
an Kim Kardashian ráðið til sín
stjörnueinkaþjálfarann Gunnar
Peterson sem
hefur meðal
annars þjálfað
Jennifer Lopez,
Angelinu Jolie
og Matthew
McConaughey.
Kim segist eiga
auðveld-
ara með að
borða hollan
mat ef hún
sé dugleg
í ræktinni.
„Fólk leitar
auðveldra leiða til að halda sér í
formi en staðreyndin er sú að auð-
velda leiðin er ekki til. Því meira
sem ég æfi því meira samvisku-
bit fæ ég yfir því að svindla svo ég
æfi bara meira og svindla minna,“
segir Kim sem segist borða fisk og
grænmeti í flestar máltíðir.
l Kántrísöng-
konan Taylor
Swift þykir lík-
lega of grönn
að margra
mati en Swift
segist halda
sér í formi
með því að
borða nánast
bara hráfæði.
Fjölmiðlakonan Sirrý segir mikilvægt að við treystum einhverjum fyrir því hvernig
okkur líður svo við breytumst ekki í áhyggjufullan köggul. Hins vegar, segir Sirrý,
megum við ekki nöldra yfir öllu við alla. Sirrý og Bjargey Aðalsteinsdóttir íþrótta-
fræðingur verða með námskeið fyrir konur þar sem áhersla
verður lögð á góða heilsu, hvíld og skemmtilegheit.
50 föstudagur 2. október 2009 lífsstíll
Stjörnurnar
halda Sér
í formi
Flottur kroppur
magaæfingarnar gera
greinilega sitt gagn.
Kim Kardashian
Glamúrgellan er
komin til eins þekkt-
asta einkaþjálfara
í heimi, Gunnars
Peterson.
Lifir á hráfæði
söngkonan mætti
stækka matar-
skammtinn sinn en
hún þykir of grönn.
Hugrún Árnadóttir í Kron
Gleðst þegar hausta tekur.
„Við ætlum að byggja okkur upp fyr-
ir veturinn, hugsa um heilsuna, hvíla
okkur og hafa gaman,“ segir Sigríður
Arnardóttir, fjölmiðlakona og félags-
fræðingur, sem mun halda námskeið-
ið Hafðu það gott ásamt Bjargeyju
Aðalsteinsdóttur íþróttafræðingi um
miðjan mánuðinn.
„Hvort sem þú ert ein, með
saumaklúbbnum, mömmu eða vin-
konu er námskeiðið fyrir allar konur
sem vilja hlusta á uppbyggilega fyr-
irlestra, spá í hvað við getum gert til
að fjölga hamingjuhormónum í lík-
amanum þrátt fyrir efnahagsástand,
njóta nudds, syngja, dansa og hreyfa
sig,“ segir Sirrý en námskeiðið verður
haldið á Hótel Hamri rétt við Borgar-
nes.
„Þegar við komum á staðinn fáum
við heilsukokkteil í móttökunni og
eftir fyrirlestra, spjall og skemmtilega
dagskrá endum við kvöldið á heilsutei
eða jafnvel hvítvínsglasi úti í heitum
pottum í þessari dásamlegu náttúru.
Um morguninn förum við svo í kraft-
göngu þar sem hver gengur á sínum
hraða, gerum létta leikfimi úti undir
berum himni og fáum okkur mat sem
er góður fyrir líkama og sál og gerum
uppörvandi og nærandi verkefni sem
láta okkur líða vel.
Dagskránni lýkur svo klukkan 18
á laugardeginum en þá geta þær sem
vilja nýtt sér tælandi tilboð og fengið
makann til sín á hótelið eða bara far-
ið heim og notið þess sem eftir er af
helginni.“ Sirrý segir fyrirlestra sína
lítið hafa breyst þótt efnahagsástand-
ið hafi breytt ýmsu í lífi margra.
„Mínir fyrirlestrar hafa alltaf geng-
ið út á heilbrigðan lífsstíl, jákvætt
hugarfar og jafnvægi. Þannig að það
sem skiptir mann mestu máli; heilsa,
fjölskylda, fjárhagur, umhverfi, sjálfs-
traust, tengslanet, starf og fleira vinni
saman. Eitt má ekki gera út af við ann-
að. Og í dag er fólk líklega móttæki-
legra fyrir þeirri hugsun.
Til þess að hafa það virkilega gott
megum við ekki skemmta okkur svo
mikið að það komi niður á fjárhagn-
um, börnunum okkar eða heilsunni.
Það er ákveðin kúnst að rækta sig og
finna þetta jafnvægi og það hefur ekk-
ert með kreppu að gera.“ Spurð um ráð
handa þeim sem líður ekki vel vegna
ástandsins segir Sirrý nauðsynlegt að
fólk hreyfi sig og hvíli sig. „Það mæðir
svo mikið á sumu fólki. Fréttatímarnir
eru bara mörgum álag. Og eftir þetta
efnahagslega ofbeldi sem þjóðin varð
fyrir þarf fólk að muna að hvílast. Og
ræða hugsanir sínar. Við verðum að
treysta einhverjum fyrir því hvern-
ig okkur líður: Segðu það steininum
heldur en engum. Og munum að
maður er manns gaman.
Ef við erum að glíma ein við van-
líðan og áhyggjur breytumst við í
áhyggjufullan köggul. Við verðum að
orða hlutina upphátt við einhvern
sem við treystum. Hins vegar verðum
við að passa hvaða mynd við erum að
gefa af okkur og skulum ekki nöldra
og kvarta yfir öllu við alla sem við
hittum. Þótt vandamálin virðast stór
erum við stærri en aðstæður okkar.
Við erum líka manneskjur með sál,
kosti og styrkleika.
Ekki gefa af okkur þá mynd að við
séum vandamálabúnt því það lokar
á gullin tækifæri sem gætu gefist. Já-
kvæðir hlutir eru líklegri til að gerast
ef við gefum af okkur jákvæða mynd.“
Hægt er að lesa meira um námskeiðið
á sirry.is.
indiana@dv.is
Kúnst að finna
jafnvægið
Kúnst að finna jafnvægi „til þess
að hafa það virkilega gott megum við
ekki skemmta okkur svo mikið að það
komi niður á fjárhagnum, börnunum
okkar eða heilsunni,“ segir sirrý.
Sirrý og Bjargey Verða með
skemmtilegt námskeið fyrir allar konur
á hótel Hamri um miðjan október.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf