Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Qupperneq 4
Sandkorn n Bóksalinn Bjarni Harðarson er á góðu róli með bók sína, Svo skal dansa, sem hann skrif- ar út frá sögu formæðra sinna. Bjarni er á fleygiferð um land- ið með upplestra úr bókinni milli þess sem hann selur ritið og kynnir á kaffi- húsi sínu, Sunnlenska bókakaff- inu. Í síð- ustu viku var slegið aðsóknarmet á kaffihúsinu þegar Vestfirska forlagið kynnti bækur sínar, meðal annars smásagnakver Ólafs Helga Kjartanssonar, sýslumanns á Selfossi. Troðfullt var út úr dyr- um hjá Bjarna sem sjálfur varð að skjótast annað til að lesa upp úr eigin bók. n Kjartan Gunnarsson, fyrr- verandi bankaráðsmaður Landsbankans, hefur látið lítið fyrir sér fara undanfar- ið. Þó er hermt að hann beiti sér í máli Haga og vilji tryggja að eignarhald fyrirtækisins falli í aðrar hendur en Jóhannesar Jóns- sonar í Bónus. Giskað er á að Kjartan sé í samstarfi við Jón Gerald Sullenberger og er í því samhengi nefnt að sést hafi til hans nokkrum sinnum í nýrri verslun Jóns Geralds. Þar hefur hann gengið um kerrulaus og með nokkrum valdsmanns- brag. 4 föstudagur 20. nóvember 2009 fréttir Pálmi Haraldsson athafnamað- ur, kenndur við eignarhaldsfélagið Fons, sver af sér öll eigendatengsl við eignarhaldsfélagið FS37 ehf., sem síðar var endurnefnt Stím. Hann seg- ir að öfugt við það sem fram komi í ársreikningi félags í eigu Fons, FS38 ehf., frá árinu 2007 hafi Fons aldrei átt FS37. FS38 lánaði FS37 2,5 milljarða króna, samkvæmt ársreikningi FS38, og voru þeir fjármunir síðan notað- ir af FS37, síðar Stím, til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group í nóv- ember árið 2007 fyrir 25 milljarða króna sem að mestu voru fengnir að láni frá Glitni. Glitnir lánaði FS38 ehf. milljarðana 2,5 sem síðan voru end- urlánaðir til FS37. Endurskoðandi Pálma hjá KPMG hefur sent ársreikningaskrá bréf sem dagsett er 17. nóvember 2009 þar sem þess er farið á leit að ársreikn- ingur FS38 frá árinu 2007 verði lag- færður og að tekin verði út skýring þar sem fram kemur að FS37 hafi verið í eigu Fons. Meint eignarhald Fons á FS37, síðar Stím, er því sam- kvæmt þessu byggt á mistök- um sem endurskoðandi Fons gerði í ársreikningi FS38. Stímmálið verður bráð- um sent frá Fjármálaeftir- litinu til sérstaks saksókn- ara því grunur leikur á að um markaðsmisnotk- un hafi verið að ræða þar sem tilgangur viðskipt- anna með bréfin í félög- unum hafi verið að falsa eftirspurn eftir þeim á markaði og hækka verð þeirra. Glitnir bauð Pálma að taka þátt Pálmi segir að eina aðkoma Fons að málinu hafi verið sem milligönguað- ili í lánveitingunni frá bankanum og inn í Stím, þá FS37. „Ástæðan fyrir því að Fons tók þátt í þessu verkefni er að starfsmenn Glitnis kynntu þetta fyrir mér sem fjárfestingaverkefni og seldu mér þess fjármálaafurð,“ segir Pálmi. „Ég tel að ástæðan fyrir því að Fons var boðið að taka þátt í þessu hafi verið sú að staða Fons var gríðar- lega sterk á þessum tíma,“ segir Pálmi en líkt og DV hefur áður greint frá leitaði Glitnir til margra fjárfesta og bauð þeim að taka þátt í hlutabréfa- kaupunum, sem síðar voru kennd við Stím, meðal annars til Þorsteins Más Baldvinssonar í Samherja og fjárfest- ingafélagsins Gnúps svo einhverjir séu nefndir. „Í þessari fjármálaafurð fólst að Glitnir lánaði FS38, sem er í eigu Fons og var stofnað sérstaklega til að taka þátt í þessu verkefni, 2,5 millj- arða sem félagið lánaði svo til FS37,“ segir Pálmi. Gert til að græða á því, segir Pálmi Pálmi segir að ástæðan fyrir því að Fons tók þátt í verkefninu hafi verið til að græða á því. „Fyrsta þóknun mín var sú að ég fékk vaxtamun greiddan. Það var fjögurra prósenta munur á vöxtunum á láninu sem FS38 fékk frá Glitni og því sem félagið lánaði svo til FS37. Það þarf nú ekki mikinn spek- ing til að sjá að þetta gefur hundrað milljónir á ári,“ segir Pálmi og bæt- ir því við að FS38 hafi einnig fengið greitt hagstæðara lántökugjald þeg- ar félagið endurlánaði FS37 en þegar það tók lánið hjá Glitni, félagið hafi því grætt þar sömuleiðis á mismun- inum. Rúsínan í pylsuendanum fyr- ir Fons hefði verið ef Stímverkefn- ið hefði skilað hagnaði því hluti af samningi félagsins við Glitni var að Fons átti að fá hlutdeild í hagnaði fé- lagsins af hlutabréfa- kaupunum. „Síð- ast en ekki síst fær Fons sex prósent af söluhagnaðin- um ef hagnaður myndast af verk- efninu. Ef hagn- aðurinn hefði ver- ið 500 milljónir hefði Fons fengið 30,“ segir Pálmi. Engin áhætta, segir Pálmi Pálmi segir aðspurður að því hafi ekki verið erfitt að ákveða að taka þátt í verkefninu. „Ekki var nú mikil áhætta í verkefninu, þú ert nú búinn að komast að því... Hvað hefðir þú gert? Ef þú setur þig bara í mín spor og ákveður hvort þú eigir að taka þátt í verkefninu fyrir hönd Fons... Glitnir kemur bara með verkefnið inn á borð til mín og á frumkvæði að því algerlega. Ég kem hvergi þar ná- lægt. Þeir bara selja mér þetta verk- efni alveg eins og sölumaður sem er að selja bíl, skrifborð, stól, flugmiða, bíl eða tölvu eða hvað annað. Síðan eiga menn bara í samningaviðræð- um og niðurstaðan verður sú að Fons stofnar þetta sjálfstæða félag í kring- um þetta til að taka þetta lán,“ segir Pálmi. Hluti af samkomulagi Fons við Glitni var að félag Pálma gat hent FS38 aftur í bankann ef það kærði sig um og gengið þannig frá verkefninu án þess að tapa neinu á því, „skilað þeim afurðinni“ eins og Pálmi orð- ar það. Þetta gerði Fons eftir banka- hrunið í haust samkvæmt heimild- um DV. „Ég gat skilað þeim afurðinni. En það verður að athuga að á þess- um tíma velti enginn því fyrir sér að bréfin gætu orðið verðlaus. Engum datt í hug að þessi bréf gætu tapast. Mér fannst þetta hin besta fjármála- afurð á þeim tíma og hún var í sjálfu sér aldrei slæm af því að maður lenti aldrei í tjóni út af þessu,“ segir Pálmi. Samkvæmt því sem Pálmi seg- ir liggur ábyrgðin í Stímmálinu fyrst og fremst hjá Glitni en ekki hjá hon- um og öðrum utanaðkomandi þátt- takendum í málinu eins og hluthöf- unum sem mynduðu Stímhópinn á endanum. Stímkaupin virðast hafa verið skipulögð af stjórnendum og eigendum Glitnis til að þjóna hags- munum þeirra í gegnum Glitni og FL Group. Því má ætla að rannsókn sérstaks saksóknara beinist fyrst og fremst að stjórnendum og eigend- um Glitnis og stærsta hluthafans, FL Group: þeim Lárusi Welding, Þor- steini M. Jónssyni, Jóni Ásgeiri Jó- hannessyni og þeim starfsmönnum Glitnis sem sáu um Stímmálið. PÁLMI: GLITNIR BAUÐ FONS ÞÁTTTÖKU Í STÍMI „Mér fannst þetta hin besta fjármálaafurð á þeim tíma og hún var í sjálfu sér aldrei slæm af því að maður lenti aldrei í tjóni út af þessu.“ Pálmi Haraldsson segir að Fons hafi aldrei átt eignar- haldsfélagið FS37, sem síð- ar varð Stím. Mistök end- urskoðanda Pálma urðu til þess að í ársreikningi félags í hans eigu kemur fram að Fons hafi átt félagið. Pálmi segist hafa tekið þátt í Stímmálinu því Glitnir hafi leitað til hans og vegna þess að hann gat grætt á viðskiptunum. Hann segir áhættuna fyrir sig og Fons hafa verið enga. InGI F. VIlHjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is Glitnir biðlaði til Fons Pálmi segir að starfsmenn Glitnis hafi beðið Fons um að taka þátt í Stímverkefninu. Hann segist hafa tekið þátt til að græða á því. stjórnendurnir Rannsókn sérstaks saksóknara á Stímmálinu mun væntanlega fyrst og fremst beinast að stjórnendum og eigendum Glitnis og FL Group, stærsta hluthafa Glitnis. Meðal annars Lárusi Welding, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Þorsteini M. Jónssyni auk starfsmanna bankans. Leiðrétting Í Suðurlandsblaði DV á mið- vikudaginn var Magnús Hlynur Hreiðarsson ranglega titlaður rit- stjóri Sunnlenska fréttablaðsins. Hið rétta er að Magnús Hlynur er ritstjóri Dagskrár. Einnig var sagt að jólasveinar kæmu til byggða í Árborg þann 11. desember, en þeir munu ekki koma af fjöllum fyrr en laugardaginn 12. desem- ber. Hvort tveggja leiðréttist hér með og er beðist velvirðingar á mistökunum. Örugg og góð þjónusta í 25 ár. MYND Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði S: 565 4207 www.ljosmynd.is Pantaðu jólamyndatökuna tímalega
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.