Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Síða 17
helgarblað 20. nóvember 2009 föstudagur 17 RISINN Á BAK VIÐ KRÓNUNA og fína fólksins í Suður-Evrópu,“ seg- ir einn af heimildarmönnum DV. Það liggur því kannski í augum uppi að Jón Helgi var ekkert allt of hrifinn af þróuninni í íslensku við- skiptalífi á liðnum árum og sagði hann meðal annars í viðtali við Morgunblaðið árið 2005 að íslenski verðbréfamarkaðurinn einkennd- ist af því sem hann kallaði „hákarla- gang”, og átti þá væntanlega við þá tilhneigingu sumra kaupsýslumanna að hugsa eingöngu um að kaupa og selja hlutabréf án þess að velta fyrir sér rekstri. Öfugt við þá sagðist hann vilja byggja fyrir- tæki upp frá grunni. Harður í horn að taka Jón Helgi hefur orð á sér fyrir að vera mjög harður í horn að taka í viðskiptum, enda ólíklegt að menn gætu náð eins langt og hann án þess að vera með bein í nefinu. Jón Þór segir að hann sé gríðarlega heilsteyptur maður. „Hann er mjög heil- steypt- ur maður. Hæfur viðskiptamaður og gríðarlega fylginn sér, auk þess sem hann kemur vel fram við fólkið í kringum sig,” segir Jón Þór. Jón Helgi keypti hlut Jóns Þórs og fjölskyldu hans í BYKO árið 1995 en fyrir höfðu þeir báðir átt 50 prósent í fyrirtækinu ásamt systkinum sínum. Feður þeirra, Guðmundur H. Jóns- son og Hjalti Bjarnason, stofnuðu BYKO saman árið 1962. „Við gerð- um uppskipti á þessum tíma. Maður var búinn að vera í þessu í 30 ár og það voru komin önnur tækifæri. Við skildum bara í mjög góðu ... Ég hef ekkert nema gott um Jón Helga að segja og umgengst hann af heilum hug í dag. Við spilum tennis saman tvisvar til þrisvar sinnum í viku og hittumst utan þess líka,“ segir Jón Þór. Ekki eru þó allir sammála skoð- unum Jóns Þórs á Jóni Helga og seg- ir einn af heimildarmönnum DV að Jón geti verið afar tuddalegur í fram- komu. „Hann er eldklár maður en al- veg ótrúlegur eiginhagsmunaseggur. Hann getur verið ótuktarlegur í fram- komu og er mikill valdsmaður sem vill sýna öðrum hver ræður,“ segir heimildarmaðurinn. Ísafoldar-sagan Ein af fáum virkilega neikvæðu frétt- um sem sagðar hafa verið um Jón Helga á liðnum árum, sem undir- strika þá skoðun sumra viðmælenda DV að Jón vilji sýna hvar valdið ligg- ur, er sú að hann hafi tekið tímaritið Ísafold úr sölu úr verslunum félags- ins sumarið 2007 vegna greinar sem birtist í því um mansal á súlustaðn- um Goldfinger í Kópavogi. Í greininni var mynd af Gunnari Birgissyni, bæjarstjóra í Kópavogi, og tveimur stúlkum sem tekin var inni á Goldfinger. Ísafold var tekið úr sölu í verslunum félagsins sama dag og hefja átti sölu á þessu tölublaði. Jón Helgi þrætti fyrir að hafa tekið blað- ið úr sölu út af greininni og sagði að Gunnar Birgisson væri enginn sér- stakur skjólstæðingur sinn heldur væri það svo að hann hefði aldrei ætlað að selja tímaritið í verslunum Kaupáss til að byrja með, það hefði selst illa og væri þar af leiðandi tekið úr sölu í verslununum. Einn heimildarmaður DV segir þó að Ísafoldarmálið hafi verið dæmi- gert fyrir Jón Helga. „Hann lítur bara svo á að hann eigi hlutina og megi þar af leiðandi gera það við þá sem ByggINgAVöRUVeRSlUNIN ByKO RAftæKjAVeRSlUNIN elKO ÍþRÓttAVöRUVeRSlUNIN INteRSpORt MAtVöRUVeRSlUNIN NÓAtúN MAtVöRUVeRSlUNIN KjARVAl HúSgAgNAVeRSlUNIN HúSgAgNAHöllIN MAtVöRUVeRSlUNIN 11-11 leIgUMARKAÐUR ByKO lyfjAfyRIRtæKIÐ DIStIcA lyfjAfyRIRtæKIÐ VIStOR NORVIK-BANKI Í lettlANDI Og RúSSlANDI tIMBURVINNSlUR Í lettlANDI Og RúSSlANDI tIMBURINNflUtNINgSfyRIRtæKI Í BRetlANDI Dótturfyrirtæki Norvikur hf.: BYKO ELKO Intersport Húsaganahöllin Nóatún Krónan 11-11 Kjarval Axent EXPO BYKO-Lat Norwood Continental Wood Products Vika Wood HlUtI Af VelDI jÓNS HelgA gUÐMUNDSSONAR Í gegNUM NORVIK, StRAUMBORg Og VeRItAS cApItAl: Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkilauf Við opnum nýja Ísbúð og veitum 30% kynningarafslátt af öllum ísréttum, samlokum, salötum og gosi 17-26 okt. Nýbýlavegi 32 Nýbýlavegi 32 Opið til 22:00 alla daga Smakkaðu 200 kr ís í brauði, miðstærð Auðugur en varkár Viðmælendum DV ber saman um að Jón Helgi Guðmundsson sé mjög klár og harður fjárfestir sem leggi sig ekki eftir kast- ljósi fjölmiðlanna og forðist hégóma og prjál í lífi sínu. Hann þykir frekar varkár í viðskiptum Vinslit Hannes Smárason athafnamaður er örlagavald- ur í lífi Jóns Helga Guðmundssonar, bæði í persónu- og viðskiptasögu hans. Skilnaður Hannesar og dóttur Jóns Helga olli því að Jón seldi sig úT úr Flugleiðum árið 2004 og hætti viðskiptum með Hannesi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.