Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Síða 28
um helgina Tónleikadiskur og laTínsafn Útgáfufyrirtækið Blánótt hefur sent frá sér tvær útgáfur með tónlist Tómasar R. Einarssonar, tónleikadiskinn Live! og latínsafnið Reykjavík- Havana en það inniheldur diskana Kúbanska, Havana, Romm Tomm Tomm og Live! Latínplötur Tómasar hafa notið mikilla vinsælda hérlendis og selst samtals í meira en átta þúsund eintökum. Live! hefur að geyma níu lög frá tónleikum í Reykjavík, Moskvu og Havana. rás 2 gefur rúm Keppnin um jólalag Rásar 2 er haf- in. Keppni þessi hefur slegið í gegn undanfarin ár, enda mikið lagt í hana. Rásarmenn setja aðeins eitt skilyrði. Lagið verður að vera sungið á íslensku. Eru bestu lögin sigtuð út og geta hlustendur síðan kosið um hvert þeirra vinnur. Hægt verður að kjósa á Popplandssíðunni. Síðasti skiladagur er 1. desember þannig nú er um að gera fyrir upprennandi textasmiði að semja texta við gott og grípandi jólalag. Verðlaunin eru ekki af verri endanum, þrjú hundruð þúsund króna rúm frá Rekkjunni og hundrað þúsund króna gjafabréf í Krónunni. síðusTu skáld- sögur laxness Haukur Ingvarsson verður gest- ur Gljúfrasteins á sunnudaginn klukkan 16. Hann mun halda erindi um Skáldatíma (1963) og í framhaldinu verða umræður þar sem einnig verður vikið að skáldsögunum Kristnihald undir Jökli (1968), Innansveitarkroniku (1970) og Guðsgjafaþulu (1972). Haukur mun fjalla um þessar skáldsögur út frá nýrri rannsókn sinni sem kemur út í bókinni Andlitsdrættir samtíðarinnar - Síðustu skáldsögur Halldórs Lax- ness, en hún er nýtt verk í ritröð- inni Íslensk menning. Jón Karl Helgason mun einnig ræða við Hauk um verkin og hvetja gesti til að taka þátt í spjallinu í stofunni á Gljúfrasteini. Aðgangseyrir er 500 krónur. lögin þróuð á nærbuxunum Önnur plata hljómsveitarinn- ar Hjaltalín kemur í verslanir á mánudaginn en forsala verður um helgina í Havarí í Austurstræti og á gogoyoko.com. Gripurinn nefnist Terminal og er ætlað að fylgja eftir frumburði sveitarinnar, Sleepdrunk Seasons. Hljómsveitin eyddi stórum hluta ársins inni í Hljóðrita í Hafn- arfirði við vinnslu plötunnar ásamt Sigga og Kidda úr Hjálmum. Á öllum þessum þeytingi gaf sveitin sér þó tíma til að semja og þróa lögin, með- al annars á nærfötunum á hótelher- bergjum, níu tíma ökuferðum milli tónleikastaða, í fjallakofa í Noregi og sumarhúsi á Ítalíu. Á plötunni eru 11 lög. TÖLVULEIKUR Ekki flækja fullkominn hlut 28 fösTudagur 20. nóvember 2009 fókus Í fyrra var þrívíddarvélin kynnt til sögunnar í FM09 og bætti miklu við spilunina þótt margir hafi snemma gefist upp á því viðmóti og haldið sig við tvívíddarviðmótið sem þeir könnuðust við. Eldri tölvur áttu erf- itt með að keyra þrívíddarvélina og olli það víða vandræðum. Sports Interactive og Sega lofuðu sem fyrr hellingi af bæði viðbótum og end- urbótum í FM10. En leiknum hefur verið kollvarpað frá því í fyrra. Byrjum á jákvæðu punktunum. Leikurinn er hraðari, eftir því hvað þú keyrir margar deildir, þá hef- ur hleðslutíminn óneitanlega verið styttur og allt gengur vel og smurt fyrir sig. Skemmtileg ný viðbót er að hægt er að stilla hlutverk leikmanna miklu ítarlegar á tactics-skjánum. Þrívíddarvélin hefur verið bætt og hreyfingar leikmanna hafa verið gerðar raunverulegri. Hnökrar á því eru þó óumflýjanlegir. Sjálfur hefur undirritaður spil- að nánast hvern einasta CM- og FM-leik síðan í upphafi tíunda ára- tugar síðustu aldar til dagsins í dag og því ekki óvanur því þegar fram- leiðendur gjörbreyta öllu. Að mínu mati mistekst sú tilraun hrapallega í FM10. Notendaviðmótið hefur verið gert gríðarlega ruglingslegt og flók- ið, en tilgangurinn átti að vera akk- úrat hið gagnstæða. Fyrir fram gef- ið útlit leiksins bætir ekki úr skák og gera lítið fyrir augað. Maður á erfiðara með að sökkva sér í leik- inn og maður týnist hálfpartinn á hverri stoppistöð. Það hefur aldrei verið erfiðara að kaupa leikmenn, sem stundum er skemmtileg áskorun, en oftast nær óþolandi. Þessu má venj- ast með mikilli spilun en spilarinn má ekki missa allan áhuga áður en það gerist. Staglkennd endur- tekning blaðamanna- og starfsmannafundanna (sem er nýjung) verður þreytandi eft- ir fyrstu vikuna í „starfi“. Leikur- inn hefur eiginlega aldrei verið jafnfullur af gagnslausum, rugl- ingslegum og þreytandi fítusum. Galdurinn vantar einhvern veg- inn til að fanga mann. Get eigin- lega ekki útskýrt það öðruvísi. Í grunninn er þetta sami leikurinn með nýtt útlit og viðbætur sem gera lítið fyrir spilar- ann. Enn um sinn besti leikur sinnar tegundar á markaði. En SI Games og Sega fá gula spjaldið fyrir FM10. Sigurður Mikael Jónsson Football Manager 2010 Tegund: Knattspyrnustjóraleikur Spilast á: PC, Mac tölvuleikir „Þetta er glænýtt íslenskt nútíma- drama,“ segir Jörundur Ragnarsson leikari um leikritið Rautt brennur fyr- ir sem var frumsýnt í Borgarleikhús- inu í gær, fimmtudag. Þetta er fyrsta leikhúsárið sem Jörundur er fastráð- inn hjá Borgarleikhúsinu og því nóg um að vera á næstunni. Jörundur hefur einnig gert það gríðarlega gott í þáttaröðinni Fanga- vaktinni sem nýlega var sýnd á Stöð 2. Hann segir það hafa tekið á að leika alltaf fórnarlamb í þáttunum og að hann hafi á tímabili óttast að hann væri sjálfur að verða aumingi sökum þess. Dóra Jóhannsdóttir, kærasta Jör- undar, leikur einnig kærustu hans í verkinu Rautt brennur fyrir. Jörund- ur segist þó ekki viss um að það hafi veitt þeim forskot á sviðinu þó sam- starfið gangi vel. Undir sléttu yfirborði „Það er svolítið erfitt að segja náið um hvað verkið er án þess að gefa of mikið upp um framvindu þess,“ segir Jörundur en verkið fjallar í grunninn um tvö pör og samskipti þeirra. Í um- sögn um verkið á vef Borgarleikhúss- ins segir meðal annars: „Undir sléttu yfirborðinu leynast ógnvænlegir hlut- ir, fólk er ekki allt eins og það er séð og líf bláókunnugs fólks getur skarast með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.“ Persóna Jörundar í verkinu heitir Kristján en eins og fyrr sagði leikur Dóra kærustu hans, Maríu. „Kristján er ungur sálfræðingur sem er kom- inn með draumapíuna upp á arm- inn,“ segir Jörundur þegar hann er beðinn um að lýsa persónu sinni. „Hann er eiginlega fyrrverandi lúði og veit ekki alveg hvernig hann á að takast á við það.“ Jörundur seg- ir Kristján misskilja ástina og hugsa meira um ímyndina en það sem skipti í raun máli. „Annars er Kristján nokkuð venjulegur strákur en hefur átt í vandræðum með skapið í sér og ekki farið réttu leiðirnar til að vinna Jörundur Ragnarsson fer með eitt af aðalhlutverkunum í leikritinu Rautt brennur fyrir. Hann leikur þar á móti kærustu sinni, Dóru Jóhannsdóttur, og eru þau einnig par í verkinu. Jörundur segir það hafa tekið á að leika alltaf fórnarlamb í Fangavakt- inni og að í sumar hafi hann óttast að áhrifin yrðu varanleg. Óttaðist að breytast í aumingja Jörundur Ragnarsson Er kominn í hóp þekktustu leikara landsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.