Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Qupperneq 64
n Stjórn KSÍ, sem er í heimiklum
kampavínsbobba eftir að út spurð-
ist að fjármálastjóri sambandsins,
Pálmi Jónsson, hefði verið féflettur
rækilega á súlustaðnum Moulin
Rouge í Sviss, á hauk í horni í sú-
lukónginum Geira á Goldfinger.
Geiri er flestum mönnum líklegri
til þess að sjá í gegnum fingur sér
þegar menn spreða fé við danssúl-
ur og hann kom fjármálastjóranum
til varnar á Facebook-síðu sinni á
fimmtudagskvöld í kjölfar fréttar
DV.is um að fjórðungur stjórnar-
manna í KSÍ teldi hugsanlegt að
Pálma yrði vikið frá störfum. „Hvað
er að þessu fólki? Rauða myllan
er einn af dýrustu strippklúbbum
Evrópu, það eru kannski mistök að
fara þangað inn og bjóða stelpum
kampavín en höfum það í
huga að það að fara inn
á gleðihús kostar 100-
200 evrur svo ekki hefur
hann gert mikið af sér
strákurinn inni
á Rauðu myll-
unni,“ skrif-
aði Geiri á
Facebook-
síðu sína.
Er syndaflóð
í kortunum?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Fyrst hann er kominn með ann-
an fótinn inn í nútímann með því að
vera á Facebook fannst mér tilvalið að
hjálpa honum,“ segir Sveinn Jóhann-
esson Kjarval, sem skráir sig sem út-
rásarvíking í símaskránni, en hann
skrifaði athugasemd við hugvekju
Karls Sigurbjörnssonar á Facebook-
síðu biskupsins sem vakið hefur tals-
verða lukku.
„Guð, við biðjum um kraftaverk
endurnýjunarinnar á þessum myrk-
asta tíma ársins: Um von og traust
á sigur ljóssins þegar skammdegið
virðist ríkja, um hugrekki til að leita
leiða friðar og sátta, um hjálp til að
trúa á sigur hins varnarlausa kær-
leika, friðar og réttlætis þegar storm-
ar fordóma, haturs og ranglætis geisa.
Faðir vor, tilkomi þitt ríki,“ sagði bisk-
up í Facebook-status sínum og Sveinn
svaraði um hæl að það þyrfti nú ekki
að biðja til neins Guðs svo skamm-
deginu lyki.
„Möndulhalli jarðar veldur því að
við fáum minni birtu hluta ársins en
það lagast venjulega að sama skapi
með vorinu,“ segir útrásarvíkingur-
inn glettinn við hugvekju biskups-
ins. „Hann hefur ekki brugðist neitt
við ennþá. Hann er kannski ennþá á
Vísindavefnum að lesa sér til,“ segir
Sveinn.
Prúðmennið
hjá KSÍ
Tæknivæddur biskup skotspónn á Facebook:
réttir biSKuPi hjálParhönd
n Leikarinn Stefán Karl Stefáns-
son skrifar langa grein á banda-
rísku leikaravefsíðunni Backstage
þar sem hann lýsir ferli sínum frá
því hann flutti til Los Angeles árið
2005. Í greininni segir hann frá því
þegar hann hitti fræga umboðs-
menn í Hollywood sem skildu ekk-
ert af hverju hann flutti til landsins,
enda engin eftirspurn eftir íslensk-
um leikurum vestan hafs. Þá minn-
ist hann á góðærið 2007 og segir
Ísland hafa breyst mikið síðan þá.
Að nýríku útrásarvíkingarnir hafi
þá getað leyft sér að ráða
Elton John og Tinu
Turner til að spila í
partíum en nú, tveimur
árum seinna, hafi þetta
sama fólk ekki einu
sinni efni á að ráða
ömmu Stefáns. Og
tekur hann fram að
hún sé ansi lunkin
á gítar.
amma SPilar
á gÍtar
n Handboltamanninum Einari
Erni Jónssyni er margt til lista lagt,
eins og sést í nýjasta hefti Stúd-
entablaðsins sem gefið er út af
stúdentaráði Háskóla Íslands. Þar
starfar Einar sem blaðamaður og
virðist vera jafnfimur með penn-
ann og hann er með boltann. Einar
tekur viðtal við Ólaf Þ. Harðarson,
prófessor í stjórnmálafræði við Há-
skóla Íslands, og gerir
það af stakri prýði.
Einar vakti verð-
skuldaði athygli um
síðustu helgi þegar
hann skoraði sigur-
mark Hauka gegn
liðinu PLER frá
Ungverjalandi. Það
virðist því allt vera á
uppleið hjá þessum
fjölhæfa hauk.
úr handbolta
Í blaðamennSKu
Hvað er eiginlega að
gerast á Íslandi?
Er allt að verða vitlaust?
Fyndin og tímabær saga um blóðugan
samtímann eftir óþekktarorm
íslenskra bókmennta
„... feikna stílisti ... fyndinn og beittur í gegn ...“
Hrund Ólafsdóttir, Morgunblaðið
„Hin frábæra Gæska Eiríks Arnar Norðdahl
er þannig hrunsbók með óvæntum snúningi …“
Árni Matthíasson, Morgunblaðið
Saga með kraumandi ástríðum, öfund
og undirferli eftir rithöfundinn, mynd-
listarmanninn og listgagnrýnandann
Rögnu Sigurðardóttur
„... bók sem vekur til umhugsunar ...“
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir / bokmenntir.is
„Vel skrifuð og vel unnin ... látlaus á yfirborðinu en
þarna býr margt undir niðri. Þannig gerð að hún
situr í manni eftir lesturinn.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
„Vel kompónerað verk, margföld í roðinu þessi saga.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Kiljan
Fullkomið landslag
En hvað býr undir niðri?
DV0906256524_
012_2.jpg
Leiðir biskup í allan sannleikann
„Útrásarvíkingurinn“ sveinn ákvað að
hjálpa biskupi íslands og leiða hann í
allan vísindalega sannleikann um
birtustigið á norðurhveli jarðar.