Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Síða 8
Að verA Ögmundur
n Ekki er það alveg tekið út með sæld-
inni að vera Ögmundur Jónasson
þessa dagana.
Enda er hann
maður sem berst
fyrir ráðherrasæti
sem hann kastaði
frá sér fyrir nær
ári. En þeir sem
hugsa djúpt um
mannleg sam-
skipti og trúverð-
ugleika eru þess vissir að þótt Ög-
mundur telji sjálfur að hann hafi haft
erindi sem erfiði sé innganga hans
í núverandi ríkisstjórn háð marg-
víslegum skilyrðum. Hann sé í raun
búinn með brotthlaupskvóta sinn og
verði nú að fylgja flokkslínunni með
meiri aga en hingað til. Meðal stjórn-
arliða er nú hvískrað að „órólega
deildin“ innan VG sé á skilorði.
villikettir –
heimiliskettir
n Gárungarnir eru fljótir að sjá
skondnar hliðar á pólitíkinni og
draga hana sundur og saman í háði
og spotti. Kristján L. Möller fráfarandi
samgönguráðherra sló á létta strengi
þegar fréttamenn spurðu hann hvort
ekki væri sársaukafullt að standa upp
úr ráðherrastóli. Hann hélt varla en
rifjaði upp ummæli Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra um að
samstarfið við VG í stjórnarmeirihlut-
anum væri eins og að smala köttum.
Þetta fór afar illa í „órólegu deildina“
á sínum tíma. Kristján L. spurði í
þessu sambandi hvort verið væri að
skipta út blíðum heimilisköttum fyrir
villiketti.
steinhÖrð gAgnrýni
n Guðmundur Ólafsson hagfræðing-
ur sendi tilteknum hagfræðingum
og spunamönnum tóninn á Rás 2 og
sakaði þá um að blanda saman skoð-
unum sínum inn í hreina hagfræði.
Meðal annars með því að heimta að
áfengi og tóbak verði tekið út úr vísi-
tölunni og að halda því að fólki að
lán hækki þegar krónan fellur í verði.
Hið sanna sé að lánin standi í stað á
meðan gjaldmiðilinn rýrni. Auk þess
varði hagfræðinga ekkert um skoðan-
ir manna á neyslu, hvort heldur það er
áfengisneysla eða harðfiskát. Víst er
talið að sendingin hafi verið ætluð Ól-
afi Ísleifssyni, Jóni Þór Sturlusyni og
Ólafi Arnarsyni skríbent á Pressunni.
„Þó Að peningAnA
skorti… “
n Ljósanótt var sett formlega í Reykja-
nesbæ síðastliðinn fimmtudagsmorg-
un. Börn slepptu blöðrum og sitthvað
fleira skemmti-
legt var gert. Árni
Sigfússon bæj-
arstjóri stjórnaði
við þetta tækifæri
fjöldasöng. Kom
þar sögu að Árni
fór fyrir söng
Rúnars Júlíus-
sonar við texta
Þorsteins Eggertssonar þar sem finna
má efirfarandi: „Þó að peningana
skorti getur hamingjan oft gert menn
æði ríka.“ Þegar gestir meðtóku boð-
skap textans gátu margir þeirra ekki
stillt sig og skelltu upp úr. Svo vill til
að Reykjanesbær er nær gjaldþrota og
á bæjarstjórinn varla peninga til dag-
legra útgjalda sveitarfélagsins.
sandkorn
8 fréttir 3. september 2010 föstudagur
Ragnhildur Sverrisdóttir, talskona
Björgólfs Thors Björgólfssonar, neit-
ar að gefa það upp hvaða starfs-
menn Novators það voru sem héldu
utan um fimm prósenta hlut í félag-
inu Given shire Equities Limited sem
Björgólfur átti fimm prósenta hlut í.
Givenshire, sem skráð var í Lúxem-
borg, var félagið sem hélt utan um
eignarhlut Björgólfs í eignarhaldsfé-
laginu Samson, móðurfélagi Lands-
bankans. Samson átti 41 prósents hlut
í Landsbanka Íslands og var kjölfestu-
fjárfestir í bankanum og ráðandi aðili
frá 2003 til ársins 2008.
Ástæðan fyrir því að eignarhaldið
á Givenshire gæti skipt máli er sú að
ef Björgólfur Thor hefði átt 20 prósent
eða meira í Landsbankanum í gegn-
um Samson hefði verið litið á hann
sem tengdan aðila í bankanum. Líkt
og fram kom í frétt Ríkissjónvarpsins
í fyrrasumar báru stjórnendur Lands-
bankans, þeir Halldór J. Kristjánsson
og Sigurjón Þ. Árnason, því við, þeg-
ar þeir voru spurðir hvort þeir ótt-
uðust niðurstöðu Fjármálaeftirlits-
ins í rannsókn stofnunarinnar um
hvort Landsbankinn hefði farið fram
úr reglum um áhættuskuldbindingar
til tengdra aðila, að Björgólfur hefði
ekki verið tengdur aðili þar sem hann
hefði hvorki átt 20 prósent í bankan-
um né setið í stjórn. Niðurstaðan var
því sú, samkvæmt frétt RÚV, að stjórn-
endur Landsbankans hefðu ekki litið
á Björgólf sem tengdan aðila sam-
kvæmt reglum bankans.
Rannsókn Fjármálaeftirlitsins
Í umræddri frétt RÚV var fjallað um
lánveitingu frá Landsbankanum í
Lundúnum upp á 43 milljarða króna
til félags í eigu Björgólfs Thors sem
heitir Novator Pharma árið 2007.
Lánið var það langstærsta í lánabók
Landsbankans þar í borg.
Sú lánveiting var sett í samhengi
við rannsókn Fjármálaeftirlitsins á
því hvort lánveitingar Landsbankans
til eigenda bankans hefðu farið fram
yfir lögbundin mörk um hámarks-
lánveitingar til tengdra aðila. Sam-
kvæmt lögum um fjármálafyrirtæki
má þessi áhætta vegna tengdra aðila
ekki fara yfir 25 prósent af eiginfjár-
grunni banka. Í kjölfarið var það haft
eftir fyrrverandi stjórnendum bank-
ans að þeir óttuðust ekki niðurstöðu
Fjármálaeftirlitsins þar sem Björgólf-
ur hefði ekki átt yfir 20 prósent í bank-
anum og ekki verið stjórnarmaður í
honum.
Fimm prósenta eignarhald starfs-
manna Novators, sem Ragnhildur
hefur staðfest, þýddi að óbeinn eign-
arhlutur Björgólfs í Landsbankanum
var kominn niður fyrir 20 prósent.
Skilgreiningin á því hvort Björgólfur
var tengdur aðili í Landsbankanum
eða ekki hangir því á því hvernig eign-
arhaldinu á Givenshire var háttað.
Nöfnin ekki gefin upp
DV leitaði eftir svörum hjá Ragn-
hildi við þeirri spurningu hvort Björ-
gólfur hefði átt Givenshire einn eða
hvort aðrir aðilar hefðu átt í félaginu
með honum. Eftir nána eftirgrennsl-
an svaraði Ragnhildur spurning-
unni þannig að Björgólfur hefði allt-
af átt meirihluta í félaginu en að lítill
hluti hefði verið í eigu annarra aðila.
„Björg ólfur Thor hefur alltaf átt lang-
stærstan hluta Given shire einn. Um
tíma átti félag í eigu nokkurra starfs-
manna Novators lítinn hluta,“ sagði
hún.
Þegar Ragnhildur var spurð að því
hversu stóran hluta Björgólfur hefði
átt og hversu stór hluti hefði verið í
eigu starfsmanna Novators sagði hún:
„Þetta félag í eigu starfsmanna Nova-
tors átti aðeins lítinn hlut, bara nokk-
ur prósent, og líklega um 5% þegar
mest var.“
Þegar þarna var komið sögu lá því
ljóst fyrir að Björgólfur hefði átt 95
prósent í félaginu á móti félagi starfs-
manna Novators. Því lá beint við að
spyrja Ragnhildi hvaða starfsmenn
Novators hefðu átt í Givenshire. Hún
vildi ekki veita þessar upplýsingar:
„Þetta var félag í eigu nokkurra starfs-
manna Novators. Ég gef ekki upp nöfn
þeirra.“
Þegar Ragnhildur var spurð af
hverju hún vildi ekki gefa upp nöfn
þessara starfsmanna sagði hún:
„Starfsmenn Novators hafa ekki verið
ein föst stærð í gegnum tíðina, þarna
hafa menn komið og farið. Það er al-
gjörlega ástæðulaust að tíunda nöfn
þeirra sem áttu aðild að félagi sem átti
mest 5% í Givenshire.“
Þessar upplýsingar þýða því að fé-
lag sem var í eigu starfsmanna Björg-
ólfs gerði það að verkum með eignar-
haldi sínu á Givenshire að Björgólfur
var ekki skilgreindur sem tengdur að-
ili samkvæmt reglum Landsbanka Ís-
lands og gat þess vegna fengið meiri
og greiðari aðgang að lánum frá bank-
anum. Ekki liggur fyrir, þar sem upp-
lýsingar um nöfn þessara starfsmanna
Novators fást ekki gefin upp, af hverju
þessir starfsmenn Björgólfs ákváðu að
eignast 5 prósenta hlut í Given shire
Equities Limited. Hins vegar er ljóst
að þetta eignarhald þessara starfs-
manna hafði góð áhrif fyrir Björgólf
Thor og gerði það að verkum að staða
hans innan Landsbankans var ákjós-
anlegri fyrir vikið þar sem hann var
ekki skilgreindur sem tengdur aðili.
iNGi F. viLhJÁLMSSoN
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Þetta félag í eigu starfsmanna
Novators átti aðeins
lítinn hlut, bara nokkur
prósent, og líklega um
5% þegar mest var.
áttu LEYNIHLut Í
LaNdsbaNkaNum
Björgólfur Thor Björgólfsson átti minna en 20 prósent í Landsbanka Íslands fyrir
hrun vegna þess að starfsmenn hans héldu utan um 5 prósenta eignarhlut í félaginu
sem átti hlutabréfin. Ekki hefur fengist gefið upp um hvaða starfsmenn ræðir. Við
þetta fór óbeint eignarhald Björgólfs í bankanum niður fyrir 20 prósent.
Traustir starfsmenn Eignarhald
starfsmannaBjörgólfsThorsá
hlutabréfumífélagihanssemhéltutan
umeignhansíSamson,móðurfélagi
Landsbankans,gerðiþaðaðverkumað
ekkivarlitiðáhannsemtengdanaðila.
FU
RS
TY
NJ
AN
Söfnunarstell 13 teg. á lager - Pöntum inn í enn fleiri stell
Hnífaparatöskur
f/12m. 72 hlutir
margar
gerðir
Hitaföt - margar gerðir
Líttu á www.tk.is
ÍTALSKUR KRISTALL
K r i n g l u n n i - S í m i : 5 6 8 9 9 5 5
40
ára
Vörur á verði fyrir þig
Ótrúlegt glasaúrval á frábæru verði
Verum vinir á
- mikið úrval
RÚMFÖT
afsláttur
Fallegar
gjafir