Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR 3. september 2010 FÖSTUDAGUR
TÖLVUBRÉF STAÐFESTA
ORÐ PÁLMA UM OFMAT
Tölvupóstar sem Viðskiptablaðið
hefur undir höndum staðfesta að
helstu stjórnendur og eigendur FL
Group ofmátu þær eignir vísvitandi
sem settar voru inn í eignarhalds-
félagið Northern Travel Holding
árið 2008. Blaðið fjallaði um málið
á fimmtudaginn og mun halda því
áfram næstu vikurnar. Vísar blað-
ið meðal annars til þeirra orða Jóns
Sigurðssonar, framkvæmdastjóra
hjá FL Group, í einum tölvupóst-
inum að mikilvægt sé að viðskiptin
muni „líka meika sens út á við“.
Efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra hefur rannsakað North-
ern Travel Holding viðskiptin í
lengri tíma en enginn hefur enn ver-
ið ákærður í málinu.
Í stuttu máli máli gengur North-
ern Travel Holding fléttan út á það
að árið 2006 seldu FL Group og Fons
danska flugfélagið Sterling, Iceland
Express, Astreus og tvö önnur félög á
28 milljarða króna til Northern Tra-
vel Holding, sem einnig var í eigu fé-
laganna tveggja. Þetta er sérstaklega
athyglisvert í ljósi þess að einung-
is rúmu ári áður hafði Fons keypt
Sterling á fimm milljarða króna og
selt FL Group félagið svo aftur á 14,6
milljarða nokkrum mánuðum síð-
ar. Talið er að tilgangur Sterling-við-
skiptanna hafi verið að búa til gríð-
arlegan hagnað á pappírunum fyrir
Fons og FL Group þrátt fyrir að verð-
mæti Sterling hafi ekki endurspegl-
ast í kaupverðinu. Hugsanlegt er að
eigendur FL Group og Fons hafi inn-
leyst mikinn hagnað persónulega af
viðskiptunum.
Samkomulagið „FL Midnight“
Í umfjöllun Viðskiptablaðsins seg-
ir orðrétt um inntakið í greininni:
„Tölvupóstsamskipti milli helstu
stjórnenda FL Group sýna að eignir
sem settar voru inn í Northern Tra-
vel Holding í lok árs 2006 voru vís-
vitandi ofmetnar til að sýna fram á
blekkjandi eignarstöðu á efnahags-
reikningi þeirra félaga sem að við-
skiptunum komu. Á meðal þeirra
eigna sem færðar voru þangað yfir
voru danska flugfélagið Sterling og
Iceland Express.“
Þar segir meðal annars að Hann-
es Smárason, stjórnarformaður FL
Group, og Pálmi Haraldsson, eig-
andi Fons, hafi ákveðið að FL Group
myndi kaupa Sterling á 15 millj-
arða króna á kvöldfundi sem hald-
inn var 16. október árið 2005. Sam-
komulagið gekk undir nafninu „FL
Midnight“. Verðmat Sterling hafði
þá hækkað um 10 milljarða króna á
nokkrum mánuðum.
Pálmi sagðist þurfa að axla
ábyrgð
Umfjöllun Viðskiptablaðsins sýn-
ir fram á það með traustum hætti,
byggðum á gögnum, hvernig eig-
endur og stjórnendur FL Group og
Fons stjórnuðu verðmatinu á eign-
unum sem seldar voru til og frá fé-
lögunum í Sterling- og Northern
Travel Holding-viðskiptunum með
handafli.
Pálmi Haraldsson í Fons gekkst
að sumu leyti við því að þetta hefði
einmitt verið raunin í viðtali við DV
fyrr á árinu. Fyrst reyndi Pálmi að
halda því fram að markaðurinn í
heild, en ekki fjárfestarnir sem áttu í
viðskiptunum, hefðu stjórnað því að
verðmat fyrirtækja á Íslandi var eins
hátt og raun bar vitni. Pálmi dró svo
í land og viðurkenndi að viðskipti
hefðu oft verið stunduð þannig að
fyrirtækin voru metin of hátt þegar
þau voru seld. Meðal annars sagði
hann: „Já, við fórum fram úr okkur
að því leytinu til að viðskipti voru
stunduð með alltof háum margföld-
unarstuðli. Ef það er það sem þú ert
að leita eftir þá er svarið já.“
Brot úr viðtalinu við Pálma, þar
sem hann ræðir um Northern Tra-
vel Holding viðskiptin, fylgir hér á
eftir.
Umfjöllun Viðskiptablaðsins um Sterling- og Northern Travel
Holding-viðskiptin sýnir fram á hvernig Fons og FL Group of-
mátu eignir sem skiptu um hendur í viðskiptum þeirra. Tilgang-
urinn var að fegra stöðuna á efnahagsreikningi félaganna sem
stóðu í viðskiptunum. Pálmi Haraldsson hefur gengist við því
í viðtali við DV að eignir hafi verið ofmetnar í Northern Travel
Holding viðskiptunum.
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Það var bara markaðurinn í
heild sinni.
Blaðamaður: „En þið brugðust af því að þið stunduðuð siðferðilega vafasöm
viðskipti. Þú sagðir það sjálfur áðan.“
Pálmi: „Kannski var það of djúpt í árinni tekið hjá mér. En eftir á að hyggja er ég ekki
í nokkrum vafa um að menn fóru fram úr sér. Og ég held að allir eigi þar hlut að máli
sem voru í viðskiptum hvort sem þeir voru inni í bönkum eða annars staðar í atvinnu-
lífinu. Margföldunarstuðlarnir sem notaðir voru til að reikna virði fyrirtækja á þessum
árum, 2002 til 2008, þá skiptir engu máli hvort það var sjoppa á Bústaðaveginum eða
Iceland Express, standast ekki skoðun. Það var út úr kortinu hvernig fyrirtækin voru
verðmetin. En við skulum hafa það í huga að þetta var ekki séríslenskt fyrirbæri. Það
sem gerir Ísland svo sérstakt er þessi tilhneiging íslensku bankanna til að sækja sér
fjármagn hjá erlendum sparifjáreigendum í miklum mæli.“
Blaðamaður: „Þið brugðust að því leytinu til að þið misnotuðuð það frelsi sem þið
höfðuð á markaði, er það ekki?“
Pálmi: „Ég er ekki sammála því að við höfum misnotað það. Þetta voru þeir stuðlar
sem voru í gangi þá ...“
Blaðamaður: „En þið bjugguð til þessa stuðla.“
Pálmi: „Nei, það er bara framboð og eftirspurn sem stjórnar verðinu.“
Blaðamaður: „Hver stjórnaði eftirspurninni?
Pálmi: „Það var bara markaðurinn í heild sinni.“
Blaðamaður: Og hverjir stjórna markaðnum? Eru það ekki fjármagnseigendurnir
og þeir sem eiga fyrirtækin sem stjórna eftirspurninni á markaði? Þið voruð stærstu
aðilarnir á markaði. Þið áttuð Ísland. Þið bjugguð þessa bólu til. Þeir sem voru ráðandi
aðilar í bönkunum og viðskiptalífinu.“
Pálmi: „Auðvitað er það þannig að ráðandi aðilar í bönkunum og í atvinnulífinu
höfðu langmest áhrif á hvernig staðan var orðin. Svo ertu með eftirlitsaðilana ...“
Blaðamaður: „Þeir brugðust líka, að sjálfsögðu. Þetta getur farið saman.“
Pálmi: „Ef bindiskylda bankanna hefði verið aukin heldur þú þá ekki að það hefði
haft áhrif á eftirspurnina á markaði og þar með verðmyndun?“
Blaðamaður: „Já, en þetta getur farið saman. Þið brugðust líka. Þú ert búinn að segja
að þið hafið farið fram úr ykkur.“
Pálmi: „Já, við fórum fram úr okkur að því leytinu til að viðskipti voru stunduð með
alltof háum margföldunarstuðli. Ef það er það sem þú ert að leita eftir þá er svarið já.
Ég myndi ekki kaupa fyrirtæki í dag á margföldunarstuðlinum 30 eða 50. Það myndi
enginn gera það. Um þetta snýst punkturinn. En við skulum aldrei gleyma því að
þetta fer algerlega eftir framboði og eftirspurn og þetta er það verð sem var í gangi.
Og aldrei gleyma því að við fórum eftir þeim reglum sem voru í gildi á þeim tíma.“
Eignabólan stóðst enga skoðun
Blaðamaður: „En ertu ekki sammála því að það voru stórir aðilar á markaði, bank-
arnir, eigendur bankanna, eigendur stóru fyrirtækjanna og eignarhaldsfélaganna,
sem bjuggu til framboðið og eftirspurnina á markaði, meðal annars með því að eiga í
innbyrðis viðskiptum sín á milli, eins og í Northern Travel Holding þar sem flugfélag er
selt þrisvar á milli sömu aðilanna á uppsprengdu verði í hvert skipti?“
Pálmi: „Eins og þú setur þetta upp núna, þá jú, við verðum að axla okkar ábyrgð
í þessum málum. Við brutum engin lög en það er alveg ljóst að við fórum fram úr
okkur.“
ÚR VIÐTALI DV VIÐ PÁLMA Í MARS
Ofmátu eignir Umfjöllun Viðskiptablaðsins
sýnir fram á hvernig Pálmi Haraldsson
og stjórnendur FL Group ofmátu eignir
vísvitandi í Sterling- og Northern Travel
Holding-viðskiptunum.