Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Side 40
40 ára á Laugardag
40 ÆttfrÆði umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 3. september 2010 föstudagur
Erla Kristjana
Hafliðadóttir
veitingakona á Patreksfirði
Erla fæddist að Hvallátrum og ólst
þar upp við öll almenn sveitastörf
þess tíma. Hún fékk sitt barnaskóla-
nám í farskóla.
Erla starfaði mikið utan heimilis
eftir að hún gifti sig og hefur gjarnan
haft mörg járn í eldinum. Árið sem
elsta barnið þeirra hjóna fermdist
kom eiginmaður hennar í land vegna
heilsubrests. Hann var heima við en
studdi konu sína í hverju því sem
hún tók sér fyrir hendur og Erla vann
við það sem til féll. Hún sótti fisk-
matsnámskeið og öðlaðist réttindi
fiskmatsmanns og verkstjóra, var um
tíma verkstjóri í frystihúsi Magnús-
ar Guðmundssonar á Patreksfirði,
var kokkur tvö sumur á togaranum
Guðmundi í Tungu og vann auk þess
á Sjúkrahúsinu á Patreksfirði af og
til. Erla var matráðskona í Breiðuvík
þrjú sumur á árunum 1957-60 og á
góðar minningar þaðan.
Erla tók við matsölunni Sólbergi
á Patreksfirði á miðjum sjöunda
áratugnum og rak hana með Krist-
jáni manni sínum árum saman. Við
bættist gisting sem síðan varð Gisti-
hús Erlu, Brunnum 14, sem hún á og
rekur enn. Frá 1983 var Erla samfellt
einnig vökukona á Sjúkrahúsinu á
Patreksfirði, nú Heilbrigðisstofnun
Patreksfjarðar, en lét af þeim störf-
um fyrir tíu árum vegna aldurs, þeg-
ar hún varð sjötug.
Erla hefur tekið virkan þátt í fé-
lagsmálum. Hún er félagi í Slysa-
varnafélaginu og Kvenfélaginu, starf-
aði með Leikfélagi Patreksfjarðar frá
upphafi, lék mörg hlutverk í upp-
færslum félagsins, sat í stjórn þess
og varð heiðursfélagi þess 1986, hef-
ur starfað í Briddsfélag Patreksfjarð-
ar og gerir enn, var stjórnarmaður í
Bridds- og taflfélaginu, eins og það
hét áður, og hefur tekið þátt í fjöl-
mörgum briddskeppnum.
Erla tók þátt í hreppapólitík og
landspólitík á árum áður, gekk ung
í Framsóknarflokkinn, var um tíma
varamaður í hreppsnefnd og vann að
nefndarstörfum innan hreppsins, þ.
á m. í Sjómannadagsráði í tíu ár.
Erla var sæmd orðu Sjómanna-
dagsráðs.
Fjölskylda
Erla giftist 21.9. 1948 Kristjáni Jó-
hannessyni, f. í Höfðadal í Tálknafirði
26.9. 1921, d. 2.11. 1986, sjómanni.
Foreldrar hans voru Jóhannes Krist-
ófersson bóndi og Kristín Ólafsdóttir
húsfreyja sem bjuggu í Höfðadal og
síðan í Hjallatúni í Tálknafirði.
Börn Erlu og Kristjáns: Erlendur,
f. 26.6.1949, rafverktaki og sjómaður
á Patreksfirði, kvæntur Sigríði Karls-
dóttur hjúkrunarforstjóra; Kristín, f.
11.9.1950, sölufulltrúi í Reykjavík, var
fyrst gift Birgi Harðarsyni sem er lát-
inn, deildarstjóra hjá Eimskipafélagi
Íslands, en seinni maður Kristínar er
Páll Pampichler Pálsson tónskáld; Ól-
afur Arnar, f. 8.2. 1952, mjólkurfræð-
ingur í Reykjavík, kvæntur Svanhvíti
Bjarnadóttur skrifstofumanni; Bára,
f. 22.12. 1953, d. 7.5. 2005, þroska-
þjálfi í Kópavogi, hún var gift Kristj-
áni Geir Arnþórssyni kerfisfræðingi;
Björn, f. 31.3.1960, d. 13.4. 2008, kjöt-
iðnaðarmeistari á Blönduósi; Jökull,
f. 21.6. 1964, beitningamaður í Þor-
lákshöfn; Björk, f. 30.12.1965, sjúkra-
liði í Garðabæ, gift Andra Kristni
Karlssyni lækni.
Barnabörn og langömmubörn
Erlu eru orðin þrjátíu og sjö talsins
en eitt barnabarnið, Kristján Rafn
Erlendsson, er látinn.
Systur Erlu eru Anna, f. 29.6.
1927, húsmóðir á Patreksfirði,
gift Árna Helgasyni, fyrrv. bónda í
Neðri-Tungu og eiga þau níu börn;
Ólöf Þórunn, f. 16.4. 1932, hjúkrun-
arfræðingur í Reykjavík, gift Þórði
Guðlaugssyni vélstjóra og eru þeirra
börn fjögur.
Foreldrar Erlu voru Hafliði Hall-
dórsson f. 6.10. 1899, d. 5.7. 1987,
bóndi á Hvallátrum í Rauðasands-
hreppi, og Sigríður Filippía Erlends-
dóttir f. 13.4. 1901 d. 29.3. 1982, hús-
freyja.
Ætt
Hafliði var sonur Halldórs Benja-
mínssonar, b. í Keflavík á Rauða-
sandi, og Önnu Jónsdóttur. Móðir
Erlu var Sigríður Filippía, dóttir Er-
lends Kristjánssonar, b. á Siglunesi
á Barðaströnd og síðar útvegsb. og
vitavarðar á Hvallátrum, og Stein-
unnar Ólafsdóttur Thorlacius.
Erla tekur á móti gestum í Félags-
heimili Patreksfjarðar laugardaginn
4.9. milli kl. 16 og 18 og vonar að hún
sjái sem flesta.
80 ára á föstudag
Ásta Valdís fæddist á Akureyri en
ólst upp á Blönduósi til sextán ára
aldurs. Þá flutti hún í Stykkishólm
og var þar búsett til 2009 er hún
flutti á Seltjarnarnesið. Hún var í
Grunnskólanum á Blönduósi, lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól-
anum í Ármúla vorið 1990, stund-
aði fjarnám við Kennaraháskóla
Íslands og lauk þaðan prófum sem
leikskólakennari vorið 2001.
Ásta Valdís vann í kaupfélaginu
á Blönduósi og í sláturhúsinu þar
á unglingsárunum en hefur starf-
að við leikskóla frá 1995, fyrst leik-
skólann í Stykkishólmi en starfar
nú við leikskólann á Seltjarnarnesi.
Fjölskylda
Börn Ástu Valdísar eru Ólöf Birna
Rafnsdóttir, f. 31.10. 1991; Ragn-
heiður Erla Rafnsdóttir, f. 6.9. 1993;
Garðar Þór Rafnsson, f. 2.11. 2000.
Systkini Ástu Valdísar eru Katr-
ín Ragnheiður Guðmundsdóttir, f.
23.9. 1969, sjúkraþjálfi við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri, búsett
í Kristsnesi við Eyjafjörð; Arthur
Garðar Guðmundsson, f. 30.10.
1973, starfsmaður við álverið í
Straumsvík, búsettur í Grafarvogi.
Foreldrar Ástu Valdísar eru
Guðmundur Garðar Arthursson,
f. 23.11. 1947, starfsmaður við Ari-
on banka, búsettur á Seltjarnar-
nesi, og Katrín Ólöf Ástvaldsdótt-
ir, f. 21.2. 1949, skrifstofumaður hjá
SFR.
Ásta Valdís
Guðmundsóttir
leikskólakennari á seltjarnaresi
30 ára á föstudag
Ágústa fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Breiðholtinu og í Árbæn-
um. Hún var í Seljaskóla, stundaði
nám við Fjölbrautaskólann í Breið-
holti og lauk þaðan sveinsprófi í
snyrtifræði, stundaði síðan nám
við Tækniskóla Íslands og lauk
þaðan meistaraprófi 2010.
Ágústa hefur starfað á ýmsum
snyrtistofum, s.s. Xanadú, Gyðj-
unni, Rós og Mist. Hún er nú versl-
unarstjóri í gluggatjaldaverslun og
hefur starfrækt sína eigin snyrti-
stofu, Heilsu og hamingjulindina,
í Lágafellslaug í Mosfellsbæ, frá
2008.
Fjölskylda
Unnusti Ágústu er Ásgeir Þór Er-
lendsson, f. 23.2. 1981, sölumaður
hjá Brimborg.
Dóttir Ágústu er Kolbrún Kara
Pálmadóttir, f. 16.3. 2000.
Dóttir Ágústu og Ásgeirs er
Katrín Klara Ásgeirsdóttir, f. 26.5.
2008.
Bræður Ágústu eru Arnar Már
Hafsteinsson, f. 2.7. 1987, flugnemi
í Reykjavík; Elvar Freyr Hafsteins-
son, f. 25.3. 1990, nemi við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti.
Foreldrar Ágústu eru Hafsteinn
Valsson, f. 2.12. 1957, bifvélavirki í
Reykjavík, og Hallfríður Karlsdótt-
ir, f. 24.11. 1958, verslunarmaður í
Reykjavík.
Ágústa og Ásgeir taka á móti
gestum í sal sjálfstæðisfélaganna í
Breiðholti í Mjóddinni, laugardag-
inn 4.9. milli kl. 19.00 og 21.00.
Ágústa Nellý
Hafsteinsdóttir
meistari í snyrtifræði
30 ára á Laugardag
Guðbjörg fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Suðurbænum í Hafn-
arfirði. Hún var í Öldutúnsskóla,
stundaði nám við Flensborgar-
skóla og lauk þaðan stúdentsprófi
árið 2000 og lauk grunnnámskeiði
í sjúkraflutningum 2009.
Guðbjörg var dagmóðir í eitt
ár, var stuðningsfulltrúi við Hlíða-
skóla um skeið, vann í móttöku við
MT Stofuna og starfaði á sambýli
í Hafnarfirði skamma hríð. Hún
hóf störf við Neyðarlínuna í janúar
2007, hefur starfað þar síðan og er
nú aðstoðarvarðstjóri þar.
Guðbjörg æfði og keppti í frjáls-
um íþróttum með FH á unglingsár-
unum. Hún gekk í Björgunarsveit-
ina í Hafnarfirði (áður Hjálparsveit
skáta í Hafnarfirði) árið 1996 og
hefur starfað með sveitinni.
Fjölskylda
Börn Guðbjargar eru Arnar Páll
Kristjánsson, f. 6.10. 2003; Pétur
Mikael Kristjánsson, f. 20.2. 2006.
Systkini Guðbjargar eru Hlynur
Þorri Jónsson, f. 23.1. 1980, starfar
í Noregi um þessar mundir; Óskar
Þór Jónsson, f. 14.6. 1983, starfs-
maður hjá EJS, búsettur í Reykja-
vík; Nanna Rut Jónsdóttir, f. 7.9.
1984, MS-nemi í efnafræði við Há-
skóla Íslands.
Foreldrar Guðbjargar eru Jón
Valdimar Gunnbjörnsson, f. 31.3.
1957, starfsmaður við álverið í
Straumsvík, og Ragna Jóna Helga-
dóttir, f. 31.8. 1960, starfsmaður hjá
Hópbílum í Hafnarfirði.
Guðbjörg Helga
Jónsdóttir
aðstoðarvarðstjóri á neyðarlínunni
Þorsteina Sigurbjörg
Ólafsdóttir
HÚsmóðir í vestmannaeyjum
Þorsteina Sigurbjörg fæddist í Ásgarði
í Vestmannaeyjum og ólst upp í Vest-
mannaeyjum. Hún var í Barnaskóla
Vestmannaeyja, fór ung í vist í Vest-
mannaeyjum, og var síðan vinnukona
þar og á Akureyri um skeið.
Eftir að Þorsteina Sigurbjörg gifti
sig stundaði hún heimilisstörf en
starfaði jafnframt við aðhlynningu á
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja og á Borg-
arspítalanum í Reykjavík á meðan
óbúandi var í Vestmannaeyjum í gos-
inu árið 1973.
Þorsteina Sigurbjörg hóf búskap
með manni sínum í Odda í Vest-
mannaeyjum en þar bjuggu fyrir
tengdaforeldrar hennar. Hún og mað-
ur hennar fluttu síðan á Hólagötu 9 í
Vestmannaeyjum árið 1950 í hús sem
þau byggðu og þar bjó hún í hálfa
öld, til ársins 2000, er hún flutti á Sel-
foss. Hún var síðan búsett í Hveragerði
skamma hríð en hefur verið búsett í
þjónustuíbúð í Vestmannaeyjum frá
árinu 2004.
Þorsteina Sigurbjörg var virkur fé-
lagi í Kvenfélaginu Líkn í Vestmanna-
eyjum um árabil.
Fjölskylda
Þorsteina Sigurbjörg giftist í Vest-
mannaeyjum 13.4. 1941 Ólafi Árna-
syni, f. 31.7. 1917, d. 26.2. 1997, bif-
reiðastjóra á olíubílum BP. Foreldrar
hans voru Árni Jónsson, verslunar-
stjóri á Tanganum, búsettur í Odda í
Vestmannaeyjum, og k.h., Soffía Þor-
steinsdóttir húsmóðir sem vann jafn-
framt í mörg ár í Vinnslustöðinni í
Vestmannaeyjum.
Börn Þorsteinu Sigurbjargar og Ól-
afs eru Gunnar, f. 12.12. 1940, lengst af
vörubílstjóri, búsettur í Vestmanna-
eyjum, kvæntur Erlu Sigurðardóttur
og eiga þau tvo syni; Sigurbjörg, f. 29.5.
1943, skólaliði, búsett á Hellu, gift Birgi
Pálssyni og eiga þau fjögur börn; Sig-
urður, f. 7.10. 1946, sundlaugavörður,
búsettur í Eyjafirði, var kvæntur Mar-
gréti Jónsdóttur sem lést 1981 og eign-
uðust þau tvær dætur en kona Sigurð-
ar er Birna Jóhannesdóttir auk þess
sem Sigurður á eina dóttur með Est-
er Þorsteinsdóttur; Guðbjörg, f. 17.7.
1949, skólaliði, búsett i Kópavogi, gift
Eiríki Bogasyni og eru börn þeirra tvö;
Sesselja, 15.9. 1951, leikskólastjóri,
búsett í Hveragerði, gift Gunnari Berg
Sigurjónsson og á hún þrjú börn; Ólöf
Erla, f. 18.5. 1957, búsett í Svíþjóð, en
maður hennar er Stig Gunnarsson og
á hún fjögur börn.
Systkini Þorsteinu Sigurbjargar:
Ragnhildur Guðrún, f. 8.4. 1917, d.
23.2. 1999, var húsmóðir á Akureyri
og síðar í Reykjavík og starfaði lengi
hjá Lyfjaverslun ríkisins; Guðmundur
Kristinn, f. 23.8. 1918, d. 4.3. 2002, vél-
stjóri, búsettur í Vestmannaeyjum; Ás-
munda, f. 16.6. 1922, húsmóðir á Akur-
eyri, en síðar í Reykjavík og vann lengi
í Kassagerð Reykjavíkur, nú búsett á
Grund.
Foreldrar Þorsteinu Sigurbjargar
voru Ólafur Andrés Guðmundsson, f.
14.10. 1888, d. 23.3. 1955, verkamaður
í Oddhóli í Vestmannaeyjum og síðar á
Akureyri, og k.h., Sigurbjörg Hjálmars-
dóttir, f. 7.9. 1884, d. 15.8. 1937, hús-
freyja.
90 ára á Laugardag