Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Page 51
föstudagur 27. ágúst 2010 lífsstíll 51
Kringlan // Smáralind
www.blendcompany.com
11.990,-
11.990,-
9.990,- 9.990,- 11.990,-
11.990,- 11.990,-
9.990,-
GALLABUXNAÚRVALIÐ ER Í BLEND
11.990,-
Style 6053
Style 6910 Style 6910 Style 6907
Style 6518 Style 6646
Style 6881 Style 6881
wash #902
wash #100 wash #100 wash #844
wash #916 wash #844
wash #902 wash #939
Style 6345
wash #933
Stjörnurnar eru þekktar fyrir að léttast hratt fyrir at-
burði á rauða dreglinum eða kvikmyndahlutverk. Kim
Kardashian rokkar til og frá í vigt og sjálf forsetafrú
Bandaríkjanna, Michelle Obama, viðurkenndi í tíma-
ritinu Ladies Home Journal að notast við ýkta megr-
unarkúra þegar hún vill ná árangri hratt. En eru slík-
ir kúrar áhættulausir? Donald Hensrud, yfirlæknir og
höfundur The Mayo Clinic Diet, a Guide to Healthy
Weight Loss, segir stranga kúra hreinlega hættulega.
„Allir geta lést með því að hætta að borða eða lifa á
hlaupkörlum í einhvern tíma. Þú kemst upp með það
í mjög stuttan tíma en eftir því sem megrunin er ýkt-
ari og lengri því meiri líkur eru á skaða,“ segir Hens-
rud og bætir við að slíkir kúrar séu oft freistandi í aug-
um kvenna.
„Ef við léttumst hratt vegna lítillar næringar þyngj-
umst við enn hraðar þegar við byrjum að borða. Líf-
færin geta skaðast alvarlega ef þau fá ekki næga nær-
ingu og dæmin eru til um dauðsföll vegna strangra
megrunarkúra,“ segir Katherine Tallmadge næring-
arfræðingur og höfundur Diet Simple: 192 Mental
Tricks, Substitutions, Habits and Inspirations en Tall-
madge segir breyttan lífsstíl bestu leiðina til að halda
kílóunum í burtu. „Eitt þúsund kalóríur eru hættulega
lítil næring fyrir konur og hættumörkin eru enn hærri
fyrir aðrar,“ segir Tallmadge sem segir meðalkonuna
þurfa á um það bil 1800 kalóríum að halda á dag til að
viðhalda heilbrigði sínu. „Farðu í ræktina og gerðu lít-
ils háttar og raunhæfar breytingar á mataræðinu og
sjáðu hvað gerist.“
n Prófaðu að bæta við koddum.
Settu þá undir kúluna og fæturna
og reyndu að koma þér vel fyrir.
Prófaðu að fara með brjóstagjafa-
púðann þinn í rúmið.
n Ekki drekka vatn á kvöldin í von
um að minnka þörfina á klósett-
ferðum yfir nóttina. Og ekkert
kaffi heldur! Vertu samt viss um
að fá nægan vökva yfir daginn.
n Ekki bíta á jaxlinn ef þú finnur
til. Talaðu við lækni og fáðu hjálp.
n Prófaðu að drekka glas af heitri
mjólk.
n Skapaðu notalegt andrúms-
loft í svefnherbergi. Passaðu upp
á að geislar sólar nái ekki inn og
ekki nota rúmið nema til svefns
og ástarleikja. Engar tölvur eða
sjónvarp í herbergið!
n Opnaðu gluggann upp á gátt.
Flestir eiga auðveldara með að
sofa í köldu umhverfi auk þess
sem ófrískum konum er oftast
heitt.
n Ef þú átt í virkilegum erfiðleik-
um skaltu leita læknis. Þú getur
fengið svefnlyf sem hentar ófrísk-
um konum.
n Liggðu á hliðinni. Þú getur
auðvitað ekki legið á maganum
þegar kúlan er komin. Ef þú ligg-
ur á bakinu þrýstir legið á stóru
æðarnar sem liggja að fylgjunni
auk þess sem þú getur fundið fyr-
ir vanlíðan.
n Fjárfestu í snúningslaki sem
auðveldar þér að snúa þér í rúm-
inu.
DV1007152040_2.jpg
Stjörnurnar í Hollywood svelta sig til að líta vel út.
Rokkar í þyngd Kim hefur prófað alls kyns
kúra en stjarnan rokkar til og frá í þyngd.
Hættulegir megrunarkúrar
DV1009022978
VI-bolla_2.jpg
Ófrísk
og
ósofin?