Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2010, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2010, Qupperneq 21
FÖSTUDAGUR 8. október 2010 FRÉTTIR 21 ÖGMUNDUR ÚTILOKAR EKKI SÉRSTAKAN SAKSÓKNARA „Með hliðsjón af því sem á undan var gengið og aðstæðum öllum var ekki unnt að byggja á því að sú háttsemi sem hann játar, að hafa sett lim sinn í stutta stund inn í leggöng hennar, hafi falið í sér refsivert athæfi, þar sem hann taldi að hún væri samþykk því sem þau voru að gera.“ „Þarna játaði hann verknaðinn en hann játaði ekki að hafa ætlað að nauðga manneskjunni. Það er heljarinnar munur þar á. Ég er hræddur um að það þyrfti þá að byggja ansi stór fangelsi ef menn ætluðu sér að telja öll svona atvik sem nauðganir og dæma alla. Það væri ekki bara alvarlegt heldur skelfilegt að senda menn á Litla-Hraun án þess að þeir viti nokkurn tímann af hverju, hvað þeir gerðu. Menn geta bara hugsað það sjálfir, hver fyrir sig. Maður vill ekki búa í þannig ríki.“ „Það vantaði eitthvað í þetta mál. Það var alveg ljóst að hún mótmælti aldrei eða hafði ekki þorað því. Hann var nú eitthvað ofbeldishneigður.“ „Ef þú frýst verður gerandinn samt að vita að þú stirðnir upp vegna þess að þú vilt þetta ekki. Einhvern veginn verður hann að vita að hann sé að brjóta á annarri manneskju ...“ „Á hann bara að ganga út frá því að konan sé andsnúin þessu? Hvernig á hann að vita það? Er mælikvarðinn endilega sá að hún sé virk í rúminu með honum, taki þátt? Það held ég að sé nú bara mismunandi.“ Þarna þyk- ir hann afhjúpa þekkingarleysi á kynferðislegu ofbeldi og algengum viðbrögðum við því. Hann þykir einnig leggja ábyrgðina á konuna sem á að láta nauðgarann vita að hann sé að nauðga henni í stað þess að gera gerandann ábyrgan.“ „Ef þær eru mjög drukknar er það oftast þannig að þær muna verr hvað gerðist og þá er minna að marka það sem þær segjast hafa sagt og gert. Það er eðlilegt. Að sjálfsögðu skiptir það máli hversu drukknar þær eru.“ „Manneskja sem verið er að nauðga biður ekki um smokk.“ Um ælin Atli Gíslason segir að nauðgun af gáleysi sé ekki til: Ósammála saksóknara Atli Gíslason, lögmaður og þing- maður Vinstri grænna, segist alfar- ið ósammála þeim ummælum sem ríkissaksóknari hefur látið falla. „Ég er sérstaklega ósammála því þeg- ar hann sagði að það væru rangar sakargiftir í þessum málum. Rangar sakargiftir eru ekki fleiri í kynferðis- brotamálum en í öðrum málum. Þær eru innan við eitt prósent í þessum málum sem öðrum.“ Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari telur upp mál í helgarviðtali við DV þar sem hann vísar í ástand konunn- ar og hvernig það getur gert það að verkum að gerandi hreinlega viti ekki hvort hann er að nauðga henni eða ekki. Blaðamaður spyr Atla hvort það sé til eitthvað sem má kalla nauðgun af gáleysi? „Ég hugleiddi það mikið á sín- um tíma hvort þetta hugtak eigi rétt á sér,“ segir Atli. „En ég komst að þeirri niðurstöðu að hugtakið nauðgun af gáleysi er ekki til. Það er til manndráp af gáleysi, líkams- árás af gáleysi og því má hugsa þessa hugsun til enda en mín nið- urstaða er að hugtakið eigi ekki rétt á sér.“ Atli segist ósáttur við margt af því sem einkennir ummæli Valtýs og bendir á að sú vanþekking sem þau lýsi séu því miður algeng. „Ég er líka ósáttur við þessa áherslu á verknaðinn. Það þarf allsherjarhug- arfarsbreytingu í þessum málum og leggja frekari áherslu á samþykki fyrir kynmökum og að verknaðar- lýsing sé tekin út úr lögum.“ Valtýr afhjúpaði viðhorf til nauðg- unamála sem eru þess eðlis að það verður ekki við þau unað. Hann lætur að því liggja að þessi mál séu óæðri öðrum ofbeldisverkum, ekki jafn alvarleg. Það hlýtur að útskýra hversu fáir leita til dómstóla eftir nauðgun. Svo virðist sem það sé ekki ver- ið að reyna að ná fram réttlæti heldur þagga þessi mál niður. Það er eins og hjá ríkissaksóknara sé alltof mikil samúð með nauðgur- um. Eins og það sé hægt að nauðga af gáleysi. Ég gat ekki séð að hann gerði þá kröfu til karla að þeir bæru ábyrgð á drykkju sinni og það hefði áhrif á ábyrgð þeirra í kynlífsat- höfnum. Mér þætti eðlilegt að hann gerði sömu kröfu til þeirra. Krefjast afsagnar Fjölmargar konur hafa skorað á Valtý Sigurðsson að segja af þér embætti nú þegar. Þykir þeim ummæli hans í DV í lok september afhjúpa vanhæfni hans til að gegna embætti ríkis- saksóknara. GERIR KRÖFU UM VIRÐINGU Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir að Valtýr hafi orðið uppvís að fordóm- um, þekkingarleysi og virðingarleysi gagn- vart konum. VALTÝR ER VANHÆFUR Lilja Ólafsdóttir segir að viðhorf Valtýs endurspegli gamlar hugmyndir um að það sé konum sjálfum að kenna ef þeim er nauðgað. Eftir viðtöl við DV sé hann vanhæfur til þess að fara með kynferðisbrotamál. BLÖSKRAÐI UMMÆLIN Auður Styrkársdóttir segir að viðhorf ríkissaksóknara í nauðgunarmálum séu óviðunandi. Réttast væri að segja honum upp og borga honum bætur í stað þess að veita honum áminningu. Innan við eitt prósent Atli er sérstaklega ósáttur við ummæli Valtýs um rangar sakargiftir í kynferðisbrotamálum. Átti fund með ríkissaksókn- ara Dómsmálaráðherra setur fram spurningar um það hvort umfjöllun ríkissaksóknara verði til þess að efla traust brotaþola á réttarvörslukerfinu og biður hann um greinargerð vegna ummæla sinna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.