Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2010, Blaðsíða 62
Stórafmæli Hjörvars Hafliðasonar:
Þarf ekki að
safna fyrir
brúðkaupi
62 fólkið 8. október 2010 föStudagur
Kallar hann
ekki pabba
n Söng- og leikkonan Ólöf Jara
Skagfjörð, dóttir Guðrúnar Gunn-
arsdóttur og Valgeirs Skagfjörð,
leikur aðalhlutverkið í Buddy Holl-
y-söngleiknum sem nú er sýndur
í Austurbæ. Við sýninguna starfar
einnig Hannes Friðbjarnarson,
trommari Buff, en hann byrjaði
með móður Ólafar eftir skilnaðinn
við Valgeir. Í viðtali við tímaritið
Monitor talar Ólöf Jara opinskátt
um skilnaðinn og hvaða áhrif það
hafði á hana og systur hennar
hversu ítarlega greint var frá hon-
um í fjölmiðlum. Aðspurð um það
hvort hún kallar Hannes pabba
svarar Ólöf Jara í viðtalinu: „Það
myndi aldrei gerast.“
Sjálfstæð
Ásdís
n Fyrirsætan Ásdís Rán Gunn-
arsdóttir er næsta viðfangsefni
sjónvarpsmannsins Jóns Ársæls
í þáttaröðinni Sjálfstætt fólk. Hélt
Jón til Sófíu í Búlgaríu í sumar til
að sannreyna hversu fræg Ásdís
er í raun og veru þar um slóðir en
sjálf segir hún í einni stiklunni að
hún hafi orðið súperstjarna eftir
aðeins þrjá mánuði. Ásdís veit
vel hversu umdeild og umtöl-
uð hún er en í broti úr þættinum
sem verður sýndur á sunnudag-
inn segir Ásdís: „Þú getur eflaust
ekki fundið manneskju sem er
umdeildari en ég. En ég náði tak-
markinu mínu,“ segir Ásdís sem er
flutt til Münchenar í Þýskalandi.
Knattspyrnuspekingur Íslands,
Hjörvar Hafliðason, varð þrítugur
á miðvikudaginn en í tilefni af því
ætlar hann að efna til stórveislu um
helgina. Aldurinn segir hann ekk-
ert hræða sig. „Það er bara ágætt að
verða þrjátíu ára. Ég hef haft aug-
að á þessum degi í þrjátíu ár en svo
varð þetta alls ekkert jafnslæmt og
ég hélt,“ segir Hjörvar sem er annar
þáttastjórnenda Sunnudagsmess-
unnar, þáttar um enska boltann sem
sýndur er á laugardögum á Stöð 2
Sport 2.
Veislan verður heldur betur í lagi,
smekkfull af knattspyrnuhetjum en
Hjörvar segist ekkert vita hvað hann
er búinn að bjóða mörgum. „Það
hljóta einhverjir að koma,“ segir hann
léttur. „Gummi Ben verður veislu-
stjóri en hann er einn allra fyndnasti
maður Íslands. Svo mun Sólmundur
Hólm skemmta, ein besta eftirherma
Íslands, auk þess sem Erpur Eyvind-
arson, Blaz Roca, ætlar að taka nokk-
ur lög. Hann er auðvitað uppáhalds-
tónlistarmaður allra Kópavogsbúa.“
Hjörvar tjaldar miklu til í þessari
stórveislu sem hann hefur skírt „Ká-
maður í 30 ár“. „Þar sem ég sé ekki
fram á að ég sé að gifta mig á næstu
árum get ég lagt sama pening í afmæl-
isveisluna. Ég er allavega ekki að safna
pening fyrir brúðkaupsveislu,“ segir
Hjörvar Hafliðason hinn þrítugi.
tomas@dv.is
AFmæliSbARnið
Hjörvar heldur mikið
kempupartí um helgina.
mynd SiGtRyGGuR ARi
Hljómsveitin Árstíðir er á leið í tónleikaferðalag til Rúss-
lands. Ferðin hefst með tónleikum í Helsinki á miðvikudag
og í kjölfarið verður farið til Rússlands þar sem Árstíðir
munu koma fram á tónleikum í þremur borgum.
V ið ætlum að verða næstu poppstjörnur Rússlands, nei, en verða ekki all-ar íslenskar hljómsveiti
heimsfrægar þegar þær fara til út-
landa að spila?“ spyr Daníel Auð-
unsson gítarleikari í hljómsveitinni
Árstíðum en hún heldur í tónleika-
ferðalag til Rússlands og Finnlands
í næstu viku. „Það er rússnesk kona
sem heitir María og er í stjórn tón-
listarsjóðs þarna í Rússlandi sem
var að leita að þjóðlagatónlist á IMX
síðunni eða Icelandic music export
og heyrði lag eftir okkur þar. Hún
tók algjöru ástfóstri við okkur, hafði
samband og vildi endilega skipu-
leggja tónleikaferð.“
Hljómsveitin mun koma fram
í Helsinki, Pétursborg, Dubna og
Moskvu. Svo virðist sem strák-
arnir eigi von á góðum móttökum
því á rússnesku samskiptasíðunni
Vkontakte hafa yfir átta hundruð
manns boðað komu sína á tónleik-
ana í St. Pétursborg. „Í kjölfarið á
þessu veittum við Maríu umboð til
að vera umboðsmaðurinn okkar í
Rússlandi og Austur-Evrópu. Við
gerðum árssamning við hana með
fyrirvara um framlengingu, því
hún hefur staðið sig frábærlega.“
Eitthvað er María að gera rétt því
stofnaður hefur verið aðdáenda-
klúbbur í St. Pétursborg og er hann
búinn að skipuleggja sérstaka
móttöku við komu þeirra til borg-
arinnar. „Það er mjög skemmti-
legt að það sé til aðdáendaklúbbur
í Rússlandi og það kemur á óvart
því það er svo stuttur tími liðinn
síðan þetta fór allt af stað. Annars
veit ég ekki mikið um þetta og ég er
mjög spenntur að sjá hvernig mót-
takan verður, ég get eiginlega ekki
ímyndað mér það grunar að vodki
muni koma við sögu,“ segir Daníel
og hlær.
Rússneska mafían berst í tal og
segir Daníel að þeir hræðist hana
ekkert sérstaklega. „Það hefur
þó tekið okkur dágóðan tíma að
verða okkur út um vegabréfsá-
ritun og við þurfum líka að sýna
fram á eignarrétt á hljóðfærun-
um okkar. Þeir eru svo hræddir
um hljóðfærastuldur og ef það er
gengið á okkur þurfum við að geta
sýnt fram á það að við eigum þessi
hljóðfæri.“ Daníel segir að þeir séu
gríðarlega spenntir fyrir þessari
ferð og ekki síst fyrir að fá að sjá
rússnesku borgirnar. „Maður hef-
ur heyrt að St. Pétursborg sé ein af
fallegustu borgum í heimi og svo
Moskva, þetta verður sko ævintýri“
Í St. Pétursborg mun rússnesk
hljómsveit hita upp fyrir Árstíðir
en hún spilar þjóðlagatónlist. „Það
er þjóðlagabragur yfir þessu öllu
enda er þjóðlagatónlist mjög
vinsæl þarna úti og mikil
hefð fyrir henni.“
hanna@dv.is
Í útrás til
rússl nds
hljómsveitin Árstíðir:
dAníel AuðunSSon
„Mig grunar að vodki muni
koma við sögu.“
ÁRStíðiR Spila í
þremur rússneskum
borgum, Pétursborg,
Dubna og Moskvu.