Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2010, Blaðsíða 64
n Við þurfum að sameinast, fólkið
í landinu, og bylta þessu gamla út.
Bylting þarf ekki endilega að vera
blóðug. Við þurfum byltingu án
blóðs strax,“ segir tónlistarmaður-
inn á Pressubloggi sínu. Bubbi, sem
farið hefur mikinn í þjóðfélagsum-
ræðunni að undanförnu, virðist
vera búinn að fá sig fullsaddan af
ástandinu í landinu. Hann vandar
Steingrími J. Sigfússyni fjármála-
ráðherra ekki kveðjurnar og segir að
hann hafi ekki „gert neitt til að verja
fólkið í landinu fyrir stökkbreyttum
lánum og óréttlætinu
sem viðgengst í þjóð-
félaginu,“ og bætir
svo við: „Fólkið bið-
ur um framtíð en
fær fortíð. Fólkið
biður um von
en fær
von-
leysi.“
Ásbjörn á
köldum klaka!
BUBBI VILL BLÓÐ-
LAUSA BYLTINGU
n Tónlistarspekingurinn Gunnar
Lárus Hjálmarsson, betur þekktur
sem Dr. Gunni, fagnaði 45 ára af-
mæli sínu á fimmtudag. Dr. Gunni
deilir afmælisdegi með ekki ómerk-
ari einstaklingum en Ragnhildi
Gísladóttur og Skapta Ólafssyni.
Dr. Gunni segir frá því á bloggsíðu
sinni að hann sé með það „framtíð-
arplan“ að búa til lag sem nefnist 7.
október sem þau þrjú flytji saman.
Það yrði eins konar bjartsýnislag
enda 7. október fyrsti
dagurinn á eftir 6.
október en þann
dag árið 2008 bað
Geir H. Haarde Guð
að blessa þjóðina.
Dr. Gunni bendir svo
á að „unglambið“
George Cloon-
ey sé fjórum
árum eldri
en hann.
FRÆGIR Á FRUM-
SÝNINGU BUDDY
n Frumsýning á söngleiknum
Buddy Holly fór fram á fimmtu-
dagskvöld í nýuppgerðum Austur-
bæ. Íslenskar stjörnur létu sig ekki
vanta á frumsýninguna. Á meðal
gesta voru þeir Sverrir Þór Sverris-
son sjónvarpsmaður, betur þekktur
sem Sveppi, og Atli Rafn Sigurð-
arson leikari. Söngleikurinn er á
meðal vinsælustu
söngleikja heims
en hann er nú
sýndur í fyrsta
skipti í íslensku
leikhúsi. Leik-
stjóri söngleiksins
er Gunnar Helga-
son en með helstu
hlutverk fara þeir
Ingó úr Veður-
guðunum, Sjonni
Brink og Felix
Bergsson.
STÓRHUGA
Á AFMÆLINU
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Áskriftarsíminn er 512 70 80
FRÉTTASKOT 512 70 70
SÓLARUPPRÁS
07:56
SÓLSETUR
18:32
„Það var margt fólk sem skildi þetta
með þeim hætti að ég væri að vega
að starfi þeirra og starfsheiðri og þar
fram eftir götunum. Það er á þeim for-
sendum sem ég biðst afsökunar,“ segir
Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins. Ásbjörn vakti gríðar-
lega hörð viðbrögð með ummælum
sínum á Alþingi í vikunni þegar hann
spurði af hverju listamenn fái sér ekki
alvöruvinnu eins og annað fólk. Lista-
menn voru ekki sáttir við ummælin
og nýttu Facebook-samskiptasíðuna
vel til að svara Ásbirni. Ásbjörn átti á
fimmtudag fund með bandalaginu og
segir hann að hann hafi komið sáttur
út af fundinum.
Spurður hvort hann sjái eftir um-
mælunum segir Ásbjörn: „Í þessari
umræðu um fjárlögin taldi ég bara
upp þá liði sem eru að hækka. Þetta
var nú mjög ógætilega orðað og ég hef
beðist afsökunar á því,“ segir hann.
„Ég hef í sjálfu sér enga skoðun á
því. Þeir verða að ákveða það sjálfir,“
segir Ásbjörn um hugmyndina um
að listamenn færu í dagsverkfall eins
og þeir hafa lagt til. „Ég myndi eflaust
sakna þeirra,“ segir hann aðspurður
um hvort hann myndi sakna þeirra ef
þeir láta verða af hótuninni.
adalsteinn@dv.is
Ummæli Ásbjarnar Óttarssonar hafa vakið hörð viðbrögð meðal listamanna:
„MYNDI EFLAUST SAKNA ÞEIRRA“
Listamenn fái sér vinnu Ásbjörn
vakti hörð viðbrögð í vikunni.