Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2010, Blaðsíða 25
Fjöldamótmæl-
in á Austur-
velli skekja sálir
stjórnmálamann-
anna sem vita
ekki sitt rjúkandi
ráð. Sumir þeirra
standa að vísu
óhaggaðir hvað
svo sem á gengur
og hlusta ekki á
neitt á meðan aðr-
ir hrekjast um eins
og tættur bréfpoki
í sviptivindum haustlægðanna sem nú
ríða yfir Ísland. Ég veit eiginlega ekki
hvort er verra.
Áhugavert túlkunarstríð
Svo hefur nú verið ansi áhugavert
að fylgjast með túlkunarstríðinu um
skilaboð mótmælenda. Í umræðun-
um um stefnuræðu forsætisráðherra
sem fóru fram undir beljandi tunnu-
slætti var til að mynda engu líkara
en að Bjarni Benediktsson hafi hald-
ið að fólkið á Austurvelli væri að kalla
Sjálfstæðisflokkinn og hann sjálfan
til valda. Ég er ekki jafnviss. Og satt
að segja ætla ég mér ekki þá dul að
geta ráðið í hug allra þeirra þúsunda
sem þustu út á Austurvöll til að mót-
mæla stjórnmálamönnunum. Líkast
til er þar sitt af hverju, svo sem óþol
vegna aðgerðaleysis stjórnvalda varð-
andi skuldavanda heimilanna. Margir
hafa líka fengið upp í kok af stanslausu
karpi þingmanna sem virðast hafa
meiri áhuga á þrasi og undirfurðuleg-
um brögðum til að komast í fjölmiðla
fremur en á raunverulegum lausnum
fyrir fólkið í landinu. Sú krafa er held ég
nokkuð almenn að stjórnmálamenn
láti nú þegar af stöðugum hnýfilyrðum
í hefðbundnum sjónvarpsskylming-
um og fari þess í stað að vinna saman.
Furðulegt hefur verið að fylgjast með
flótta þeirra margra undan kröfunni
um að þingmenn vinni sem ein heild
að hagsmunum lands og lýðs.
Er til of mikils mælst?
Hvers vegna bjóða Jóhanna og Stein-
grímur stjórnarandstöðunni ekki upp
á raunverulegt kerfisbundið samstarf
í mikilvægum málum í stað þess að
láta duga að boða til tilviljanakenndra
funda þegar allt er hvort eð er kom-
ið i hnút? Og af hverju í ósköpun-
um þverskallast leiðtogar Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks við að
vinna með stjórninni þegar það þó er
boðið – eins og gerðist nú í vikunni?
Sigmundur Davíð vildi ekki mæta til
fundar við formenn stjórnarflokkanna
nema til að ræða þjóðstjórn og Bjarni
Benediktsson segist ekki geta unnið
með ríkisstjórn sem hann sjálfur prí-
vat og persónulega telur vera á rangri
leið. Er nema von að fólk sé sótreitt
út í svona leikskólaleiki? Og á meðan
ég man, hvers vegna var Birgitta Jóns-
dóttir að berja tunnur á Austurvelli á
meðan fólkið í kringum hana var að
mótmæla henni sjálfri og öllum hin-
um sextíu og tveimur þingmönnum
landsins? Væri ekki nær að hún og all-
ir hinir þingmennirnir myndu láta af
illdeilum sínum? Er hér virkilega til of
mikils mælst?
Kosningar og viðsjár
Ríkisstjórn sem ekki nýtur meirihluta-
fylgis á Alþingi ætti auðvitað að fara
frá. Í hverju málinu á fætur öðru hef-
ur hópur stjórnarþingmanna gert eig-
in ríkisstjórn afturreka með mál sem
stjórnin hefur sjálf talið nauðsynlegt
að ná í gegn. Öllum má því ljóst vera
að þessi ríkisstjórn nýtur ekki meiri-
hlutafylgis á þingi. Og þegar við bætist
að hún virðist einnig hafa misst tiltrú
kjósenda þá ætti svarið að blasa við;
svoleiðis stjórn ætti vitaskuld undir
öllum venjulegum kringumstæðum
að fara frá og boða til kosninga. Fyr-
ir tveimur árum hrundi fjármálakerf-
ið á einni viku og skilanefndir settar
yfir bankana. Í þessari viku hefur op-
inberast að stjórnmálakerfið er einnig
svo gott sem hrunið líka, svo nú vantar
aðeins að setja skilanefndir yfir stjórn-
málaflokkana.
Að öllu samanlögðu hníga flest rök
að því að efna þurfi til kosninga. Samt
sem áður er ég þó ekki viss um að ráð-
legt sé að halda þær of fljótt. Því þrátt
fyrir allt eru ekki venjulegar kringum-
stæður nú. Í landinu ríkir nánast neyð-
arástand og því yrði það aðeins til að
fresta bráðnauðynlegum aðgerðum
að hleypa stjórnmálamönnunum út í
kosningabaráttu þar sem þeir munu
ekki gera annað en klóra augun hver
úr öðrum næstu mánuðina.
Svo eru ýmsar viðsjár í því þrúgandi
vonleysisástandi sem nú ríkir í sam-
félaginu. Svona upplausnarástand
er til að mynda gróðrarstía fyrir lýð-
skrumara af ýmsu sauðahúsi sem
gætu nýtt sér ófremdina með jafnvel
enn hörmulegri afleiðingum en við
búum við nú. Því verðum við held
ég enn um sinn að bíta í það gallsúra
epli að ráðlegast er að bíða með kos-
ingar en gera þess í stað svera kröfu
á bæði stjórn og stjórnarandstöðu
að þau nái saman um brýnustu að-
gerðir. Takist það hins vegar ekki þá
getum við skipt öllu þingliðinu út í
næstu kosningum – eins og það legg-
ur sig.
ÓLAFUR EGILL EGILSSON er einn af
aðalleikurunum í kvikmyndinni Brim en
myndin hefur fengið afar góða dóma.
Ólafur Egill er einn úr leikhópnum
Vesturport en leikhópurinn hlaut
Evrópsku leiklistarverðlaunin í ár.
AFREK VIKUNNAR AÐ
NÁ ENDUM SAMAN
MYNDIN
Hver er maðurinn? „Ólafur Egill
Egilsson, heimilisfaðir í Þingholtunum.“
Hvar ólstu upp? „Á Grettisgötunni.“
Hvað drífur þig áfram? „Vonin um
hlýnandi hjörtu og batnandi heim.“
Afrek vikunnar? „Ná endum saman.
Vonandi að sem flestir hafi náð að afreka
það.“
Hvað þýða Evrópsku leiklistarverð-
launin fyrir Vesturport? „Þau þýða
leikferð í apríl til Pétursborgar þar sem
við sýnum tvær eða þrjár sýningar og
tökum við verðlaununum.“
Uppáhaldsbók? „Líf mitt og leikur, ævi-
saga Charlie Chaplin finnst mér frábær.
Sem og Gróður jarðar og auðvitað
Brennu-Njálssaga.“
Áttu þér draumahlutverk? „Já, það
hefur alltaf verið Lína langsokkur. Ég
myndi gera Línu góð skil.“
Hvar líður þér best? „Í góðra vina og
vandamanna hópi.“
Átt þú þér fyrirmynd? „Þær eru
margar og mismunandi, koma og fara.
Eiga sína daga og stundum ekki.“
Hvað er fram undan? „Frumsýning
á Fólkinu í kjallaranum, þrjár sýningar
af Íslandsklukkunni, heimildamynd um
lausagöngu sauðfjár og Lér konungur í
Þjóðleikhúsinu.“
Uppáhaldsleikari? „Brjálæðingurinn
Klaus Kinski.“
MAÐUR DAGSINS
„Enginn. Þeir hafa allir staðið sig mjög
illa.“
HEIÐAR JÓNSSON
39 ÁRA FRAMKVÆMDASTJÓRI
„Þeir eru allir handónýtir.“
GUÐNÝ KRISTINSDÓTTIR
78 ÁRA ELLILÍFEYRISÞEGI
„Það er Steingrímur J. Þetta er vanþakk-
látt starf sem hann er í. Það er mesta
furða hvað hann hefur þraukað.“
STEFÁN JÓHANNSSON
54 ÁRA SÉRFRÆÐINGUR
„Ef einhver þá er það Ögmundur
Jónasson. Hann er samkvæmastur
sjálfum sér.“
GUNNLAUGUR EIÐSSON
31 ÁRS AÐSTOÐARFRAMKVÆMDASTJÓRI
„Steingrímur J. En eru þeir ekki annars
allir að skíta upp á bak?“
SIGURÐUR ÓSKARSSON
22 ÁRA, VINNUR Í FRYSTIHÚSI
HVAÐA ÞINGMAÐUR HEFUR STAÐIÐ SIG BEST?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
FÖSTUDAGUR 8. október 2010 UMRÆÐA 25
Hverju er fólkið að mótmæla?
Ríkisstjórn sem ekki nýtur meiri-
hlutafylgis á Alþingi ætti
auðvitað að fara frá.
KJALLARI
DR. EIRÍKUR
BERGMANN
stjórnmálafræðingur skrifar
Byltingin hvíld Þegar ró færist yfir Austurvöll rata olíutunnurnar, sem höggin dynja annars á, í þetta skot við Ingólfstorg. Einhver hefur komið til þess að athuga hvort allt
væri ekki á sínum stað. MYND SIGTRYGGUR ARI