Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2010, Síða 50
ERICSSON R380
R380 mætti kalla fyrirrennara P800 og P900
símanna og var einn af fyrstu svokölluðu „symbian”
símunum. Margir vilja meina að hann sé fyrsti
síminn sem hægt sé í raun að kalla snjallsíma.
NOKIA 9120
COMMUNICATOR
9000-línan frá Nokia
kom fyrst á markað
árið 1996 en þessi
sími var sá fyrsti sem
hafði litaskjá og keyrði á Symbian.
2002
HANDSPRING TREO 180
Áður en Palm keypti Handspring
kom Treo 180 á markað og hlaut
góðar viðtökur. Treo varð síðan
flaggskip Palm-fyrirtækisins
eftir kaupin á Handspring
og einn vinsælasti
snjallsíminn næstu árin.
SONY ERICSSON P800
Eftir að Ericsson hóf samstarf við Sony um hönnun
og framleiðslu farsíma varð P800 einn vinsælasti og
áhugaverðasti síminn enda einn af þeim fyrstu sem
höfðu innbyggða myndavél.
2003
T-MOBILE POCKET PC
T-mobile Pocket PC var einn af fyrstu
símunum sem keyrðu Windows
Mobile (Pocket PC) og varð vinsæll
fyrirtækjasími vegna samhæfingar
við Exchange-póstmiðla og Office-
hugbúnaðinn.
PALM
TREO 600
Stuttu eftir kaup Palm
á Handspring setti
fyrirtækið Treo 600 á
markað. Síminn hafði
baklýst lyklaborð, litaskjá
og innbyggða myndavél
og næstu þrjú til fjögur
árin má segja að Treo-sím-
arnir hafi nánast yfirtekið
snjallsímamarkaðinn
vestanhafs.
2004
BLACKBERRY 6210
6210 var hinn fyrsti
BlackBerry sem einnig
var raunverulegur
sími en áður hafði RIM
framleitt nokkrar
útgáfur sem þurfti þá að
tengja við heyrnartól/
hljóðnema.
PALM TREO 650
Þessi útgáfa Treo skartaði
320x320 skjáupplausn,
Blátannarstuðningi og
EDGE/CDMA-stöðlum
varðandi gagnahraða.
2005
MOTOROLA RAZR V3
Fyrir marga Bandaríkjamenn var Motorola Razr fyrsti
snjallsíminn sem þeir eignuðust. Síminn varð einn
sá vinsælasti í sölu hjá stóru fjarskiptafyrirtækjunum
næstu árin.
HP IPAQ 6500
IPAQ frá HP var í raun lófatölva í byrjun en með
6500 útgáfunni bætti HP við vél- og hugbúnaði fyrir
snjallsíma (Windows Mobile/EDGE 2G) og síminn
átti í harðri samkeppni við Treo 650.
2006
DANGER HIPTOP 3 / T-MOBILE SIDEKICK 3
Þessi sími varð vinsæll meðal fræga fólksins og
unglinganna, en síminn var bæði útbúinn QWERT-
Y-lyklaborði og spjallforriti. Áhugaverðasti eiginleiki
símans var þó sennilega innbyggður aðgangur að
forritum sem hægt var að sækja á netið. Apple nýtti
sér þessa hugmynd með góðum árangri síðar.
HTC 8525
8525-snjallsíminn frá
HTC var með snertiskjá
og keyrði á Windows
Mobile. Fyrirtækið
var einn af traustum
samstarfsaðilum Mic-
rosoft en er nú þekktast
fyrir Android-snjallsíma
sína.
2007
APPLE IPHONE
Um mitt árið
breyttist snjallsíma-
markaðurinn með
tilkomu iPhone frá
Apple. Viðbrögð
almennings gáfu
skýr skilaboð til
annarra framleið-
enda; þetta var það
sem fólk vildi.
NOKIA N95
Fyrsti síminn sem skartaði öllum þeim eiginleikum
sem við teljum sjálfsagða á góðum snjallsíma í dag;
meðal annars 5MP myndavél með sjálfvirkum fókus
og flassi, GPS, WiFi, Blátönn og sérstaka myndavél
fyrir myndspjall.
2008
APPLE IPHONE 3G
3G staðallinn var að ná töluverðri útbreiðslu og
Apple jók gagnahraðann fyrir þennan vinsæla síma
sinn. Það var þó opnun forritaverslunarinnar (App
Store) sem olli straumhvörfum á snjallsímamarkað-
inum en nú gat hver sem er farið að þróa forrit fyrir
iPhone og komið þeim á markað fyrir tilstuðlan App
Store.
HTC DREAM / T-MOBILE G1
Fyrsti Android-síminn frá HTC. Síminn kom á
markað undir nafninu T-mobile G1, fyrsti
„Google-powered” snjallsíminn.
2009
MOTOROLA DROID
Verizon-fjarskiptafyrirtækið keyrði í gang öfluga og
árangursríka auglýsingaherferð fyrir Droid (nafnið
er fengið úr Star Wars) en fyrirtækið hóf að selja
Android-síma ásamt öðrum snjallsímum. Android
varð í kjölfarið eitt vinsælasta stýrikerfið fyrir nýja
kynslóð snjallsíma.
PALM PRE
Sigurganga Palm á fyrri hluta áratugarins dugði
skammt í harðri samkeppni og fyrirtækið réði til sín
nokkra af lykilstarfsmönnum iPhone-deildar Apple
og setti í kjölfarið Palm Pre á markað. Síminn keyrði
á webOs-stýrikerfinu og náði nokkrum vinsældum.
Það dugði þó ekki til og HP gleypti fyrirtækið með
húð og hári á þessu ári en talið er að HP muni nota
webOs í væntanlega snjallsíma/smátölvur.
2010
APPLE IPHONE 4
Þrátt fyrir gagnrýni vegna meints galla í loftneti
fjórðu kynslóðar iPhone er þessi sími einn mest
seldi snjallsíminn í heiminum í dag. Ýmsar nýjungar,
endurbætur og eiginleikar gera hann enn fremstan
meðal jafningja.
SAMSUNG GALAXY S
Fjölmargir snjallsímar sem keyra á Android-stýri-
kerfinu komu á markað í ár en Galaxy S frá Samsung
er einna vinsælastur og er síminn til í ýmsum
útgáfum. Samsung náði að gera samninga við öll
stærstu fjarskiptafyrirtækin vestanhafs um sölu á
Galaxy S sem er nánast einstakt í sögunni.
50 TÆKNI UMSJÓN: PÁLL SVANSSON palli@dv.is 8. október 2010 FÖSTUDAGUR
SNJALLSÍMAR
í áratug Síðastliðin tíu ár hafa snjallsímar fest sig rækilega í sessi meðal almennings og tekið örum breytingum, tæknilega og útlitslega séð. Við lítum til baka á áhugaverðustu og vinsæl-
ustu snjallsímana allt fram til dagsins í dag.
2000/2001