Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Page 2
2 | Fréttir 25.–27. mars 2011 Helgarblað
Siv og Húnbogi í hár
saman
Á föstu-
dagsmorg-
un verður tekið
fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur mál
Sivjar Friðleifs-
dóttur gegn fyrr-
verandi sambýlis-
manni sínum og
barnsföður, Þor-
steini Húnbogasyni. Þau kynntust
þegar Siv var í háskólanum en í fyrra-
haust skildu þau skiptum. Skilnað-
urinn hefur ekki verið átakalaus og
nú er deilt um eignaskipti. Eitt af því
sem tekist er á um er hlutdeild Þor-
steins í lífeyrisréttindum Sivjar. Þau
eru umtalsverð þar sem hún hefur
setið á þingi frá árinu 1995 og gegndi
ráðherraembætti í sex ár. Siv fellst ekki
á kröfu hans um hlutdeild í þessum
réttindum.
DV bannað að
fjalla um Horn
Sýslumað-
urinn í
Reykjavík hefur
sett lögbann á
DV til að koma í
veg fyrir frekari
umfjöllun um
fundargögn fjár-
festingarfélags-
ins Horns sem
blaðið hefur undir höndum. Horn
er fjárfestingarfélag í eigu þjóðar-
bankans Landsbankans sem heldur
utan um hlutabréf í ýmsum félögum
eins og Eyri Invest og Eimskip. DV
hefur að undanförnu fjallað um ýmis
mál sem rætt er um í fundargögnum
Horns frá stjórnarfundi í félaginu
þann 25. febrúar síðastliðinn. Meðal
þeirra mála sem DV hefur sagt frá eru
væntanleg kaup Horns á rúmlega 14
prósenta hlut í Stoðum.
Bótox-meðferðir
í blokk
Erlend kona
búsett á Ís-
landi býður upp á
bótox-meðferðir
á heimili sínu í
Kópavogi. Hún
flytur lyfið inn frá
Úkraínu þar sem
hún fær það frá þarlendum lækni
en strangar reglur gilda hér á landi
um innflutning lyfja. Konan, sem er
um fertugt, framkvæmir fegrunar-
aðgerðir í blokkaríbúð í Kópavogi.
Blaðamaður DV heimsótti konuna og
komst á snoðir um að ólögleg aðgerð
hjá konunni væri dýrari en hjá viður-
kenndum lýtalæknum.
Lyfið sem konan notar heitir Dysport
en í því er sama virka efni, Botulinum
Toxin A, og er í bótoxi og gilda sömu
reglur um bæði lyfin.
Fréttir vikunnar í DV
1 2 3
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Betri blóðrás - bætt líðan
Þrýstingssokkar fyrirbyggja og meðhöndla:
• Bjúg
• Æðahnúta
• Blóðrásarvandamál
• Þreytu og þyngsl í fótleggjum
Bjóðum gott úrval vandaðra þrýstingssokka. Fagleg ráðgjöf og mælingar
Aldraðir heimilismenn á hjúkrunar-
heimilinu Seljahlíð hafa safnað undir-
skriftum til þess að mótmæla ákvörð-
un biskups um að leggja niður starf
séra Hans Markúsar Hafsteinssonar
héraðsprests sem þjónað hefur hjúkr-
unarheimilinu og tveimur öðrum
heimilum síðustu ár. Heiðar Mar-
teinsson sem býr á Seljahlíð verður
áttræður í næsta mánuði. Hann sættir
sig ekki við þessi málalok og mótmæl-
ir ákaft. „Skýringin sem biskup gefur
er sparnaður. Hans Markús er ákaf-
lega vel liðinn því hann gerir meira en
að messa einstaka sinnum; hann er
vinur fólksins. Það er mikið af gömlu
fólki eins og mér og fleiri sem hann
veitir allan þann stuðning sem hægt er
að hugsa sér. Ég missti konuna mína
fyrir rúmu ári og ég fæ aldrei þakk-
að honum þann stuðning sem hann
veitti henni áður en hún dó. Nú á að
taka þennan mann af okkur vegna
sparnaðar kirkjunnar,“ segir Heiðar.
Safna undirskriftum
Alls hafa um 80 manns lagt nafn sitt
við undirskriftasöfnunina og að sögn
Heiðars er stafsfólk Seljahlíðar þar á
meðal. Hann undrast forgangsröðun
innan kirkjunnar. „Ég sé ekki annað
en að þeir búi í fjögurra hæða húsi
við Laugaveginn og þeir geta trúlega
borgað fasteignaskattinn þar en ekki
borgað prestinum. Hans Markús er
mjög ákveðinn maður og þorir að
segja sína meiningu, hvort sem hann
talar við biskup eða annan. Hann hef-
ur allan stuðning bæði starfsfólks og
vistmanna hérna og það er af því að
hann er vinur fólksins,“ segir Heiðar.
Hann gagnrýnir Karl Sigurbjörns-
son biskup fyrir að svara ekki opnu
bréfi sem hann skrifaði í Morgun-
blaðið til varnar prestinum. „Hann er
huglaus. Hann svaraði aldrei bréfinu
mínu. Ég reyndi lengi að ná í hann í
símann en það var ekki hægt að ná í
hann, ýmist vegna þess að hann væri
upptekinn eða erlendis.“
„Ég fékk 80 undirskriftir og sendi á
Biskupsstofu en fékk ekki svar nema
almennt svar til vistfólks Seljahlíð-
ar um fátækt í landinu og á þeim for-
sendum hefði orðið að segja prestin-
um upp. Ég er ekki alveg tilbúinn að
kyngja því vegna þess að presturinn er
okkur ákaflega mikils virði fyrir hvað
hann veitir fólki á okkar aldri sem er
í erfiðleikum mikla hlýju og huggun,“
segir Heiðar.
Þakklátur prestur
Í samtali við DV segist Hans Mark-
ús vera þakklátur íbúum á Seljahlíð.
„Það er ekki annað hægt að segja en
að þetta hafi verið alveg yndislegt af
þeirra hálfu, hvað þau meta það mikils
sem reynt er að gera fyrir þau. Kannski
er þessi niðurskurður að koma þar
sem síst skyldi,“ segir Hans Markús.
Hann segist kunna að meta bar-
áttu og mótmæli Heiðars og ann-
arra heimilismanna í kjölfar þess að
starf hans var lagt niður. „Það er allt-
af spurning um forgangsröðun og
mörgum finnst þarna ekki forgangs-
raðað rétt. Ég er auðvitað þakklátur
fyrir þann stuðning og velvilja sem ég
hef fengið frá fólki.“
Þegar DV náði tali af Hans var
hann staddur á Seljahlíð. Þótt hann
sé formlega hættur ákvað hann að
halda áfram að sinna fólkinu á elli-
heimilinu. „Þar sem enginn er að
sinna þessu fólki ákvað ég að halda
því áfram. Það þarf að sinna þessu
fólki.“
„Ég missti konuna
mína fyrir rúmu
ári og ég fæ aldrei
þakkað honum þann
stuðning sem hann veitti
henni áður en hún dó.
Berst fyrir starfi
vinsæls prests
n Starf séra Hans Markúsar lagt niður n Íbúar á elliheimili mótmæla með undir-
skriftalista n Segir prestinn vin fólksins n Yndislegt af þeirra hálfu, segir presturinn
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Heiðar Marteinsson „Nú á
að taka þennan mann af okkur
vegna sparnaðar kirkjunnar.“
MYnd SigtrYggur Ari
tekur ekki sæti
Inga Lind Karlsdóttir, ein þeirra 25
sem náðu kjöri á stjórnlagaþing í
nóvember síðastliðnum, hefur lýst
því yfir að hún muni ekki þiggja boð
Alþingis um að taka sæti í stjórn-
lagaráði. Tillaga um skipun stjórn-
lagaráðs var samþykkt á Alþingi í
dag með 30 atkvæðum gegn 21.
Sjö þingmenn sátu hjá í kosn-
ingunni, þeirra á meðal Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra.
„Nú hefur verið samþykkt á Al-
þingi að skeyta ekki um úrskurð
Hæstaréttar frá því í janúar, um að
kosningar til stjórnlagaþings skyldu
ógildar teljast, og skipa þessa 25 í
stjórnlagaráð sem á að sinna því
sama og stjórnlagaþinginu var ætl-
að. Undirrituð mun ekki ganga á
svig við úrskurð Hæstaréttar og þigg-
ur því ekki boð Alþingis um að taka
sæti í stjórnlagaráði,“ segir Inga Lind
í yfirlýsingu.
Sóttu mann upp
á jökul
Björgunarfélag Hornafjarðar fór
upp á Skálafellsjökul á þrem-
ur jeppum að sækja slasaðan
göngumann í skálann við Gríms-
vötn á fimmtudag.
Maðurinn, sem var á ferð með
níu manna hópi í göngu á jökli,
féll og slasaðist á fæti á miðviku-
dagskvöld. Um klukkan hálf tíu
morguninn eftir barst svo beiðni
um að hann yrði sóttur. Talið er
að hann sé illa tognaður eða fót-
brotinn. Gönguhópurinn hyggst
halda ferð sinni áfram.
16 björgunarsveitarmenn tóku
þátt í aðgerðinni.
Fleiri taka í vör-
ina
Árið 2003 seldust 11,7 tonn af
munntóbaki, en árið 2010 var magn-
ið komið upp í 25,5 tonn. Þetta kom
fram í svari Guðbjarts Hannesson-
ar velferðarráðherra við fyrirspurn
Sivjar Friðleifsdóttur um tóbaks-
notkun.
Í svarinu kemur fram að sam-
kvæmt könnun, sem gerð var fyrir
Lýðheilsustöð um munntóbaksnotk-
un meðal ungs fólks á aldrinum 16
til 23 ára árin 2009 til 2010, sé notkun
munntóbaks umtalsverð hér á landi.