Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Side 14
14 | Fréttir 25.–27. mars 2011 Helgarblað n Tíðinda er að vænta frá Orkuveitu Reykjavíkur á næstu dögum n Tugprósenta gjald- skrárhækkun er rædd af mikilli alvöru n Orkukostnaður 100 fermetra íbúðar færi úr 11.200 krónum á mánuði í 16.240 RisahækkaniR RæddaR í ORkuveitu ReykjavíkuR Tíðinda er að vænta frá Orkuveitu Reykjavíkur á næstu dögum og sam- kvæmt heimildum DV er það nú rætt af mikilli alvöru innan eigendahóps og stjórnar að hækka gjaldskrá um- talsvert aðeins fimm mánuðum eftir síðustu hækkun. Mikil hagræðing og endurskipu- lagning hefur átt sér stað innan Orkuveitunnar síðastliðna mánuði. Skemmst er að minnast gjaldskrár- hækkunarinnar þann 1. október um 28,5 prósent og svo 1. nóvember þeg- ar hækkað var verð á dreifingu raf- magns. Þá var 65 manns sagt upp í hagræðingarskyni. Þessar aðgerðir voru metnar sem svo að þær myndu skila OR samtals sex milljörðum króna á ári. Án þeirra var fullyrt að fyrirtækið gæti ekki staðið undir end- urgreiðslu lána sinna. Nú, nokkrum mánuðum síðar, er gjaldskrárhækk- un aftur komin á borðið. Risahækkun í pípunum Hækkunin í fyrra vakti mikla reiði al- mennings en við þær fór rafmagn og heitt vatn fyrir 100 fermetra íbúð á höfuðborgarsvæðinu úr 8.800 krón- um á mánuði í 11.200 krónur. Unnið hefur verið að því linnu- laust síðustu tvo mánuði að reyna að koma fyrirtækinu á réttan kjöl sam- kvæmt öruggum heimildum DV, enda skuldastaða fyrirtækisins eft- ir óvarlegar fjárfestingar góðærisár- anna erfið. Skuldir hafa tífaldast á innan við áratug og nema nú, sam- kvæmt árshlutareikningi frá 30. sept- ember 2010, tæpum 230 milljörðum króna. Viðfangsefni stjórnar Orkuveit- unnar í hagræðingu er tvíþætt, að lækka skuldir og auka tekjur, enda er skuldaklafinn gríðarlegur. Því vilja stjórn og eigendur OR ná fram með annarri gjaldskrárhækkun sem mun toppa þá sem lögð var á herðar al- mennings í október. DV hefur heimildir fyrir því að meðal eigendahóps og stjórnar OR séu hugmyndir um 45 prósenta gjaldskrárhækkun. Þó útfærsla þess- arar hækkunar sé ekki ljós að svo stöddu myndi hún þýða hækkun á mánaðarlegum orkukostnaði vegna 100 fermetra íbúðar á höfuðborgar- svæðinu úr 11.200 krónum í 16.240 krónur. Orkuútgjöld þessa heimilis á ári yrðu því 195.000 krónur. Gagnaveitusala aftur til umræðu Þó unnið hafi verið stöðugt að því síðustu mánuði að koma fyrirtækinu í gegnum þennan mikla skafl þá hef- ur hagræðingarvinna OR staðið yfir frá því fyrir hrun 2008. Þá þegar var gripið til ýmissa ráðstafana til að rifa seglin í rekstri fyrirtækisins, eins og að draga úr fjárfestingum, til dæmis við Hellisheiðarvirkjun, og hætt við að setja milljarða í útrásarævintýri. Leiðangurinn hefur því verið langur og er hvergi nærri lokið. Ýmsar leiðir eru ræddar í þessu ferli. Til að mynda lagði Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í stjórn OR, til á stjórnar- fundi 18. mars að gert yrði verð- mat á Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og að hlutur OR yrði síðan seld- ur ef viðunandi tilboð bærist. Sal- an á Gagnaveitu Reykjavíkur hef- ur áður borið á góma en var slegin af í kringum REI-málið alræmda á sínum tíma. Kjartan metur það sem svo að Gagnaveitan sé orðið rekstrarhæf og því söluhæf en tap Gagnaveitunnar nam 250 milljón- um króna árið 2009. Á sama fundi var samþykkt að fela forstjóra að ganga til samninga í samræmi við hæstu boð á ýmsum smærri eignum OR, eins og skemmu og starfsmannahúsum. Auk þess herma heimildir DV að verið sé að skoða sölu margra eigna OR. Ýmsar leiðir ræddar Heimildarmenn DV segja að ekki sé ljóst hvaða leiðir verði ofan á í þess- ari vinnu. Hún standi þó yfir og tíð- inda sé að vænta. Verið sé að skoða gjaldskrána, eignasölu og frestun fjárfestinga og einn bendir á að svo gæti farið að þetta verði allt samein- að í einn pakka. Þetta geti þó gerst hvenær sem er á næstunni. 2003 2007 2010 Apríl 2003 n Höfuðstöðvar Orkuveitunnar vígðar– Hafa fengið viðurnefnið Royal Alfreð Hall í Slang- urorðabók Snöru. Júní 2006 n Viljayfirlýsing um álver í Helguvík undirrituð. Október 2007 n REI-málið nær hámarki. Ágúst 2010 n Sérstakur ríkissaksóknari gefur út ákæru á hendur Baldri fyrir innherjasvik. n Fréttir berast af 240 milljarða króna skuldum Orkuveitunnar. n Kjartan Magnússon, stjórnarmaður Orkuveitunnar og fyrrverandi stjórnarfor- maður, segir í fréttum að stefnumörkun á árunum 2003–2006 skýri stærstan hluta skuldasöfnunar Orkuveitunnar. Fall Orkuveitunnar 2006 2008 Ágúst 2008 n Orkuveitan býður vildarvinum sínum á tónleika með Eric Clapton. Október 2010 n Gjaldskrá Orkuveitunnar hækkar um 28,5%. n 65 fastráðnum starfs- mönnum sagt upp störfum í hagræðingarskyni. Breytingar í tölum Algengt verð fyrir rafmagn og heitt vatn fyrir 100 fermetra íbúð á höfuðborgarsvæðinu var fyrir hækkanirnar 1. október og 1. nóvember um 8.800 krónur á mánuði eða 106.000 á ári. Eftir hækkanirnar fór mánaðarreikningurinn upp í 11.200 krónur – 135.000 í orkuút- gjöld á ári. Verði af gjaldskrárhækkun sem DV hefur heimildir fyrir að ræddar séu nú á æðstu stöðum í OR mun mánaðarkostnaður taka risavaxið stökk upp í 16.240 krónur eða tæplega 195.000 krónur á ári! „DV hefur heimildir fyrir því að meðal eigendahóps og stjórnar OR séu hugmyndir um 45 prósenta gjaldskrárhækkun. Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Í skuldaskafli Hagræðingaraðgerðum og gjaldskrárhækkunum Orkuveitu Reykjavíkur er hvergi nærri lokið þrátt fyrir að aðeins séu fimm mánuðir frá síðustu aðgerðum. Nú er umtalsverð gjaldskrár- hækkun meðal þess sem rætt er meðal æðstu stjórnenda fyrirtækisins. mynD siGTRyGGuR ARi JóHAnnssOn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.