Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Page 18
18 | Fréttir 25.–27. mars 2011 Helgarblað
Kraum er staðsett í
elsta húsi Reykjavíkur
Aðalstræti 10
p. 517 7797
kraum.is
OPNUNARTÍMAR
Mán. - Fös. 9:00 - 18:00
Lau. - Sun. 12:00 - 17:00
íslenskar fermingargjafir
strákar og stelpur
Félagið V Laugavegur ehf. í eigu tví-
burabræðranna Arnars og Bjarka
Gunnlaugssona hefur gert samn-
ing við Langanesbyggð um útleigu á
sex íbúðum í Þórshöfn sem þegar er
hafin vinna við að gera. Samningur-
inn skuldbindur sveitarfélagið til að
taka allar íbúðirnar á leigu fyrir 1.500
krónur á fermetra á mánuði næstu
10 árin. Samningurinn hljóðar því
samtals upp á rúmar 100 milljónir
króna. Í fundargerð bæjarstjórnar
segir að „leiguverð taki breytingum í
samræmi við þróun vísitölu neyslu-
verðs“. Miðað við verðlagsþróun
síðustu ára má því gera ráð fyrir að
leiguupphæðin hækki líklega jafnt
og þétt á leigutímanum.
Leiguverð það sama og í
Reykjavík
Íbúafjöldi á Þórshöfn hefur haldist
stöðugur síðustu ár búa 380 manns
í bænum. Fimmtán ár eru frá því
að íbúðarhúsnæði var síðast byggt í
bænum. Leiguverðið sem þeir Arnar
og Bjarki hafa samið um við Langa-
nesbyggð er þó heldur hátt miðað
við fáa íbúa og staðsetningu sveit-
arfélagsins. Leiguverð á hvern fer-
metra í Reykjavík er á bilinu 1.200
til 2.100 krónur, samkvæmt leigu-
verðkönnun Neytendasamtakanna.
Samkvæmt neysluviðmiðum vel-
ferðarráðuneytisins er leiguverð í
Reykjavík þó talsvert lægra en sett er
á nýju íbúðirnar sex.
Um er að ræða sex raðhúsaíbúð-
ir sem hver er um 93 fermetrar að
stærð. Kostnaður sveitarfélagsins
við hverja íbúð er því rúmar 139
þúsund krónur á mánuði. Gunn-
ólfur Lárusson sveitarstjóri segir
fermetraverðið vissulega vera hátt
en að það sé bara eitthvað sem
sveitarfélagið þurfi að sætta sig við.
„Við komum til með að þurfa að
borga með þessu eitthvað, við get-
um örugglega ekki leigt þetta út á
þennan pening. Þetta er bara fórn-
arkostnaður við að fá húsnæði fyr-
ir fólk sem vill koma hingað,“ segir
hann. „Það hefur verið og er skortur
á leiguhúsnæði.“
„Ekki draumakosturinn“
Samningurinn var samþykktur á
aukafundi í bæjarstjórn Langanes-
byggðar sem ekki var auglýstur. Sam-
kvæmt heimildum DV tók það lang-
an tíma að fá fundargerðina birta
á vef sveitarfélagsins. Samkvæmt
fundargerðinni mun sveitarstjórinn
hafa vikið af fundinum eftir að hann
bar upp tillögu um samninginn.
Samningurinn var samþykktur sam-
hljóða á fundinum og var sveitar-
stjóra falið að vinna áfram í málinu.
„Sveitarfélagið á svo mikið af
eignum og getur ekki bætt við og við
viljum frekar losna við þetta því við
teljum leigumarkaðinn frekar eiga
heima á frjálsum markaði en í gegn-
um sveitarfélögin,“ segir Gunnólfur
sem viðurkennir þó að með samn-
ingnum sé sveitarfélagið enn vel
tengt leigumarkaðnum. Aðspurður
hvort sveitarfélagið hafi ekki sjálft
getað byggt húsin á jafn hagkvæman
hátt og leigufélagið, neitar Gunnólf-
ur því. „Það var annaðhvort að gera
þetta svona eða þetta hefði ekki ver-
ið gert. Þetta var ekki draumakostur-
inn en þetta var eini kosturinn.“
n Bæjarstjórn í Þórshöfn samþykkir að tryggja leigumiðlun viðskipti n Verð á fermetra í íbúð-
unum svipað og á höfuðborgarsvæðinu n Eftirspurn er eftir húsnæði, segir sveitastjórinn
LANGANESBYGGÐ TRYGGIR
TVÍBURUM 100 MILLJÓNIR
„Þetta var ekki
draumakosturinn
en þetta var eini kosturinn.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Byggja leiguíbúðir Arnar
og Bjarki Gunnlaugssynir hafa
tryggt sér tugmilljóna hagnað af
leigufyrirtæki sínu V Laugavegur
ehf. með samningi við Langanes-
byggð upp á 100 milljónir króna.