Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Blaðsíða 27
Sprengjuvargurinn Umar Farouk
Abdulmutallab, sem reyndi að
sprengja sjálfan sig um borð í far-
þegaþotu í Bandaríkjunum um jól-
in 2009, hefur viðurkennt ástæðu
þess að hann ákvað að láta til
skarar skríða í flugvél á leiðinni
til Detroit. Ástæðan var einfald-
lega sú að þangað var ódýrast að
fljúga. Abdulmutallab hafði íhug-
að að kaupa sér flugmiða til frægari
og táknrænni áfangastaða á borð
við Houston og Chicago, en féll frá
þeim hugmyndum vegna þess að
hann hafði ekki efni á svo dýrum
flugmiðum.
Íhugaði Chicago
Þetta kemur fram í leynigögn-
um sem AP-fréttastofan aflaði sér.
Umar Farouk Abdulmutallab var
hluti af svokallaðri Jemen-deild al-
Kaída. Talið er að með því að velja
Detroit frekar en frægari borg-
ir Bandaríkjanna sýni stjórnend-
ur Jemen-deildarinnar að þeir séu
ósammála Osama bin Laden um
að ráðast helst á fræg skotmörk.
Svo virðist sem skotmörkin skipti
minna máli hjá Jemenum.
Hryðjuverkamanninum mis-
tókst ætlunarverk sitt og var yfir-
bugaður áður en hann gat látið til
skarar skríða. Hann hefur verið í
haldi í Bandaríkjunum síðan.
Abdulmutallab ætlaði upphaf-
lega að sprengja farþegaþotu á leið
til Houston, þar sem hann sótti ráð-
stefnu íslamista árið 2008. Honum
snérist hugur og ákvað að ráðast
á flugvél á leið til Chicago. Þeg-
ar hann komst að því hvað flug-
miðar þangað voru dýrir, ákvað
hann einfaldlega að velja ódýrasta
áfangastaðinn. Detroit er ein fá-
tækasta borg Bandaríkjanna, þar
sem atvinnuleysi er mikið og allt að
fjórðungur íbúa gæti flutt á brott á
næstu árum. Í ljós hefur komið að
Abdulmutallab valdi jólin ekki sér-
staklega til að láta skarar skríða.
Þaulskipulagt tilræði
Þrátt fyrir að tímasetning og stað-
setning hafi ekki skipt máli telur
bandaríska leyniþjónustan CIA
að tilræðið hafi verið þaulskipu-
lagt. Áður en hann lagði af stað í
hina misheppnuðu sjálfsvígsför fór
hann á heimili eins æðsta stjórn-
enda al-Kaída til þess að skipu-
leggja allt og læra á sprengjuna sem
hann bar á sér. Stjórnandinn heitir
Fahd al-Quso og er talinn hafa ver-
ið náinn samverkamaður bin La-
dens í Afganistan fyrir um 10 árum.
Adulmutallab, sem er 24 ára,
hefur verið ákærður fyrir að til-
raun til að myrða 281 farþega og
11 áhafnarmeðlimi um borð í far-
þegaþotu Northwest Airlines 253.
Eftir að hann var handtekinn við-
urkenndi hann að hafa ætlað að
sprengja þotuna. Hann sýndi yfir-
völdum samstarfsvilja í upphafi
og er talinn hafa gefið mikilvægar
upplýsingar um starfsemi al-Kaída
í Jemen. Réttarhöld hefjast yfir
Adulmutallab í október og mun
hann verja sig sjálfur.
Erlent | 27Helgarblað 25.–27. mars 2011
Þjóðaratkvæðagreiðsla
9. apríl 2011 um gildi laga nr. 13/2011
Kjörstaðir í Reykjavík
Í Reykjavíkurkjördæmi suður: Í Reykjavíkurkjördæmi norður:
Hagaskóli Ráðhús
Hlíðaskóli Laugardalshöll
Breiðagerðisskóli Íþróttamiðstöðin í Grafarvogi
Ölduselsskóli Borgaskóli
Íþróttamiðstöðin Austurbergi Ingunnarskóli
Árbæjarskóli Klébergsskóli
Ingunnarskóli
Vakin er athygli á að ekki verður kjörstaður á Kjarvalsstöðum að þessu sinni heldur munu
þeir sem þar hefðu kosið nú kjósa í Laugardalshöll.
Kjörfundur hefst laugardaginn 9. apríl kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00. Sérstök athygli er
vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á því að fá ekki að
greiða atkvæði.
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður mun hafa aðsetur í Hagaskóla á kjördegi og þar
mun talning atkvæða hefjast að loknum kjörfundi kl. 22.00.
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður mun hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur á
kjördegi og þar mun talning atkvæða hefjast að loknum kjörfundi kl. 22.00.
Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður
Kjörskrár í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 9. apríl
nk. munu liggja frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 30. mars nk. fram á
kjördag. Vakin er athygli á því að hægt er að fá upplýsingar um hvar kjósendur eru á kjörskrá
á vefnum www.kosning.is.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra eru á kjörskrá. Athugasemd-
um vegna kjörskráa í Reykjavíkurkjördæmum skal beint til skrifstofu borgarstjórnar, Ráð-
húsi Reykjavíkur, sími 411 4700, netfang kosningar@reykjavik.is. Þar eru jafnframt veittar
nánari upplýsingar. Borgarráð úrskurðar um athugasemdir vegna skráningar í kjörskrá.
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður
Skrifstofa borgarstjórnar
n Umar Farouk Abdulmutallab reyndi
að sprengja farþegaþotu yfir Detroit um
jólin 2009 n Valdi borgina af því að flug-
miðar þangað voru ódýrari en til Chicago og
Houston n Þaulskipulagt tilræði
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
SparSamur
Sprengju-
maður „Þegar hann komst
að því hvað flug-
miðar þangað voru dýrir
ákvað hann einfaldlega
að velja ódýrasta áfanga-
staðinn.
Umar Farouk Abdulmutallab
Sparsamur sprengjuvargur sem valdi
einfaldlega ódýrasta áfangastaðinn
þrátt fyrir að al-Kaída vilji helst
ráðast á táknræn skotmörk í Banda-
ríkjunum. MynD ReUteRs
StarfS-
kraftur
óSkaSt!
Skemmtilegur vinnustaður í miklum
vexti þarf að bæta við starfskrafti til að
sinna reikningagerð, viðskiptamanna-
bókhaldi, afgreiðslu pantana, innheimtu,
símsvörun og þjónustu við viðskiptavini.
Samkeppnishæf laun í boði.
Hæfniskröfur
n Þekking á DK skilyrði ásamt góðri
almennri tölvukunnáttu.
n Stúdentspróf eða sambærilegt
n Viðkomandi þarf að búa yfir
þjónustulund og góðu skipulagi.
Merkið umsóknina „Starf 3003“ og
sendið til:
DV ehf
Tryggvagata 11
101 Reykjavík
UmsóknarfrestUr
er til 30. mars 2011