Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Page 41
Michael og Christopher. En eins og
Elizabeth sagði sjálf var ástarsamband
þeirra meira í ætt við náinn vinskap
og því lauk hjónabandinu þegar ann-
ar maður náði ástum hennar. Sá var
Mike Todd framleiðandi. Saman eign-
uðust þau dótturina Lizu. Todd lést
þegar flugvél hans fórst en hann hafði
nefnt hana Lucky Liz. Taylor var harmi
slegin. Fíkn hennar í verkjalyf, eiturlyf
og áfengi tók yfir.
Elizabeth giftist aftur árið 1959,
Eddie Fisher. Það var skandall í litlu
Hollywood en Eddie fór frá Debbie
Reynolds til þess að vera með Eliza-
beth. Þær tvær léku saman í síðustu
mynd hennar, The Old Broads, árið
2001 og hafði stríðsöxin þá verið graf-
in.
Elizabeth var helst þekkt fyrir að
leika kynþokkafulla kvenvarga eða
mjúkar bombur. Hún sýndi þó magn-
aðan leik í mynd í myndinni Giant á
móti James Dean. Markverð mynd að
sjá fyrir aðdáendur Elizabeth.
Elizabeth féll fyrir Richard Burton
þegar hún lék á móti honum í einni
dýrustu mynd allra tíma. Cleopötru.
Hitinn á milli þeirra er öllum aug-
ljós sem horfa á myndina og meira
að segja páfinn skipti sér af því sem
hann áleit syndsamleg samskipti
þeirra á milli en bæði voru þau gift
og gátu ekki látið hvort annað í friði.
Mr. Big
Þau slitu sambandi við maka sína og
giftu sig árið 1964. Þau voru eins og
flugeldasýning saman í Hollywood.
Richard keypti handa henni stærsta
demant í heimi og fjölda annarra
skartgripa, málverk eftir gamla
meistara og risastóra lúxussnekkju.
Þau komu fram saman í The Tam-
ing of the Shrew og ættleiddu litla
stúlku að nafni Maria frá munaðar-
leysingjahæli í Þýskalandi. Maria var
meðal barna hennar sem kvöddu
hana á dánarbeðinum í Los Angeles.
Burton var stóra ástin í lífi Eliza-
beth og hún lagði það meira að
segja á sig að læra móðurmál hans,
velsku. Ástin fjaraði þó út með mik-
illi drykkju þeirra beggja og bitur-
leika Burtons gagnvart henni. Hann
var öfundsjúkur og reiddist henni
oft og kallaði hana þá ölllum illum
nöfnum. Þau skildu árið 1974 en eitt-
hvað áttu þau erfitt með að sjá hvort
af öðru og giftu sig aftur 1975 aðeins
til að skilja ári seinna.
Leiðinlegt hjónaband
Hjónaband hennar við öldunga-
deildarþingmanninn John Warner
reyndist mörgum ráðgáta. Í nokkur
ár var Elizabeth í hlutverki íhalds-
samrar Washington-eiginkonu og
leiddist það víst mikið. Einhverju
máli hefur hann þó skipt hana því
hún seldi dýrasta demant verald-
ar frá Burton og lagði féð í kosn-
ingasjóð eiginmanns síns. Leiðind-
in höfðu vinninginn og Elizabeth
losaði sig úr hjónabandinu. Síð-
asti eiginmaður hennar var Larry
Fortensky. Honum kynntist hún í
meðferð árið 1991 og þau giftu sig
á búgarði Michaels Jackson í einu
furðulegasta brúðkaupi sögunnar
en meðal gesta voru Ronald Reag-
an og Ford Bandaríkjaforsetar. Larry
var hálfutangátta í Hollywood-
heimi Elizabeth og að lokum skildu
þau í góðu.
Undarlegur vinskapur
Eftir að ferill Elizabeth var á enda
fitnaði hún ógurlega. Hún hest-
húsaði ótrúlega miklu af mat og við-
urkenndi opinberlega að hún ætti
við vanda að stríða. Áfengisfíknin
fylgdi henni á efri ár en mitt í þessarri
einmanalegu líðan eignaðist hún
óvænt náinn vin, Michael Jackson.
Vinátta þeirra var náin og lífseigari
en öll hjónabönd hennar til samans.
Michael var fullur aðdáunar á vin-
konu sinni og hugsaði meira að segja
um að láta gera á sér lýtaaðgerðir til
að líta út eins og Taylor 12 ára í hlut-
verki hennar í National Velvet.
Heilsu hennar hrakaði mikið síð-
ustu árin sem hún lifði en hún barð-
ist gegn hverri raun og hafði að sögn
ættingja sinna ótrúlegan lífsvilja.
Aðdáendur hennar minnast sterkrar
og fallegrar konu sem stundum hefur
verið kölluð: Síðasta stjarnan.
kristjana@dv.is
Úttekt | 41Helgarblað 25.–27. mars 2011
Síðasta myndin Þessi mynd er
ein þeirra síðustu sem teknar voru
af Elizabeth á þessu ári.
Eiginmaður númer eitt Með hótelerfingjanum Nicky
Hilton árið 1950, aðeins 18 ára. Nicky gekk svo í skrokk á
henni að hún missti barn sem hún bar undir belti.
Mr. Big Richard Burton var stóra eldfima ástin
í lífi Taylor. Hún lærði meira að segja móðurmál
hans, velsku. Honum giftist hún tvisvar.
Önnur Óskarstiln-
efningin Elizabeth
var kynþokkafullur
kvenvargur í Cat on a
Hot Tin Roof.
Vináttan við Michael Jackson Vin-
átta poppgoðsins sáluga og Elizabeth var
lífseigari en nokkurt hjónabanda hennar.
„Á langri ævi sinni
hefur hún farið í
100 aðgerðir og þar af
voru 20 stóraðgerðir þar
sem óttast var um líf
hennar.