Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Qupperneq 62
62 | Fólk 25.–27. mars 2011 Helgarblað
í Drekktu betur
n Logi Bergmann er einn reyndasti
spyrill landsins n Semur spurning-
arnar sjálfur n Drekktu betur fer
fram í fjögurhundraðasta sinn
Sölvi bíður
sumarsins
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason er
orðinn þreyttur á íslenska vetrinum. Á
Facebook-síðu sinni segist hann vilja fara
til Suður-Ameríku að dansa. „Þessi vetur
hefur fengið mann til að keyra upp Enrique
og Marc Anthony á fóninum og leggja á
ráðin um langa dvöl í Suður-Ameríku á
salsa- og tangónámskeiðum!“ segir Sölvi á
Facebook-síðunni. Margt hefur gengið á hjá
Sölva í vetur en hann talaði um sambands-
slitin við kærustu sína í einlægu viðtali við
DV nýverið. Veturinn er þó senn á enda en
Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi stormur, sagði
á miðvikudag að vorið kæmi á laugardaginn.
Forsetinn
fær afabarn
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á
von á fimmta afabarninu. Dóttir hans Dalla
á von á sínu þriðja barni með eiginmanni
sínum Matthíasi Sigurðarssyni. Tinna,
tvíburasystir Döllu, á einnig tvö börn með
eiginmanni sínum Karli Pétri Jónssyni.
Ljóst verður að mikil gleði á eftir að ríkja á
Bessastöðum á næstunni þó að það beinist
mikil athygli að forsetaembættinu vegna
annarra hluta. Ekki liggur ljóst fyrir hvenær
Dalla á von á sér en það var fjölmiðlamað-
urinn Eiríkur Jónsson sem greindi frá þessu
á bloggi sínu.
LOGI
F
jölmiðlamaðurinn Logi Bergmann er
ekki ókunnugur því að stjórna spurn-
ingakeppnum en hann verður spyr-
ill á fjögurhundruðustu Drekktu bet-
ur-spurningakeppninni sem haldin verður á
Hverfisgötu 46 í dag, föstudag. Logi er einn
reyndasti spyrill landsins en hann hefur með-
al annars verið spyrill í Gettu betur, spurninga-
keppni menntaskólanna, sem Drekktu betur
dregur nafn sitt einmitt af. „Ég held að ég sé með
þeim reyndari enda búinn að stjórna spurn-
ingaþætti í mörg ár, en hvort ég rúlla þessu upp
er svo annað mál,“ segir hann aðspurður hvort
hann eigi ekki eftir að rúlla starfinu upp. En er
Logi fastagestur í keppninni? „Ég hef ekki mætt
mjög lengi, ég fór stundum á Grand rokk hérna
í gamla daga en svo hefur þetta verið á föstu-
dögum og ég er eiginlega upptekinn öll föstu-
dagskvöld.“
Logi semur spurningarnar sjálfur en hann
segir þær ekki vera of erfiðar. „Mér finnst að
spurningar eigi að vera þannig að þú eigir að
vita svarið. Spurningar eins og: Hvað eru mörg
sveitarfélög á Íslandi? Það á enginn að vita
þetta nema að hann vinni hjá Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga. Spurningarnar eiga að
vera um eitthvað sem þú í rauninni ættir að
vita. Eitthvað sem þú hefur heyrt eða séð,“ seg-
ir Logi. „Ég hef rosalega gaman af því að búa
til spurningar og ég er í því líka núna að und-
irbúa spurningakeppni fjölmiðlanna sem fer
fram um páskana á Bylgjunni. Þannig að þetta
fer saman, maður situr bara og horfir út í loftið
og hugsar um eitthvað sniðugt til að spyrja um.
Þetta er rosagaman.“
Fyrst um sinn var Drekktu betur-keppnin
haldin á skemmtistaðnum sáluga Grand rokk
en núna fer keppnin fram á Hverfisgötu 46. Þó
að keppnin dragi nafn sitt af Gettu betur er hún
þó með talsvert öðru sniði en Gettu betur. Spurt
er 30 spurninga sem eru samdar af spyrli hverju
sinni. Öllum er velkomið að mæta á spurninga-
keppnina en til að taka þátt þarf að mynda
tveggja manna lið með einhverjum. Spurninga-
keppnin hefst stundvíslega klukkan 18.00 og
má búast við þungum spurningum, en samt
ekki of erfiðum, samkvæmt Loga.
Stjörnulögfræðingur neitar hvorki né játar:
„ÉG ER ALLAVEGA Á TENERIFE“
„Ég tjái mig bara ekkert um það. No
komment bara,“ segir stjörnulög-
fræðingurinn Sveinn Andri Sveins-
son sem hvorki staðfestir né neitar
því að hann sé í sambandi við Krist-
rúnu Ösp Barkardóttur. Séð og Heyrt
greindi frá því að „rómantík væri í
loftinu“ hjá þeim Sveini Andra og
Kristrúnu á forsíðu. Blaðið greindi
einnig frá því að þau væru bæði
stödd á Tenerife. Sveinn Andri vildi
ekki tjá sig um það hvort Kristrún
Ösp væri á Tenerife en sagði: „Ég er
allavega á Tenerife.“
Kristrún Ösp er nýhætt í sam-
bandi með Stefáni Lárusi Reynissyni
en hún sagði frá sambandsslitunum
í nýlegu viðtali við DV. „Við byrjuð-
um saman 14. nóvember og hættum
saman nákvæmlega fjórum mánuð-
um síðar. Það var bara eins og þetta
hefði verið ákveðið fyrir okkur,“ sagði
hún um sambandsslitin. Hún sagðist
þá einnig hafa saknað fótboltakapp-
ans Dwights York sem hún hefur
verið í sambandi við með hléum
um nokkurt skeið. Ekki fæst staðfest
hvort Sveinn Andri feti nú í fótspor
Yorks og sé kominn í samband með
Kristrúnu en Sveinn Andri vill ekki
einu sinni staðfesta við
DV að hann og Krist-
rún þekkist.
Sveinn Andri
hefur lengi þótt
einn eftirsótt-
asti piparsveinn
landsins en
Kristrún Ösp hef-
ur einnig þótt ein
af fegurri íslensku
fyrirsætunum og hefur
hún vakið athygli út fyrir
landsteinana fyrir samband sitt við
Dwight York.