Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2011, Síða 12
12 | Fréttir 6.–8. maí 2011 Helgarblað
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
„Það er ekki hægt að segja að hún
sé á lokastigi en hún er komin vel
á veg,“ segir Eyþór Björnsson, for-
stöðumaður fiskveiðistjórnunarsviðs
Fiskistofu, um rannsókn stofnunar-
innar á meintu löndunarsvindli fisk-
vinnslunnar Íslandsstofu á Suður-
eyri. Rannsóknin tengist útgerðinni
Skriðnafelli sem var í eigu fyrirtæk-
is Ásbjörns Óttarssonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins.
Útgerðin gerði út dragnótarbát-
inn Valgerði BA frá Suðureyri en síð-
asta sumar stóðu eftirlitsmenn Fiski-
stofu starfsmenn fiskvinnslunnar
Íslandssögu og Suðureyrarhafnar að
því að landa fram hjá vigt úr bátnum.
Samkvæmt upplýsingum frá Fiski-
stofu var útgerðin í kjölfarið svipt
veiðileyfinu og henni gert að leggja
til kvóta fyrir þeim afla sem landað
var fram hjá vikt.
Bakreikningsrannsókn
Ásbjörn vildi lítið tjá sig um málið í
kjölfar rassíu Fiskistofu í fyrra, en
benti á að hann hefði selt hlut sinn
í bátnum einu og hálfu ári áður en
eftirlitsmenn Fiskistofu komust á
snoðir um málið. Ásbjörn seldi hlut
sinn í útgerðinni til viðskiptafélaga
síns, Óskars H. Gíslasonar, sem hafði
fram að því átt 34 prósenta hlut í út-
gerðinni ásamt Nesveri ehf. Ásbjörn
Óttarsson er eigandi Nesvers. Salan
fór fram í janúar árið 2009 að sögn
Ásbjörns.
Eyþór segir í samtali við DV að
fyrir tækið sem tekið hafi við aflanum,
fiskvinnslan Íslandssaga, hafi verið
tekið til bakreikningsrannsóknar en
niðurstaða úr þeirri rannsókn liggi
ekki ennþá fyrir. Hann vill ekkert tjá
sig frekar um framgang málsins eða
hverjar niðurstöður rannsóknarinn-
ar séu, nú þegar hún hefur staðið í
meira en ár. Þá fást ekki upplýsingar
um það hversu langt aftur í tímann
rannsóknin nær, en mögulegt er að
hún nái til þess tíma þegar Ásbjörn
var eigandi Skriðnafells.
Dulbúnir sem stangveiðimenn
Málið vakti talsverða athygli á sínum
tíma en eftirlitsmenn Fiskistofu tóku
til þess bragðs að dulbúa sig sem er-
lenda sjóstangveiðimenn til þess að
vekja ekki á sér athygli þar sem þeir
voru við eftirlit við Suðureyrarhöfn.
Þar sáu þeir starfsmann fiskvinnsl-
unnar keyra afla frá vélarbátnum
Valgerði BA að fiskvinnsluhúsinu.
Aðeins hluti aflans fór á hafnarvog-
ina en rest var færð inn í stæðu af
tómum körum við höfnina.
Í kjölfarið var lögreglan kölluð á
vettvang og þrír starfsmenn hand-
teknir. Þar á meðal hafnarvörðurinn
og verkstjóri hjá Íslandssögu. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu á
sínum tíma fór eitt tonn af þorski
fram hjá vigt á meðan eftirlitsmenn
fylgdust með.
Milljóna arðgreiðslur
DV fjallaði á sínum tíma um arð-
greiðslur Ásbjörns Óttarssonar en
hann ákvað að greiða sér og eigin-
konu sinni 65 milljónir króna úr Nes-
veri þótt skuldir félagsins væru langt
umfram eignir.
Ásbjörn sagði í kjölfar fréttaum-
fjöllunar um málið af sér nefndar-
setu í þingnefnd sem átti að fjalla
um niðurstöður rannsóknarnefnd-
ar Alþingis. Ekki náðist í Ásbjörn við
vinnslu fréttarinnar.
n Rannsókn á meintu löndunarsvindli langt komin n Þingmaður
seldi útgerð einu og hálfu ári áður en upp komst um svindlið n Fisk-
vinnslan Íslandssaga hefur verið tekin til bakreikningsrannsóknar
Rannsókn
á meintu
svindli
langt komin
Seldi hlut sinn
Ásbjörn seldi hlut sinn
í Skriðnafelli nokkru
áður en eftirlitsmenn
Fiskistofu urðu vitni
að löndunarsvindlinu
meinta.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Þrír handteknir Þrír starfsmenn voru hand-
teknir í tengslum við málið í byrjun júní í fyrra.
Eignir upp á 500 milljónir:
Umsvifamikill
stjórnarformaður
Helgi Magnússon, stjórnarformað-
ur Samtaka iðnaðarins og stjórn-
arformaður Lífeyrissjóðs Verzl-
unarmanna, er umsvifamikill á
hlutabréfamarkaði ef marka má
úttekt á honum í Viðskiptablaðinu
sem kom út á fimmtudag.
Þar kemur fram að eignarhalds-
félagið Harpa ehf., sem er í meiri-
hlutaeigu Helga, sé 17. stærsti eig-
andi Marel. Markaðsvirði hlutar
félagsins í Marel var rúmlega 700
milljónir króna miðað við lokagengi
bréfa í fyrirtækinu á miðvikudag.
Fjallað er um ársreikning Hörpu
ehf. í Viðskiptablaðinu þar sem
kemur fram að félagið hafi átt í lok
árs 2009 skráð markaðshlutabréf
fyrir rúmlega 410 milljónir króna.
Heildareignir samkvæmt ársreikn-
ingi eru rúmlega 500 milljónir
króna.
Helgi, er sem fyrr segir stjórnar-
formaður í Lífeyrissjóði Verzlunar-
manna, en lífeyrissjóðurinn á einnig
stóran hlut í Marel, 6,3 prósent, en
markaðsvirði þess hlutar er í dag 6
milljarðar króna.
Mistök ollu
tjóni í Árbæ
Mistök urðu til þess að fjölmarg-
ir íbúar í Árbæ urðu fyrir vatns-
tjóni þann 12. apríl. Niðurstaða
úttektar sem unnin var á vegum
Orkuveitu Reykjavíkur, OR, leiddi í
ljós að þegar verið var að einangra
áhrif bilunar, sem orðið hafði í að-
alæð við Rofabæ, var vatni hleypt
á þar sem verið hafði vatnslaust,
án þess að opnað væri fyrir bakrás
kerfisins fyrst. Við það komst ekki
vatn frá húsunum og þrýsting-
urinn sem þá byggðist upp olli
víða tjóni. OR hefur ekki upp-
lýsingar um fjölda íbúða þar sem
skemmdir urðu en komið hefur
fram að þær gætu verið um 70.
Þeim sem urðu fyrir tjóni og
hafa ekki þegar tilkynnt trygginga-
félagi sínu um skemmdir er bent á
hafa samband við VÍS, trygginga-
félag Orkuveitu Reykjavíkur.
Leiðrétting
Mistök áttu sér stað þegar mynd af
röngu húsi var birt við frétt á blað-
síðu 26 í DV síðastliðinn miðviku-
dag. Myndin átti að vera af húsi Kára
Stefánssonar við Hávallagötu 24 í
Reykjavík en fréttin snéri að sölu
Kára á húsinu. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.