Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2011, Page 22
22 | Fréttir 6.–8. maí 2011 Helgarblað
Þriggja ára samningar
vekja vonir og kjark
Guðmundur Gunnarsson, fráfar
andi formaður Rafiðnaðarsambands
Íslands, er ánægður með nýgerða
kjarasamninga. Samstaðan meðal
samtaka launafólks hafi tryggt þeim
lægst launuðu meiri launahækkanir
en menn dreymdi um fyrir nokkr
um vikum. Hann vill líta á þriggja ára
samninga sem örvandi afl fyrir þjak
að hagkerfið.
Guðmundur má því vel við una
þegar hann hefur ákveðið að fara
út á hliðarlínuna meðal félaganna í
Rafiðnaðarsambandinu. Það er þó
ekki aldur eða heilsufar sem knýr
hann til þess. Guðmundur segir að
besta leiðin til að fá dæluna í gang
og „hrista rýtingasettið úr bakinu“
sé að ganga á Esjuna. Það gerir hann
nokkrum sinnum í hverri viku.
Herfræði LÍÚ
Kjaraátök undir óvenjulegum skil-
yrðum enduðu með því að þið náð-
uð betri samningi en þið voruð með
á borðum fyrir 15. apríl. Hvernig má
það vera?
„Þetta á sér þá skýringu að at
vinnurekendahópurinn hefur spil
að á mjög órökréttan hátt úr spilum
sínum með því að velja jafn umdeilt
mál og auðlindirnar eru og stilla öll
um upp við vegg með því að í kjara
samningum skyldi vera ákvæði um
sjávar útveginn og að öðrum kosti
yrði ekkert rætt um kjarasamning.
Fyrst neituðu þeir alveg að ræða
launamálin og vildu ræða alla aðra
þætti. Launamálin yrðu ekkert rædd
fyrir en fyrir lægi yfirlýsing frá ríkis
stjórninni. Þetta varð til þess að iðn
aðarmannahópurinn gekk út um
miðjan febrúar. Til þess að fá okk
ur aftur að samningaborðinu varð
að setja ákveðinn öryggisventil sem
verkaði með þeim hætti að ef þetta
kæmi fyrir aftur gætum við gengið út
en haldið einhverju eftir í vasanum
ef svo má segja. Þetta varð til þess að
samið var um tvær 50 þúsund króna
eingreiðslur sem átti að vera trygg
ing ef þeir myndu hleypa þessu upp
aftur Þarna var um að ræða skamm
tímasamning frá mars til september.
Þetta er fundið út frá meðalheildar
hækkun launa á mánuði innan ASÍ
eða 16.700.
Vaxandi spenna í lokin
Síðan spilaði SA þessum sjávarút
vegsmálum út aftur og þá sprakk allt
enn á ný. Til þess að fá okkur aftur
að borðinu þurftu þeir að leggja eitt
hvað nýtt fram. Þetta gerðist raun
verulega þrisvar sinnum og í hvert
skipti urðu þeir að spila meiru út til
þess að fá fólk að samningaborð
inu. Samfara þessu ólu þeir í raun á
meiri óvild í sinn garð. Ég hef aldrei
fyrr í kjarabaráttunni séð jafnlitla
herkænsku og klaufalega hernaðar
list. Það er svo kaldhæðni örlaganna
að þeir sem borga herkostnaðinn af
þessu er ekki LÍÚ. Þetta skiptir út
vegsmenn fjáhagslega engu máli
nema ef vera kynni að þeir hagn
ist á því að hafa óbreytt ástand sem
lengst. Þetta lendir á þeim fyrirtækj
um sem síst mega við því. Það er
er vitanlega allaf verið að reyna að
hækka lægstu launin og alltaf reynt
að hækka kauptryggingu, bætur og
þess háttar. Alltaf hækkar þar með
kostnaður ferðaþjónustunnar og
verslunar og þjónustu í hvert skipti
sem LÍÚ spilar þessu út. Þau stilltu
sér upp með LÍÚ og ég skil einfald
lega ekki lógíkina í þessu.“
Það virðist augljóst að hagsmun-
ir mismunandi atvinnugreina hafa
ekki runnið í sama farvegi að þessu
leyti. Hefur þetta skapað spennu milli
ýmissa greina innan Samtaka at-
vinnulífsins?
„Maður skynjar að svo sé án þess
að ég ætli að lýsa því hvernig staðan
er hjá þeim. En ég fann það á loka
sprettinum að viðsemjendur okkar
úr ferðaþjónustu og öðrum þjónstu
greinum voru mjög stóryrtir og töldu
að þessir samningar væru orðnir allt
of kostnaðarsamir fyrir slíkar greinar.
Hækkanirnar vega þyngst hjá þess
um greinum. Hjá okkur iðnaðar
mönnum verkar hækkun lægstu
launa ekki eins þungt og hjá hinum
greinunum því við erum með þessa
svokölluðu millitekjuhópa.“
Grunnstærðir samninganna
Ertu ánægður með samningana?
„Já, ég er það. Að því er varð
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johann@dv.is
n Guðmundur Gunnarsson lætur af
störfum sem formaður Rafiðnaðar-
sambands Íslands n Hann fagnar því
að hafa tekið þátt í gerð þriggja ára
kjarasamninga sem eigi að örva hag-
kerfið eftir djúpa lægð n Botnar ekkert
í herkænsku SA og segist í viðtali við
Jóhann Hauksson ætla að finna meiri
tíma fyrir sjálfan sig og fjölskylduna
„Ég hafði hugsað
mér að fara í til-
tekin verkefni og þvælast
ekki fyrir væntanlegum
formanni. Fara kannski í
menntamálin aftur.
Undirritun samninga Guðmundur
Gunnarsson undirritar kjarasamninga
í húsi ríkissáttasemjara fyrir helgina.
mynd SiGtRyGGUR ARi JóHAnnSSon