Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2011, Side 55
Sport | 55Helgarblað 6.–8. maí 2011
ENDURKOMAN
FULLKOMNUÐ?
Hjólaðu
í sólinni
www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40
Giant Sedona
Létt og þægilegt borgarhjól,
21 gír dempari í sæti og á
framgaffli, álstell og sterkar
tvöfaldar gjarðir.
Verð 69.900 kr.
Bronco Eleganse
Verð 59.900 kr.
Frábært 26” götuhjól með álstelli,
hnakki með gormum og Shimano
gírum.
Ævintýri enn gerast, alla vega í knatt-
spyrnunni. Um síðustu helgi tryggði
Norwich sér annað sætið í Champions-
hip-deildinni með sigri á Portsmouth,
1–0. Það þýðir aðeins eitt; Norwich
spilar í bestu deild í heimi á næsta ári,
ensku úrvalsdeildinni. Fyrir tveimur
árum benti ekkert til þess að „Kanarí-
fuglarnir“, eins og liðið er kallað vegna
gulra og grænna búninga sinna, væru á
leiðinni aftur upp í deild þeirra bestu.
Liðið var fallið niður í þriðju efstu deild
og hóf tímabilið þar með 7–1 tapi gegn
Colchester. Knattspyrnustjóri Colches-
ter var Paul Lambert, gamall skoskur
landsliðsmaður, sem á að baki Meist-
aradeildarsigur með Borussia Dort-
mund. Norwich sá sér leik á borði og
fékk Lambert yfir. Fyrst hann gat rass-
skellt sitt eigið lið svona, hvað gæti
hann þá gert með Norwich? Hann var
ekki lengi að svara því. Á síðasta tíma-
bili vann Norwich League 1 og um síð-
ustu helgi vann liðið sér inn sæti í úr-
valsdeildinni. Þetta er í fyrsta skiptið í
ellefu ár sem lið kemst upp úr þriðju
efstu deild í þá efstu á tveimur árum.
Síðast var það Joy Royle sem vann það
afrek með Manchester City fyrir ell-
efu árum. Sannkallað kraftaverk sem
Paul Lambert er búinn að vinna með
„Kanarí fuglana“.
Taplaust síðan í febrúar
Lambert hefur ekki úr miklu að moða
hjá Norwich þó svo rík hjón að nafni
Michael Wynn-Jones og Delia Smith
hafi stigið inn og bjargað liðinu úr
skuldavanda og bætt aðeins við. Í leik-
mannahópnum er ekki einn leikmað-
ur sem meðaláhugamaður um enska
boltann þekkir með nafni. Lambert er
þó snillingur í að kreista hvern einasta
dropa út úr hverjum einsta leikmanni
og fá hann til að trúa á verkefnið. Það
sannaði hann til dæmis þegar hann
kom Wycombe Wanderers í undan-
úrslit deildarbikarsins fyrir nokkr-
um árum og gerði þar jafntefli í fyrri
leiknum gegn stórliði Chelsea. Allt
tímabilið hefur Norwich verið í og við
umspilssætin, en hafa ber í huga að
Norwich var að koma upp úr deild-
inni fyrir neðan og hefur mun minna
fé á milli handanna en mörg liðanna
sem það er að keppa við.
Tap gegn Burnley 5. febrúar var
vendipunktur á leiktíðinni fyrir Nor-
wich. Eftir það tap hefur Norwich
spilað fimmtán leiki og ekki tapað
einum einasta. Liðið hefur unnið tíu
þeirra og gert fimm jafntefli en það
gera 35 stig í hús af 45 mögulegum.
Á meðan hin liðin í baráttunni voru
að tapa stigum héldu Kanarífuglarnir
áfram sínu flugi og sigldu úrvals-
deildarsætinu í hús. Sannkallað æv-
intýri og allt ætlaði um koll að keyra á
heimavelli Hemma Hreiðars og félaga
í Portsmouth þegar sigur Norwich var
í höfn.
Þetta er kraftaverk
Paul Lambert, stjóri Norwich, átti sjálf-
ur farsælan feril sem leikmaður. Hann
hóf ferilinn hjá St. Mirren í Skotlandi
en færði sig síðar til Motherwell. Það-
an var hann keyptur til Dortmund en
á þessu eina ári sem hann spilaði í
Þýskalandi vann hann Meistaradeild-
ina með liðinu eftir frábæran sigur á
Juventus í úrslitaleik. Lambert spilaði
ávallt sem varnarsinnaður miðjumað-
ur og átti frábæran leik í úrslitaleikn-
um þar sem hann hindraði allar ferðir
sjálfs Zinedine Zidane sem þá spilaði
með Juventus. Eftir ævintýrið í Þýska-
landi hélt hann aftur heim á leið, spil-
aði með Celtic í átta ár áður en hann
endaði sem spilandi þjálfari Living-
ston. Sem þjálfari gerði hann flotta
hluti með Wycombe og Colchester
áður en hann vann þetta mikla afrek
með Norwich.
„Þetta er kraftaverk. Algjört krafta-
verk,“ segir Lambert. „Það er bara
hreint ótrúlegt að okkur hafi tekist
þetta. Sérstaklega þar sem við erum
nýliðar í deildinni. Það er svo lítið sem
maður getur gert sem stjóri þegar leik-
urinn er byrjaður. Ég spilaði alltaf með
frábærum leikmönnum og var alltaf
sá slakasti á vellinum. En að vera með
svona lið eins og ég hef í höndunum
þar sem leikmenn hlaupa úr sér lung-
un í hverri viku er ekkert minna en
stórkostlegt,“ segir Lambert.
Gran Holt, framherji Norwich og
fyrirliði liðsins, hjálpaði ekkert lítið til
í ár með 22 mörkum. Hann lofar stjór-
ann sinn í hástert. „Lambert er búinn
að vera magnaður. Hann nær alltaf að
hvetja okkur áfram og fá okkur til að
spila eins vel og við getum. Þetta lið er
bara magnað. Það eru frábærir strákar
í því sem eru allir tilbúnir til að gera sitt
besta í hverjum einasta leik. Andinn í
liðinu er einstakur. Það er heiður að fá
að mæta á æfingu á hverjum degi,“ seg-
ir Gran Holt.
Spennandi en erfiðir
tímar framundan
Stuðningsmenn Norwich bíða nú án
efa spenntir eftir næsta tímabili og
vonast til þess að sumarið líði sem
fyrst. Þeir eiga jú von á Manchester
United, Chelsea, Arsenal, Liverpool,
Manchester City og fleiri þekktum
stærðum í heimsókn á Carrow Road
á næsta keppnistímabili. Eins spenn-
andi og úrvalsdeildin er þá er hún mun
erfiðari og er ljóst að Norwich-menn
þurfa að bæta í. Daginn eftir að liðið
komst upp um deild greindi stjórnar-
formaður liðsins frá því að Norwich
ætlaði ekki að steypa sér í neinar skuld-
ir því forráðamenn liðsins bæru ábyrgð
á því að í bænum væri lið um ókomna
tíð. Hann sagði þó að liðið bæri ábyrgð
á því að vera með samkeppnishæft lið
í úrvalsdeildinni og yrðu því að sjálf-
sögðu einhverjir menn fengnir til liðs-
ins.
Hætt er við því að Norwich verði
virkilega undir á leikmannamarkað-
inum í sumar. Úrvalsdeildin er orð-
in keppni milljarðamæringa en helsti
peningamaður Norwich er milljóna-
mæringur. Þar getur skilið á milli í bar-
áttunni um góða leikmenn. Ljóst er þó
að Paul Lambert getur unnið krafta-
verk með óþekktan hóp og það hefur
sést í úrvalsdeildinni á þessu ári með
Blackpool að góður stjóri og leikmenn
sem leggja sig fram geta farið fjári langt.
Síðast þegar Norwich var uppi tímabil-
ið 2004/2005 átti liðið aldrei möguleika
í stóru strákana. Forráðamenn liðsins
verða að gera sér grein fyrir að úrvals-
deildin er orðin enn sterkari núna.
Kraftaverkamaður
Kanarífuglanna
n Paul Lambert vann
7–1 sigur með Colches-
ter á Norwich í ágúst
2009 n Var ráðinn
stjóri Norwich nokkr-
um dögum seinna
n Tveimur árum síðar
er hann búinn að koma
Norwich upp í úrvals-
deildina n Fyrsta liðið
sem fer upp um tvær
deildir og í úrvalsdeild-
ina í ellefu ár
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Kraftaverka-
maðurinn Paul
Lambert hefur
unnið þrekvirki
með Norwich.
Gleði, gleði
Norwich er aftur
komið upp í úrvals-
deildina eftir sex
ára fjarveru.