Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2011, Qupperneq 64
Er Skap Ofsi
upptekinn?
Karl í Hörpu
n Margir af helstu framámönnum
íslensku þjóðarinnar voru viðstaddir
fyrstu tónleikana í Hörpu á miðviku-
daginn. Meðal þeirra sem létu sjá sig
voru Bjarni Benediktsson, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, Ólafur Ragnar
Grímsson, Jón Gnarr, Steinþór Páls-
son, Egill Helgason og Tinna Gunn-
laugsdóttir. Athygli vakti sömuleiðis
að Bjarni Ármannsson, fyrrverandi
bankastjóri Glitnis, var meðal gesta
auk þess sem útrásarvíkingurinn
góðkunni Karl Wernersson var einnig
á tónleikunum. Hluti af miðunum
á tónleikana fór til áskrifenda á
tónleika Sinfóníunnar, um 400 miðar
voru boðsmiðar og svo var hluti
seldur með hefðbundnum hætti.
Erfitt er að segja hvernig tilteknir
einstaklingar komust
yfir sína miða á
tónleikana en
þó má ætla að
framámenn í
stjórnmála- og
listalífi lands-
ins hafi fengið
boðsmiða.
Staða bræðranna
n Ein afleiðinga skipunar Eiríks
Tómassonar lagaprófessors í embætti
hæstaréttardómara er sú að hann
getur ekki dæmt í neinum málum
sem tengjast Glitni beint eða óbeint.
Ástæðan er sú að bróðir hans, Árni
Tómasson, er formaður skilanefndar
Glitnis og sonur hans, Páll Eiríksson,
situr í slitastjórn Gltinis. Eiríkur mun
því þurfa að lýsa sig vanhæfan í
öllum málum sem tengjast Glitni og
uppgjörinu við íslenska bankahrunið
auk allra annarra mála sem geta
tengst Glitni, meðal annars í málum
tengdum öðrum fjármálafyrirtækjum
sem geta haft fordæmis-
gefandi áhrif á mál
sem tengjast
Glitni. Í
ljósi fjölda
slíkra mála
sem bíða
úrlausnar
í dóms-
kerfinu mun
Eiríkur ekki
getað dæmt í
ansi mörgum
málum.
Þingmaður ætlar
í hálfmaraþon
n Eygló Harðardóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, hefur aldrei
verið mikill íþróttagarpur að eigin
sögn. Hún hefur hins vegar ákveðið
að taka þátt í Reykjavíkurmaraþon-
inu þann 20. ágúst næstkomandi.
Tilgangurinn er að vekja athygli á
og styðja við Samtök kvenna með
endómetríósu, eða legslímuflakk. „Ég
er þegar komin með loforð frá flottu
fólki um að taka þátt í hlaupinu með
mér til stuðnings samtökunum,“ segir
Eygló á bloggsíðu sinni og bætir við:
„Því verða á næstu vikum ekki bara
pistlar á blogginu um
pólitík, fréttir og
Framsókn,
heldur einnig
hlaup, harð-
sperrur,
hlaupa-
leiðir og
endómet-
ríósu.“
Enn hefur ekki verið tekin ákvörð-
un um hvort Landsbankastjórarnir
fyrrverandi Sigurjón Þ. Árnason og
Halldór J. Kristjánsson verði gerðir
ódauðlegir á málverkum líkt og for-
verar þeirra í starfi. Forverarnir prýða
veggi höfuðstöðva bankans í Austur-
stræti en hrunstjórarnir eru út undan.
Samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni
Kristjánssyni, upplýsingafulltrúa
Landsbankans, er málið ekki ofarlega
á dagskrá.
Áratugahefð er fyrir því hjá Lands-
bankanum að málaðar séu myndir
af fyrrverandi bankastjórum og eru
til málverk af öllum rúmlega 30 for-
verum Sigurjóns og Halldórs aftur til
ársins 1886. Fréttablaðið fjallaði um
málið í ágúst 2009 þar sem haft var
eftir Hauki Halldórssyni, formanni
bankaráðs Landsbankans, að mál-
verkin hefðu ekki komið til tals þar.
Í blaðinu var rifjað upp að margir af
virtustu listamönnum þjóðarinnar
hefðu verið fengnir til að mála mynd-
ir af bankastjórunum í gegnum tíðina,
meðal annarra Jóhannes Kjarval.
Nú tæplega þremur árum eftir að
Sigurjón og Halldór létu af störfum við
hrun bankans í október 2008 er stað-
an óbreytt að sögn Kristjáns og óljóst
hvort slík málverk líti dagsins ljós.
Ekki er þó útilokað að Sigurjón og
Halldór fái málverk af sér þrátt fyrir
umdeildan starfsferil. Björgvin Vil-
mundarson, Halldór Guðbjarnason
og Sverrir Hermannsson hrökkluðust
allir frá störfum árið 1998 vegna spill-
ingar en fengu málverk af sér þrátt fyrir
það. Hrun bankans og Icesave-málið
hafa svo sem tryggt að nöfn Halldórs
og Sigurjóns falla aldrei í gleymsku í
orðræðu um bankann um ókomna
tíð. Málverkin eru því kannski óþörf.
mikael@dv.is
Fá ekki inni í frægðarhöll Landsbankastjóra:
Engin málverk af hrunstjórum
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HelgarblaÐ 6.–8.maí 2011 52. tbl. 101. árg. leiðb. verð 595 kr.
Hugmynd að mynd Þessi fræga mynd
af Sigurjóni Þ. Árnasyni í Hong Kong gæti
verið innblástur fyrir listmálara.
AKUREYRI S:4627800. SMÁRALIND S:5659730. KRINGLUNNI S;5680800. LAUGAVEGI S:5629730
JAKKAFÖT FRÁ
14990,-