Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Síða 55
„Þetta er allavega tvöfalt stærra en
gamla húsið, einhverjir 18 til 19
hundruð fermetrar,“ segir bardaga-
íþróttamaðurinn og yfirþjálfari bar-
dagaíþróttafélagsins Mjölnis, Gunn-
ar Nelson. Er hann þar að tala um
splunkunýtt húsnæði Mjölnismanna
sem verður opnað á næstu dögum en
það er staðsett í gamla Loftkastalan-
um. „Þarna er allt til alls. Það er heill
salur fyrir víkingaþrekið. Boxið er
niðri en glíman og MMA (blandað-
ar bardagalistir) uppi. Þetta eru þrír
risastórir salir og auðvitað fer MMA-
búrið með,“ segir Gunnar Nelson.
Mikil aukning iðkenda
Ekki er langt síðan Mjölnismenn
brutu niður vegg í gamla húsnæði
sínu og tvöfölduðu þar með rými sitt.
En það dugar ekki í dag. „Við höfum
stækkað við okkur núna á ársfresti.
Eftirspurnin er bara orðin það mik-
il. Þrekið hjá okkur er mjög vinsælt.
Sérstaklega eftir að við fórum að gera
tímana fjölbreytta og skemmtilega.
Svo er glíman auðvitað vinsæl auk
byrjendatímanna. Aðsóknin geng-
ur í bylgjum eins og allt en að jafn-
aði er þetta að aukast hjá okkur og
það töluvert hratt,“ segir Gunnar
sem sjálfur kennir bæði gólfglímu og
MMA.
Allir hjálpast að
Mikil fjölskyldustemning er í
klúbbnum og leggja þar allir hönd
á plóg við að koma nýja húsinu í
stand. Þegar DV heyrði í Gunnari í
vikunni var hann nývaknaður eftir
lúr en hann hafði verið í mikilli erf-
iðisvinnu í nýja húsinu. „Það hefur
verið hellingur af fólki sem hefur
hjálpast að. Fólk úr Mjölni, vinir og
vandamenn. Það er Mjölnir í hnot-
skurn,“ segir Gunnar. Eru fleiri
efnilegir bardagamenn á leiðinni
vegna þessa mikla áhuga?
„Það er fjöldinn allur af efni-
legum mönnum að koma upp.
Keppnisliðið okkar fór til Finn-
lands á dögunum og gerði vel
og áður fór það til Danmerkur
og gerði enn betur. Það er mikil
gróska í bardagaíþróttunum,“ segir
Gunnar Nelson.
Sport | 55Helgarblað 3.–5. júní 2011
Þegar heilsan er annars vegar þá skipta gæði
tækisins mestu máli.
Omron blóðþrýstingsmælar fá hæstu einkunn í klínískum rannsóknum
og eru viðkenndir af ESH, BHS og WHO.
Omron blóðþrýstingismælar fást í estum apótekum.
Þjónustuaðili Omron á Íslandi
s:512 2800
Blóðþrýstingsmælar
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Verkamenn
í eigin húsi
n Bardagaíþróttafélagið Mjölnir flutt í tvöfalt stærra hús
n Hjálpast að við að koma húsinu í stand n Mikil fjölgun iðkenda
Mjölnismenn Allir leggja hönd á plóginn.
Frábær aðstaða Mjölniskastalinn er enn
í mótun og stefnt er á að allt verði klárt fyrir
17. júní. Myndir róBert reynisson