Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Qupperneq 10
10 Fréttir 8.–10. júní 2012 Helgarblað
Árás vegna meintrar skuldar:
Kærðir fyrir
líkamsárás á
lögmannsstofu
Kristinn Jón Gíslason, athafna-
maður og fyrrverandi eigandi
Rizzo Pizzeria, er annar þeirra
sem sakaðir eru um að hafa
ráðist á lögmanninn Steinberg
Finnbogason á lögmannsstof-
unni Jurist í miðbæ Reykjavíkur
á miðvikudag. Faðir Kristins var
með honum en þeir þvertaka fyr-
ir að þeir hafi ráðist á Steinberg.
Mönnunum er gefið að sök að
hafa ruðst inn á lögfræðistofu um
klukkan hálf þrjú á miðvikudag
og ráðist þar á starfsmann. Stein-
bergur staðfestir í samtali við DV
að hann sé búinn að kæra atvikið.
Árásin hafi þó verið minniháttar
og tekur Steinbergur fram að þrátt
fyrir það sé „… öllum mjög brugð-
ið og starfsfólkið í sjokki. Þetta var
afar óskemmtilegt.“
Kristinn segir í samtali við DV
að það sé með ólíkindum að verið
sé að bera atvikið saman við voða-
verkin í Lagastoð þar sem gerð var
tilraun til manndráps. Vill hann
meina að Steinbergur skuldi hon-
um peninga fyrir fasteign sem
þeir áttu í sameiningu en var seld
fyrir um tveimur mánuðum. Hann
segist hafa farið á lögmannsstofu
hans til þess að fá frekari upplýs-
ingar um það hvenær hann fengi
sinn hluta borgaðan þar sem
hvorki pósti né síma hefði verið
svarað. Kristinn segist hafa viljað
fá greitt á miðvikudag en það hafi
Steinbergur ekki samþykkt. Þetta
hafi endað með rifrildi og síðar
ryskingum þegar Steinbergur vís-
aði þeim feðgum á dyr. Á endan-
um hafi Steinbergur síðan hrópað
á hjálp og beðið samstarfsfé-
laga um að hringja á lögregluna
þar sem hann sætti árás af hendi
þeirra feðga. Steinbergur vill ekki
tjá sig um hina meintu skuld en
hafnar því þó að skulda feðgun-
um háar fjárhæðir. Málið verð-
ur nú rannsakað af lögreglu en
Steinbergur sakar Kristinn meðal
annars um að hafa tekið sig háls-
taki. Kristinn viðurkennir að hafa
brotið blómavasa á leiðinni út af
stofunni en þvertekur fyrir að hafa
beitt ofbeldi.
Tælenskur matur
fyrir sælkera
OPIÐ
Langarima:
Alla virka daga: 11-21
Helgar: 17-21
Langarima 21 • S: 578-7272 • www.rakangthai.is
Hlökkum til að sjá þig
H
æstiréttur hefur staðfest að
tæplega tólf milljóna króna
bónusgreiðsla sem Ingi
Rafnar Júlíusson, fyrrver-
andi forstöðumaður mark-
aðsviðskipta hjá Glitni banka, skuli
viðurkenna sem almenna kröfu í
þrotabú bankans. Héraðsdómur
Reykjavíkur hafði áður komist að
sömu niðurstöðu. Bónusgreiðslan
sem um ræðir er vegna starfa Inga
Rafnars fyrir Glitni í september og
október árið 2008 en bankinn var
yfirtekinn af Fjármálaeftirlitinu í
október sama ár. Bónusgreiðslan er
reiknuð út frá hlutdeild Inga Rafnars
í tekjum markaðsviðskipta Glitnis í
september og október 2008.
Áhrifin skýrast á næstu dögum
Páll Eiríksson, sem situr í slitastjórn
Glitnis, segir að enn sé verið að
reikna út hvaða áhrif dómurinn í
máli Inga Rafnars gegn bankanum
hafi á aðrar svipaðar kröfur fyrr-
verandi starfsmanna bankans. „Við
erum að taka þetta saman. Þetta
er töluverður fjöldi af kröfum sem
tengjast þessu. Þetta eru nokkrir
tugir starfsmanna sem voru í þessari
deild og voru með laun tengd ár-
angri,“ segir Páll um áhrif dómsins.
Hann segir að eitt af því sem þurfi að
meta sé hvort starfsmenn sem gert
hafa svipaðar kröfur og Ingi Rafnar
hafi haft sömu stöðu og hann.
Páll segir að ánægjulegt sé að
niðurstaða sé komin í málið þó að
dómsmál snúist ekki um að vera
ánægður eða ekki. „Þetta er bara
niðurstaða Hæstaréttar og við fylgj-
um henni. Þetta snýst ekki um að
vera sáttur við eitthvað, þetta snýst
um að fá rétta niðurstöðu og sann-
gjarna,“ segir hann.
Fær ekki nema hluta
Þrátt fyrir að fyrir liggi að Ingi Rafnar
eigi kröfu á bankann upp á tólf millj-
ónir króna er ljóst að þar sem Hæsti-
réttur telur kröfuna eiga að flokkast
sem almenna kröfu fær hann ekki
nema hluta af milljónunum. Reikn-
að er með því að kröfuhafar Glitnis
fái ekki nema tæplega 30 prósent af
almennum kröfum sínum greiddar
úr þrotabúinu. Bónusgreiðslan gæti
því farið úr tólf milljónum niður í
um það bil fjórar. Þar sem um laun
er að ræða þarf Ingi Rafnar svo að
borga tekjuskatt af greiðslunni.
„Ég hef ekkert um málið að segja,“
sagði Ingi Rafnar þegar blaðamað-
ur náði tali af honum. Ljóst er hins
vegar að niðurstaðan er mikil von-
brigði fyrir hann ef horft er til upp-
haflegra krafna sem hann gerði í
þrotabú bankans. Bæði Hæstiréttur
og héraðsdómur höfnuðu kröfum
upp á um fimmtíu milljónir króna.
Þrátt fyrir að fjárhæðirnar séu
aðeins dropi í hafið fyrir slitastjórn
Glitnis er hins vegar ljóst að kröf-
urnar skipta miklu máli fyrir þá sem
þær eiga. Dómurinn hefur líklega
fordæmisgildi fyrir um hundrað
sambærileg mál fyrrverandi starfs-
manna Glitnis og segir Páll að upp-
hæðirnar séu stórar miðað við að
einstaklingar standi á bak við þær.
Vildi fá peninga fyrir
skólagöngu
Upphafleg krafa Inga Rafnars
hljóðaði upp á rúmlega 63 millj-
ónir króna og byggði á ýmsum
óvenjulegum kjörum í ráðningar-
samningi hans. Stærsti liður kröf-
unnar var til að mynda 24,4 millj-
ónir króna vegna skólagjalda og
launagreiðslna meðan á námi hans
stæði. Í ráðningarsamningnum var
kveðið á um að bankinn myndi
greiða allt að 4 milljónir í skóla-
gjöld hans færi hann í framhalds-
nám auk þess sem hann héldi 50
prósentum af föstum launum síð-
an meðan á námi stæði. Aðrir liðir
kröfunnar voru vegna símakostn-
aðar, reksturs bifreiðar auk fram-
lags í séreignasjóð í átján mánuði.
Bæði Hæstiréttur og héraðsdómur
töldu þessar kröfur ekki eiga rétt á
sér.
Glitnistoppur fær
12 milljóna bónus
n Hæstiréttur staðfesti 12 milljóna króna kröfu Inga Rafnars í þrotabú Glitnis„Ég hef
ekkert um
málið að segja
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Vonbrigði Dómur Hæstaréttar verður
að teljast vonbrigði fyrir Inga Rafnar
þar sem kröfum upp á um fimmtíu
milljónir var hafnað. Mynd PressPHotos.biz